Jæja...jólin alveg að koma og við eyðum þeim að hluta til í Reykjavík...eins og áður hefur komið fram býst ég við. Við erum bara að dundast heima ...við 3...án Emelíönu því miður....borðuðum saltfisk áðan og nú er Júlía að vaska upp haha...henni finnst voða gaman að hjálpa til við heimilsstörfin....þessi elska....dugleg. Mikið er nú gott að þurfa ekki að vera í neinum asa að redda hinu og þessu...hingað og þangað...bara að njóta aðventunnar og dagsins í dag er dásamlegt....úbbs....þarna smallaðist eitt eitt glas...ó well...
Allavegna þá er allt klárt...búin að taka út hamborgarahrygginn....rjúpurnar eru á svölunum og bíða þess að Stefán geri að þeim í kvöld....svo ætlum við að gera súpugrunninn í kvöld og dúlla okkur í jólaskapi.
Mikið verður nú samt gott að fara norður..hlakka svakalega mikið til....en það eru búnar að vera blendnar tilfinningar hjá mér s.l. daga....að mörgu leiti skrýtið að eyða jólunum hér en samt gaman að búa til okkar jól líka...við erum alveg sátt og mikil tilhlökkun.....núna finnst mér þetta bara allt svo spennandi....já já....
Jess...svo á morgun ætlum við að kúrast og hafa það gott þangað til pabbinn fer til vinnu kl 13....þá ætlum við Júlía bara að dundast og dúllast....sjóða niður rauðkál í fyrsta skipti...setja upp hrygginn....og græja allt sem græja þarf....svo hið hefðbundna jólabað....sem verður nú allavegna í mínu tilfelli jólasturta....svo setja pakka undir jólatréið og hafa það notalegt þar til pabbinn kemur heim...mikið verður þetta yndislegt. Annað kvöld hefur okkur svo verið boðið í kaffi og kökur til Ómars móðurbróðir míns aka pabbi Völu frænku....þar safnast saman öll systkini mömmu sem búa hér fyrir sunnan...og fjölskyldur þeirra....mikið verður það nú gaman....Nú svo á jóladag er boð hjá Jónsa frænda Stefáns og Ólu konu hans...þar verður margmenni og fjör....gaman að vera boðin svona þá erum við ekki eins mikið ein...eða þið skiljið....ekki það að við ætlum og erum búin að gera gróf plön að kósýheitum fyrir þessa daga....og ég reyndar líka fyrir dagana eftir áramót....þ.e.a.s. þá keypti ég graflax og 2 teg. af paté....og allt sem með því þarf....snakk og ídýfur og fleira m.a. lambalæri....æi betra að koma ekki að tómum kofanum þegar við komum aftur heim á nýársdagskvöld.....en já....annars er allt bara ágætt hér....ein einkunn komin sem hljóðaði upp á 8.5....ég ætlaði náttúrulega eitthvað að vera smá fúl því ég vil bara fá 9ur...hehe...en auðvitað er ég ánægð...fyrsta einkunn og allt bara gott með það að segja.....nú er bara að bíða eftir næstu 2 eink.
En jæja...nú eru rjúpurnar komnar upp á borð og pabbinn á heimilinu búinn að setja upp rambóklútinn....Júlían sýnir mikin áhuga á að hjálpa svo ætli það sé ekki best að ég setji mig í stellingar.....
en ástarknús...ég vona að þið njótið jólanna og séuð að hafa það súper gott....ég er rokin í bili....ciao
Tuesday, December 23, 2008
Þorláksmessa
Subscribe to:
Comment Feed (RSS)

|