Saturday, November 29, 2008

Jólaandinn er að koma!!!

Subbuleg piparkökugerð

Júlían tók líka þátt en skottaðist svo inn á milli með harðfiskinn

Emelíana og Lilja Mist vinkona hennar


Þórhalla fyrir makeup ala Emelíana



Hér má sjá afrakstur snyrtidömunnar Emelíönu ....ógeðslega flott!




´Frændurnir og vinirnir Hinrik og Stefán á GlobalBOB





Já ég setti eyeliner á Stefán hehe.....Heiða helduru að Hinrik vilji ekki líka?







Garðar og Beta mættu aðsjálfsögðu....sjáið líka glitta í goðið....Hebba






Hérna er betri mynd af honum sem ég er líka rosa ánægð með...stórkostlegur maður!








Herra Ísland frá því í fyrra var með okkur....skiljanlega vildi hann vera þar sem fallega fólkið sat!









prinsessan sofnaði svona....Hugsuðurinn...hvílir ekki einu sinni heilann í svefni hehe










og svona kom ég að henni um daginn....ávalt dama...líka þegar hún sefur haha












Emelíana í Halloween partýi með bekkjarsystrum....takið eftir brúðinni...flott...ég ætla að vera svona þegar ég gifti mig...held það geti verið töff











tvær af þvíburunum...Emelíana og Soffía














Morgunfalleg að borða morgunmat
Jæja...það er laugardagskvöld og við Júlía erum bara 2 einar heima....Emelíana fór í gistingu til vinkonu og Stefán fór með Þórhöllu á tónleika....en hann er svo að fara á næturvakt.....svo við mæðgur dundumst hér...hún með snakk að horfa á Jólasveinamyndina og þekkir ekki pabba sinn í búningnum....ég að horfa á Bridget Jones´s diary nr.1 á rúv....
Í dag erum við búin að gera margt....Stefán fór á rjúpur ...Emelíana á fimleikaæfingu og svo skveruðum við okkur í piparkökubakstur.....gerði óvart heila uppskrift í gær svo þetta urðu ansi margar kökur...en það er allt í lagi....svo skreyttu stelpurnar kökurnar.....ég er svo búin að hengja upp seríur í herbergi Emelíönu og er einmitt í smá pásu núna....ætla að hengja fleiri upp hér heima á eftir.....flott stytta með jólasveini og jólatréi er komin á borðið og búið að kveikja á henni....svo að ég er nú dálítið komin í jólaandann sko...jájá....
Í gær fann ég alvarlega fyrir háskóla-geðveikinni....var í skólanum í 10 klst.....2 tímar af þessum 10 fór reyndar í rosa næs spjall við Friðrik Þór kvikmyndagerðarmann á Hressó....það var ógeðslega gaman...maðurinn er snillingur! En svo dreif ég mig á lesstofuna og var þar í rúma 2 tíma við að klára ritgerðina...sem er einmitt um mynd Friðriks Þórs...Börn náttúrunnar.....kom svo heim...borðaði Freaky friday sem Stefán og Þórhalla elduðu...ummm þvílíkt gott....settist svo við tölvuna aftur og gerði heimildaskrána með hálf lokuð augun enda gjörsamlega við það að leka niður.....sendi svo ritgerðina kl. 22:30 enda deadline á miðnætti.....Við Stefán kíktum svo aðeins niður í bæ á Sólon en þar fór fram Húsvíkingakvöld....Þórhalla passaði og vildi endilega að ég drifi mig aðeins út....þó ég væri algjörlega búin á því þá var þetta mjög gaman....skemmtilegt að sjá andlit sem ég hef ekki séð í MÖRG ár.....verð að segja það að Valdimar (úr Mývó) var þar...hehe...og þegar að hann sá Stefán með mér þá sagði hann: Ekki segja neinum að ég hafi verið hérna......ég sagði honum að ég skildi útvarpa því....það væri greinilegt að Stefán væri ekki einn um að finnast stelpa frá Húsavík sæt....hehe....æh þið skiljið hvað ég meina.
Annars fórum við í mjög skemmtilega Kringluferð á fimmtudaginn....við familían og nýjasta barnið/auperin okkar hehe....sem sagt Þórhalla....það er bara svo gaman að hafa hana.....borðuðum þar og skoðuðum í búðir....rosa gaman....það er bara svo gaman þegar allt er gott og allir eru hamingjusamir og glaðir....það finnst mér best...Dagarnir hafa líka verið svo undursamlega yndislegir....allt gengur vel þó það sé stundum mikið að gera og mikill asi....
Annars er mikið að gera framundan sem örugglega á eftir að vera stressandi en líka ánægjugefandi.....Skólinn er búinn en ég á samt eftir að kára eina ritgerð...skila henni 10 des og ætla mér að vinna í henni og klára í vikunni....svo á föstudaginn fer ég að hitta Mývóstelpurnar og við ætlum að hafa jólaglögg og föndurkvöld...hlakka mikið til....á Laugardeginum förum við fjölskyldan til Jónsa frænda Stefáns og Ólu....fjöldi fólks verður þar saman kominn til að gera laufabrauð...það verður bara yndislegt....á sunnudaginn eftir fæ ég svo heimaprófið mitt og á að skila því á þriðjudeginum eftir.....eftir það er svo bara lokaprófið í fornleifafræðinni...15 des svo vikan fyrir það fer í lestur. Það verður svo gott þegar það er búið...þá ætla ég að klára jólagjafir og stúss...versla jólamatinn....jú jú það verður tvíréttað....hamborgarahryggur og rjúpur...haha...fyrir okkur 3....mig Stefán og Júlíu.....Emelíana á flug norður 19 des því hún ætlar að eyða jólunum með pabba sínum og fjölskyldu....það verður gaman fyrir hana...þó við eigum eftir að sakna hennar og þá aðallega á mér eftir að finnast skrýtið að eyða ekki aðfangadegi með henni....en þetta verður svona núna.
Jæja...held þetta sé orðið gott...man ekki meira en það var fullt sem ég hafði hugsað mér að skrifa....best að dúllast og setja upp eina seríu í viðbót...skríða svo upp í til litlu Bráar og kúra með henni í nótt....
Eigiði góða daga og góða nótt....ykkar Hi














Wednesday, November 26, 2008

Örblogg...af því að ég er svo gleymin þessa dagana!

systur...tekin við leiði langafa og langömmu Júlíu þann 17 ágúst 2006



Æh já...ég er alveg á milljón í skólanum og fullt fullt að gera....var með fyrirlestur á lokaverkefni í dag....það gekk rosa vel....svo er próf á morgun og ég er ekki byrjuð að læra fyrir það....eníveis...og ritgerðin á föstudag....úff...alveg að hafast....en bæði í gær og í dag fór ég í tíma....tímarnir áttu báðir að vera í Odda en ég sem sagt ruglaðist 2 daga í röð og fór í Aðalbygginguna....ekki langt frá en pirrandi samt....þar sem ég er alltaf á síðasta snúningi þessa dagana að koma mér af stað.....bla bla....





Well....Þórhalla mín var hjá mér ...já og stelpunum....alltaf notalegt að hafa hana....borða góðan mat saman og spjalla....stelpurnar dýrka hana líka...enda ekki annnað hægt...hún er svo yndisleg.





Annars hef ég voða mikið verið að hugsa og gerði alveg hreint stórkostlega uppgötvun í morgun....þar sem þjóðfræðin og mamma hjálpuðu mér....of langt að útskýra hvernig þær koma inn í þetta en klárlega eitthvað sem ég ætla from now on að tileinka mér....ég fattaði svo margt með þessari uppgötvun....allavegna....nóg um það....en þetta hefur held ég vonandi bara jákvæð áhrif í framtíðinni.....





Annars hef ég ekki tíma til að segja neitt meir...þó ég sé í stuði að skrifa...en ég verð bara að renna yfir glósurnar.....eitt samt......mig langar svo að tala um stelpurnar mínar tvær...þvílíkir gullmolar....Emelíana er t.d. að skrifa bók....JÁ bók....komin með nokkra kafla...allt vistað í word sko.....jólasaga....krúttið...lík mömmu sinni með þetta sko....og Júlían....vill núna bara kúka í klósettið hehe...dugleg...hún sagði líka eitt svo yndislegt við mig í dag að ég gjörsamlega bráðnaði....hún bað um köku...ég sem sagt bakaði jógúrtkökur (muffins) í gær....og hún segir: mamma má ég fá köku? Ég: já gjörðu svo vel. Hún tekur við kökunni og segir við mig: Þú ert rosa góð. Síðan segir hún: kysstu mig. Ég beygi mig niður og kyssi hana....Hún segir: Knús líka mamma....og knúsar mig og strýkur mér svo um kynnina og segir: þú ert rosa góð mamma.


HALLÓ.....er eitthvað sætara en þetta? jesú minn.....hún er svo mikil elska....alltaf að knúsa og kyssa.....





Jæja...ég er rokin....bæ!

Sunday, November 23, 2008

Jólaföndur, fimleikasýning, Thingtak o.fl.

Sætasti bassaleikarinn

Stefán minn

Með teipaða putta


Þessi er tekin í Sjallanum 8 apríl 2006, daginn sem ég átti að eiga Júlíu.








Ég kalla þessa GULLDRENGURINN
Jamms...ákvað að hafa smá Thingtak/Stefáns þema hérna....enda er ég ótrúlega stolt af þessum manni sem ég er svo lánsöm að eiga! Þeir strákarnir í Thingtak kepptu í Global battle the bands...3 undankeppnir voru og þeir kepptu s.l. fimmtudag....ég mætti auðvitað á svæðið og var vinsamlegast beðin um að vera framarlega svo Stefán gæti séð mig....Ég var ekki með góða tilfinningu fyrir keppninni í upphafi og en verri eftir að ég sá dómnefndina....hún var ekki skipuð fólki sem ég hef trú á í dómarasæti....eníveis...þeir komust áfram strákarnir og því bara úrslitakvöldið framundan.....þegar ég svo frétti að nýstirnin í Agent fresco hefðu komist í úrslit líka þá sagði ég bara OK....það er búið að ákveða hver vinnur....enda sást það svo greinilega í gærkvöldi á úrslitunum....ég sat á næsta borði við dómarana og fylgdist með hverrri hreyfingu...nei ok...smá ýkt en allavegna nóg til að sjá það að þeir voru ýmist að smsa í símunum sínum....fara á klóið...á barinn....og bara allt annað en að fylgjast með 100% eins og ég tel að dómarar eigi að haga sér....svo...þegar Agent fresco kom á svið þá var nú allt annaðu upp á teningum....dómararnir stóðu upp...einn settist upp á syllu sem var hátt uppi...annar fór fyrir framan sviðið og ég veit ekki hvað og hvað....aðal númerið var sem sagt mætt á svið og nú var hægt að fylgjast með af alvöru....æh....þetta var einum of áberandi fyrir svona edrú manneskju eins og mig....glatað dæmi....svo ömurlegt að taka þátt í keppni þar sem löngu er ákveðið hverjir vinna....ég sá á blaðið hjá einum af dómurunum og það eina sem hann skrifaði á sitt blað voru nöfnin á böndunum......æh ....ég er náttúrulega bara fúl því mér finnst Stefán og hans band lang flottastir og bestir...en ég get náttúrulega engan veginn verið hlutlaus....hehe....en annars þá voru nokkrar góðar hljómsveitir þarna í gær og margt gott þannig sko....spurning hvort þeir sem setjast í dómarasætið geti komið með nógu hreinsaðan haus af skoðunum og þá sérstaklega vegna þeirrar staðreyndar að vinningsbandið er nýbúið að vinna músíktilraunir og er búið að vera með lag í spilun í útvarpinu s.l. vikur og mánuði.....það var skítalykt af þessu allan tímann.....punktur.
Jamm....fleira gerðist um helgina....m.a. fórum við mæðgur í jólaföndur í Melaskóla....föndruðum voða flott dót frá Heimaföndri Halldóru....jáh...þetta er ekki eins og heima á Húsavík þar sem allt efni til föndurgerðar er bara í skólanum og engin þarf að borga fyrir það....ákveðnar stofur bara með ákveðnum skreytingum og föndri..nei hér kaupir maður tilbúið í pakka...einmitt frá þessari Halldóru....svo sem ágætis dót....en þetta er ekki það sama....vantar stemninguna......eníveis....fórum svo beint í Gróttu en þar fór fram vetrar/jólasýning fimleikadeildarinnar.....og VÁ hvað hún var flott í ár....alveg geggjað....þemað var ABBA lög og allir iðkendur því í glimmeri...með ennisbönd og allskonar töff....mega gaman og flott.
Annars er allt meinhægt....Stefán er á vöktum um helgina svo við mæðgur dúllum okkur hér...ég er svona að skána af barka/kokbólgunni sem ég náði mér í....held ég sé loksins að frískast....Tók þvotta/þrifkast enda allt frekar subbulegt orðið hér....skipti meira að segja um mold á blóminu....svo vonandi fer það nú að hressast aftur....annars er síðasta skólavikan framundan og brjálað að gera....ég er bara svo mikill slugsi að ég geymi alltaf allt fram á síðustu stundu....ok kannski ekki alltaf en....ég vinn best undir pressu...þá skipulegg ég mig svo vel....eníveis....sem sagt fyrirlestur á hópaverkefni um steinsleggjur (fornleifafræðakúrsinn sko) á miðvikudag....tímapróf á fimmtudag....og svo ritgerðarskil á föstudag.....þetta hefst allt....þarf bara að byrja!!!
Eitt sem ég var að hugsa um í s.l. viku ....þegar ég var stödd á Ægissíðunni.....þá var sjórinn eins og spegill.....og allt svo fagurt....Bessastaðir hinu megin við fjörðinn.....og ég datt í hugleiðslu.....það er svo gott að hugleiða og ég geri það aldrei dýpra en í fjöru.....ég hugsaði hvað allt væri í raun dásamlegt í mínu lífi....ég hef allt sem ég þarf....og þarf ekkert meira....ég henti öllu leiðinlegu og ljótu bara út í sjó og hélt svo leið minni áfram.....
mikið ógurlega finnst mér ég eitthvað þroskuð.....






Wednesday, November 19, 2008

Tvær gamlar.....svona í gamni bara...



Það er morgun og Júlían var að skríða á fætur...hún er hálf lasin eins og ég enn....meira hvað þessi flensu drusla hangir í manni....jæja...annars ætla ég að hafa Júlíu heima í dag...vil ekki að hún verði sett út á leikskólanum og því skrópa ég í skólann í dag....heilsa barna minna gengur fyrir....börnin mín ganga alltaf fyrir því hét ég þegar að ég byrjaði í skólanum á sínum tíma....að fjölskyldan kæmi fyrst....alltaf hægt að massa þenna skóla sko....eníveis...keypti dvd mynd með Klaufabárðunum í kolaportinu um síðustu helgi....dásamlegt barnaefni...og bara að heyra lagið aftur....nostalgía!


Já svo við ætlum að krúsast saman hér í dag....annars er kreisí að gera hjá mér náttúrulega....2 ritgerðir sem ég er að vinna í og gengur alveg ágætlega....eitt hópaverkefni sem er í vinnslu og svo ætti ég nú að vera að vinna í stóra rannsóknarverkefninu mínu en ég talaði við kennarann sem er yfir mér í því og hún bað mig um að skrá mig úr kúrsinum og færa hann yfir á næstu önn....því hún hefur ekki tíma til að vinna í þessu með mér núna og gerði ég það því áðan....skráði mig úr ...klára þetta þá bara eftir áramót...strax í janúar bara því ég er komin mjög vel á veg með verkefnið....allt svo útvarpsþáttinn.....já já...þetta lyfti náttúrulega smá álagi af mér.....svo byrjar skólinn ekki fyrren 15 jan svo eitthvað hef ég þá að gera þá annað en að sauma út eins og ég hafði hugsað mér.....


Annars er planið fyrir næstu daga þetta hjá okkur: Á morgun fara með Stefáni í Hafnarfjörð og horfa á hann og Thingtak keppa í Global battle of the bands.....á laugardaginn fara með Emelíönu í jólaföndur í skólann hennar og svo beint á jóla-fimleikasýningu.....þess á milli vinna í ritgerðum og hafa það gott heima.....


Úff þetta er allt að verða búið....skólinn....alveg að koma jól...tíminn líður svo hratt....en mig hlakkar til að skreyta með Stelpunum....baka....ætlum að baka piparkökur um þar næstu helgi....spila jólalög og setja upp seríur í gluggana ......


Talandi um lög.....textar í lögum geta túlkað tilfinningar manns svo ótrúlega vel á tímum þegar maður sjálfur getur það varla sjálfur.....kannski getur maður það ekki vegna reiði eða einhvers annars sem truflar mann....ég setti ekki textan með The Hives þarna um daginn vegna þess að ég væri reið....síður en svo....var reyndar reið um daginn en ég er nú sjaldnast reið lengi....er þeim ,,kostum" gædd að ég er mjög fljót upp og jafn fljót niður....svo ég er nú ekki að eyða tíma í reiðina....sem betur fer....en maður getur orðið sár við fólk og það er kannski lengur úr mér....þá finnst mér ég þurfa að analæsa hlutina og tala um þá....en stundum eru málin bara svo augljós og skír að þess þarf hreinlega ekki...sérstaklega þegar þeir eru búnir að veltast um fyrir manni í lengri tíma.....í einu sérstöku tilfelli núna...sem ég hef gengið í gegnum.....var það akkúrat þannig....en stundum kýs maður bara að trúa ekki....loka augunum og halda í einhvern pollyönnu leik.....ég er ekki mikið fyrir að vera einhver pollyanna....


Það er bara svo ótrúlegt hvernig mannskepnan hagar sér oft á tíðum....hún er svo flókin....en samt svo einföld líka....ótrúlegar pælingar sem fara fram í hausnum mínum stundum....en jáh...well....bara svo ótrúlega merkilegt að sjá hvernig hún aktar stundum....maður getur lesið ótrúlega margt út úr svörum og hegðun fólks...bara ef maður spáir í ....sumir fatta...aðrir ekki....án þess að hafa sagt neitt...bara hugsað....þá fékk ég svör...ekki endilega þau sem ég vildi en þau sem mig grunaði að ég fengi.....og þá....sannar fólk fyrir manni eða réttara sagt staðfestir grun manns....eins og um daginn þá var logið að mér...og ég vissi að það var verið að gera það....manneskjan staðfesti það svo með háttarlagi sínu næst þegar að ég sá hana.....svo ótrúlegt hvað hægt er að lesa í fólk...ég veit ekki hvort þið treystið innsæji ykkar en ég geri það í flest öllum tilfellum....það hefur aldrei logið að mér.....og stundum er það bara þannig að maður sér lengra en nefið nær....stundum þarf ekkert að segja eða gera...maður bara veit.....æh kann ekki að útskýra þetta.....en það merkilegra er að þegar maður hefur komist að niðurstöðu þá verða margir aðrir hlutir svo miklu skírari.....kannski vegna þess að maður var með hálf lokuð augun eða bara af því að maður leitar að fleiri sönnunum þess að maður hafi haft rétt fyrir sér.....


Annars þoli ég ekki fólk sem lýgur....mér finnst það ljótt....


Vísun í textann með Hives....Hate to say i told you so.....fannst mér bara svo merkilegur þennan tiltekna dag....því ég átti alveg von á að fá sjálf að heyra þessa setningu....en það merkilega var og í raun stórkostleg sönnun þess að fólkið sem ég þekki og umgengs mest sagði þetta ekki....auðvitað ekki....því maður segir ekki svona við fólk sem hefur í hreinskilni og af alvöru viljað komast að hlutunum sjálft.....þó maður reki sig á að allt það sem maður var varaður við í upphafi hafi verið satt...og´rétt...þá ber maður virðingu fyrir vinum sínum!


Í tíma í skólanum í gær vorum við að tala um gæsa- og steggjapartý....ræddum hvernig þetta fer fram og hvað er gert....umræðurnar snérust fljótt upp í það að allavegna gæsapartýin væru þannig að þú og vinahópurinn munduð meta það hvernig vinkona ykkar væri og gera hluti sem falla að henni....oft er markmiðið að láta manneskjuna verða svo fulla og haga sér sem mest eins og fífl....og oftast...ef svo er þá treystir gæsin vinkonum sínum fyrir sér í þessu ástandi.....þess vegna láta flestar konur sig til leiðast að láta gæsa sig....sama hvað gert er....samkvæmt rannsóknum.....en það sem ég er að reyna að segja er....að þú treystir vinum þínum.....treystir að þeir standi með þér í gegnum súrt og sætt....séu til staðar fyrir þig jafnt og þú fyrir þá....treystir að þeir sýni þér virðingu.....eða er þetta ekki einhvernveginn svona: komdu fram við náungann eins og þú vilt að hann komi fram við þig?! pælingar....og aftur pælingar....maður er alltaf að reka sig á í lífinu....endalaust....og það er allt í lagi....maður lærir af mistökum sínum....það er bara þannig....og ég syrgi ekki mistök mín....þau hafa bara styrkt mig ef eitthvað er....og svo er líka fyrirgefningin....hún er ótrúlega sterkt afl....hún hefur ekki reynst mér neitt sérstaklega erfið.....ég hef alltaf geta fúslega viðurkennt mín mistök.....og ekki mistök...að fyrirgefa fólki sem ekki getur sjálft viðurkennt sín er alveg ótrúlega magnað....maður virðist eitthvað svo svakalega stór fyrir vikið.

Góðar stundir lömb....Hi




Monday, November 17, 2008

Þessi texti með The Hives á vel við í dag!

Hate To Say I Told You So"

Do what I want cause I can
and if I don't because I wanna be
ignored by the stiff and the bored
because I'm gonna.
Spit and retrieve cause
I give and receive because I wanna
gonna get through your head what the mystery man said
because I'm gonna.
Hate to say I told you so.
I do believe I told you so.
Now it's all out and you knew cause I wanted to.
Turn my back on the rot that's been planning the plot - because I'm gonna.
No need for me to wait - because I wanna.
No need two, three and too late - because I'm gonna.
Hate to say I told you so.
I do believe I told you so.
Do what I please gonna spread the disease
because I wanna gonna call all the shots
for the "No"s and the "Not"s because I wanna.
Ask me once I'll answer twice cause what I know
I'll tell because I wanna.
Sound device and lots of ice I'll spell my name out loud
because I wanna, oh yeah?

Brjálæðislega bissí....kem með pistil very soon....love Hi

Friday, November 14, 2008

Börn náttúrunnar og jólasveinarnir

Hæ....bara svona ein mynd af mér svo að þið gleymið ekki hvernig ég lít út.....svona!

Annars er allt í þessu fína bara held ég.....nema sumt fólk heldur áfram að haga sér furðanlega....en það er allt í lagi....það er ekki mitt vandamál.

Við Emelíana erum 2 í kotinu....litla Brá og Steve minn fóru norður í kvöld....tappinn er að spila á Húsavíkinni annað kvöld og ætlar svo að rjúpnast eitthvað í leiðinni....Brá beauty flaug með til að auðvelda moi lærdóminn....sem er gríðarlegur þessa dagana....endalausar ritgerðir og verkefni....en það hefst...já já....sei sei.....

Leigði mér einmitt Börn náttúrunnar áðan....er að gera ritgerð um hana og tek þar inn í hvernig umhverfið og eitthvað bla bla er túlkað...jarðarför og Van Gennep og þið skiljið ekkert hvað ég er að tala um en það er allt í lagi því þetta er í hausnum mínum og þarf ekkert að vera neitt í ykkar haus. Sá svo á leigunni að jólasveinamyndin hans Stefáns míns er komin út....allt svo Dimmuborgar-jólasveina-myndin sem hann lék í s.l. vor....svo ég kippti henni með og leyfði Emelíönu og Elínu vinkonu hennar að horfa......hlakka til að sjá hana með þvörusleiki mínum.

Eníveis....helginni verður eytt í ritgerðarsmíð ásamt nokkrum útréttingum og smá Mývetningapartýi....það er nauðsynlegt að lyfta sér upp....tala nú ekki um þegar veikindi og mikið innihangs hefur einkennt andrúmsloftið hér á bæ.....er alveg farin að þrá galsa og læti.....það er ekkert blæti...hahah...fyndna ég...

Annars held ég að þetta sé algott....bara alveg jafn gott og matarboðið á Langholtsveginum hjá Jónsa og Ólu í gær....uummm ...borðuðum blálöngu og kola....slef.....og Jónsi fékk að vera afi Júlíu....yndislegt allt bara.

Jólaundirbúningur hefur aðeins látið á sér kræla og er ég komin með 2 kassa af jóladóti hingað heim.....búin að sjóða niður grænu tómatana mína....bætti smá papriku með í þetta skiptið.....svo er ég búin að ákveða að gera piparkökur aftur með stelpunum mínum....plús 2 aðrar sortir...held ég verði samt að 3falda súkkulaðibitaköku-uppskriftina....þær eru bara svo góðar....ætla svo að gera lakkrístoppa líka....nei ég meina....hver þekkir ekki Hildu? lakkrís og súkkulaði?? ah....já!

Meira verður ekki bakað...nema að ég nái ekki að hemja mig....engin jólakort þetta árið frekar heldur en s.l. ár....bara ekki tími.....hálfnuð með jólagjafainnkaup....svo þetta er allt on the role sko.....dásamlegt....og mikið hlakka ég nú til....þó svo að við í raun vitum ekki 100% enn hvar við eyðum jólunum.....en hvar sem það verður þá verður það dásamlegt.....því við verðum öll saman og það skiptir mestu máli.....

Að lokum langar mig til að nefna það sérstaklega hve lánsöm ég er að eiga vinkonur....en sérstaklega þessar ákveðnu sem ég heyri í á næstum hverjum einasta degi.....þið eruð svo bestar...takk fyrir það!!! það er svo nauðsynlegt að vita hverjir eru hreinir og beinir og hjartahlýjir og hreinskilnir....vinirnir sem maður veit alltaf hvar maður hefur....og þarf aldrei að efast.....það er eðlilegur vinskapur....að þessu sögðu fer ég upp í rúm og lulla mér....megið þið eiga góða helgi og verið nú sæl og glöð í hjartanu ykkar......Hi

Wednesday, November 12, 2008

Minning um góða konu

Í gær kvaddi þennan heim ein yndislegasta kona sem ég hef á ævinni kynnst....og mig langar til að minnast hennar hér.

Halldóra Egilsdóttir var aldrei kölluð annað en Dúlla....meðan að ég þekkti hana en henni kynntist ég þegar að ég var lítil stelpa fyrst.....síðar kynntis ég henni enn meir.
Fyrsta minning mín um Dúllu er þegar ég sit aftur í bílnum hennar......gamal vínrauður saab ..... með Heidda bróður og við erum að keyra niðrí ölgerð.....og ég man að mér fannst við vera í ævintýri.....stóru egils flöskurnar utan á húsinu og bílinn eitthvað svo töfrandi......og Dúlla góða sögukonan sem keyrði.
Dúlla bjó ein en maðurinn hennar Kolli heitinn var löngu látinn....ég kynntist honum aldrei en Dúlla sagði mér annað slagið sögur af honum í gegnum handverk eftir hann....var listasmiður. Í gegnum tíðina hefur heimili hennar verið opið góðu fólki.....en Dúlla leigði herbergi út til skólakrakka....og ég var ein af þessum skólakrökkum....systir mín líka...Þór vinur minn....Billi fyrrverandi kærasti minn leigði líka um tíma hjá henni.....frænka hans og fleiri ættingjar Dúllu....bara gott fólk.....
Ég bjó hjá Dúllu haustið 1994 en þá stundaði ég nám við VMA og æfði blak með meistaraflokki KA.....Það var alveg BEST að vera hjá henni.....hún lét manni sko líða vel.....og okkur kom svoooo vel saman.....heimili hennar stóð mér allt til boða svo ég eiginlega bjó bara í öllu húsinu og ég man að oftast þurfti ég að hálfpartinn rífast við hana um að borga leigu....átti að borga 10.000kr en hún lét mig sjaldnast borga.......svo elduðum við okkur saman....spjölluðum um allt á milli himins og jarðar....hún gaf mér gömul föt af sér því hún vissi hve mikið ég elska gömul föt.....svo var það eitt sem ég gleymi aldrei....stundir sem við tvær áttum.....þá sátum við saman í sófanum og horfðum á teiknimyndir.....og hlógum....ah ég heyri hlátur hennar núna þegar ég skrifa þessi orð....sé hana fyrir mér með yndislega brosið þar sem hún lítur á mig.....og ég tek í mjúka hönd hennar og kyssi hana á kinnina....það gerði ég alltaf þegar við sátum svona saman....hún hafði einstaka húð....svo mjúka og yndislega....og .....æh ég sakna hennar.....mikið á ég eftir að sakna hennar.......tárin steyma fram .....ég vildi að ég hefði geta séð hana....haldið í hönd hennar og kysst hana á kinnina áður en hún kvaddi.....systir mín hefur séð um það fyrir mig....enda Hafdís sys búin að halda mestu sambandi við hana.....enda nágrannar......
Dúlla var ávallt viðstödd veislur heima hjá sys minni.....stundum sá ég bílinn hennar á Húsavík en henni lét sig ekki um það muna að renna á þeim gamla inn á Húsavík.....
Ég mun aldrei gleyma henni....og þegar ég kem á Aey þá er það enn vani að líta í áttina að húsinu hennar og ath hvort bílinn sé fyrir utan....hvort hún sé heima.....
Ég hitti Dúllu síðast í andyrinu á Hagkaup á Aey.....þar sat hún á stól og beið eftir fólki sem hún var með að versla....sat með mjúku hendurnar í kjöltu sér og sama brosið á vörunum.....dásamleg kona....dásamleg.....manneskja sem ég mun alltaf líta upp til.....einstakt hvernig hún tókst á við lífið.....lífið án mannsins sem hún missti og barnanna sem hún aldrei eignaðist......
Ég var mjög stolt af því að geta kynnt Stefán fyrir henni.....konunni sem ég hafði sagt honum frá......Hún tók í hönd hans og kynnti sig: Halldóra.......og ég man að ég hugsaði....auðvitað kynnir hún sig með sínu eigin nafni en ekki gælunafninu....auðvitað....en mér hefur alltaf fundist Halldóra svo fallegt nafn....lítil sæt stelpa á Húsavík sem heitir það...og svo auðvitað Dúlla mín.....en stundum kemst maður í kynni við fólk sem ekki er að gera neitt gott fyrir mann og þá oftar en ekki fer maður að þola illa eða bara ekki nöfn.....það sama gerðist með Halldóru nafnið....en hvernig sem það nú er þá finnst mér þetta nafn algjörlega bara fallegt....það er bara þannig.....en Halldóran mín er Dúllan mín.....og allt sem hún snerti....allt sem hún sagði.....og gerði var vel gert...var gert af heiðarleika og fegurð sem skein svo skært úr hjarta hennar.....Mikið er ég sæl með það að hafa séð inn í hjarta hennar....snert það og fengið að vera partur af því.....minning um konu sem í mínum huga er tákn góðmennsku og alls þess sem ég vil bæta mig í mun lifa og vera í mínu hjarta svo lengi sem ég lifi.....takk fyrir allt elsku Dúlla mín....ég mun tala við þig....og ég veit þú munt heyra í mér......saman munum við svo brosa og haldast í hendur.....þín Hilda

Friday, November 7, 2008

að blogga sig frá hlutunum...

Hæ....kannski eru allir hættir að tékka....en ég ákvað að ég skyldi henda hér inn einni og einni færslu....fann að ég ,,þurfti" stundum að blogga mig frá hlutunum og líka eftir ,,kvartanir" frá vinum og ættingjum um að halda áfram að blogga....well...svo það er allt í lagi að gera það...blogga stundum....þegar ég þarf...eða ekki þarf....hvað þarf maður svo sem...veit ekki...en hér er ég allavegna....og kem til með að setja inn eina og eina færslu þegar mig langar til.

Var að hugsa um fyrirsögnina á síðasta bloggi....hún kom upp í hugann hér eina nóttina þar sem ég gat ekki sofið vegna ákveðinna ástæðna.....hef annars sofið frekar illa að undanförnu....verið mjög veik og lasburða almennt....fékk lungnabólgu og svo nældi ég mér í eitt stykki ælu-og drullupest...næs.....eða þannig....nokkur kg runnu af við það helvíti en þau máttu fara...annað og verra er að ég hef enga lyst á mat og er að reyna að koma niður einhverri næringu til að halda þreki.....eníveis...margt hefur gerst....einn mjög slæmur hlutur fyrir mig.....sendibréf frá manneskju sem ég vil ekkert vita af.....draugur úr fortíðinni sem virðist ekki geta slitið sig frá mér.....og því vitna ég til fyrirsagnarinnar hér að neðan....því þessar fyrritíðarmyndir....einmitt í myrkrinu svarta....þær hafa magnast eftir að ég las þetta ömurlega bréf.....sem ég í rauninni skil ekki alveg afhverju mér var sent....en sennilega er tilgangur þessarar manneskju að minna á sig....krafla í sárið sem ég hef verið að vinna vel og vandlega í að láta gróa....eyðileggja.....ég veit ekki....afhverju þarf fólk að láta svona? getur það ekki skilið að það sem er í fortíðinni er best geymt þar?! heldur heilbrigt fólk ekki bara áfram með sitt líf ?! ég veit það ekki.....ég mundi allavegna gera það....sumir eru undirförulir....má líkja þeim við epli....skemmt epli....þar sem skemmdirnar sjást stundum ekki utan á....það er ekki fyrren þú kemst að kjarnanum ....opnar eplið að þú sérð að það er skemmt....þess vegna sker ég alltaf epli í tvennt áður en ég borða það....þó það glansi og líti út fyrir að vera girnilegt...fallegt og djúsí....þá er það kannski skemmt ...myglað og ógeðslegt að innan....eins og þessi manneskja sem sendi mér eitt súrasta bréf sem ég hef fengið á ævinni.....

Eftir lesturinn.....sem vissulega rifjaði því miður upp svo miður óskemmtileg atriði úr mínu lífi....og svo illa hefur mér liðið að ég hef upplifað mig á gömlum stað....á gömlum tíma....í verstu mómentum lífs míns....svo raunverulegt að ég hef grátið.....Ég reyni eftir fremsta megni að láta þetta ekki á mig fá en staðreyndin er sú að ég er hrædd....og óttast um mitt eigið líf....eins og ég gerði á sínum tíma....ég óttast líka um fjölskyldu mína þó svo að ég reyni að telja mér trú um að þetta muni ekki snerta hana....en ég er fjölskylda mín...er hluti af henni...og það sem hendir mig kemur þeim að sjálfsögðu við.....

Ég held að mjög fáar manneskjur geri sér almennilega grein fyrir hræðslu minni...nema þeir sem vita hvað ég er að tala um og það eru fáir....og þeir sem hafa orðið vitni að mannófreskjunni sem hér um ræði....mannófreskja sem er eins og eplið sem ég lýsti hér áðan....nema að þetta epli er farið að sýna skemmdir utan á líka...ef vel er að gáð.

Ég hef því ákveðið að leita til lögreglunnar.....búin að koma því í kring....til að vera við öllu búin....því það fylgir hótun í bréfinu.....en ég er líka skilin eftir í óvissu....og hún er hryllileg....að vita ekki hvenær ,,atburðurinn" mun koma til með að eiga sér stað.....

Hafið þið einhvern tímann óskað að þið hefðuð aldrei kynnst einhverri manneskju? Þess hef ég....eftir að hafa endurupplifað ömurlegustu atburði lífs míns þá get ég ekki annað.....hélt ég þyrfti ekki að takast á við þetta aftur....en þessi mannófreskja ætlar ekki að leyfa mér að njóta þess.....ætlar sér bara eitt....hversu tilgangslaust það er fyrir alla aðila.

Og hvernig er það....að fólk skuli þurfa ....mörgum árum eftir að það sleit samskiptum....alltaf að vera með bögg? skil það ekki.....senda bréf...sms....jafnvel hringja eða what ever....senda ,,,óvart" meil eða sms með svo litlu sem einu punkti.....til hvers? til að pirra ,,nýju" manneskjuna? minna á sig? verst þykir mér þegar börn eru í spilinu.....og þau jafnvel notuð til að hafa samskipti eða ekki samskipti....bara notuð í eitthvað fáráðnlegt útspil/leikþátt/rugl af hálfu aðilans sem augljóslega er enn í sárum eða enn í hefndarhug eða enn ekki búinn að ,,get over it"......held að sumir ættu að leita sér hjálpar áður en það fer enn verr með sjálft sig...því það er það sem það er að gera....fara illa með sjálft sig....og ef það vill það endilega þá getur svona fólk bara verið í því að eitra fyrir sjálfu sér en ætti að láta annað fólk í friði...og hana nú! þoli ekki svona...heyri alltof oft svona sögur frá vinum mínum....eníveis...nóg um þetta kannski....er bara fústreruð!

En það sýnir sig svo sannarlega þessa dagana hverjir eru sannir vinir mínir....á fáar en mjög góðar vinkonur sem láta sér annt um það sem ég er að gera og ganga í gegnum....lætur sér annt um fjölskyldu mína....hvernig okkur gengur í allt og öllu....þessum veikindum sem hafa herjað á okkur núna....það þykir mér vænt um....því ég geri það sama fyrir mína vini....ég fylgist með...hringi...msn....sms...tékka....ráðlegg...hjálpa...samgleðst og allt það....þið vitið....og því finnst mér ekkert ömurlegra en þegar ákveðið fólk sýnir kannski sitt rétta andlit....það talar bara við mann þegar eitthvað er að gerast í þess lífi....merkilegt...ekki merkilegt...bara þegar það þarf á mér að halda...að veita eyrað mitt...hlusta...ráðleggja....og allt....en svo....svo heyrist ekkert frá því.....ég er þannig að þegar ég hef reynt að hafa samband í ákveðinn tíma og fæ lítið eða ekkert svar....þá hætti ég bara...þeir sem þekkja mig vel vita að ég er hreinskilin...ég segi hlutina umbúðalaust...segji ef eitthvað fer í taugarnar á mér....og ef ég vil ekki svona eða hinsveginn framkomu....en ég er líka þannig að ég segi fólki það bara einu sinni...kannski tvisvar og þá á það líka að vera komið í gegn...nú ef ekki...þá getur það átt sig....ég nenni ekki að eltast við fólk sem er bara með hugan í kringum sjálft sig og líðandi stund....ef það getur ekki gefið sér 5-10 mín til að heyra í manni þá þykir mér það ekki merkilegt.....ég er kannski norn núna en ég er orðin of gömul til að gleyma...það er bara þannig....ég er of þroskuð til að standa í rugli....ég hef hreinsað áður til að geri það kannski aftur....og þá bara um leið og það þarf.....auðvitað á ég vini sem ég hringi einstaka sinnum í og það eiginlega aldrei í mig....en á milli okkar ríkir sérstakt samband....ekki hægt að útskýra hér....auðvitað tekur maður tillit til aðstæðna fólks og það geri ég við mína elstu og bestu vini.....en eins og Ólafur Stefáns sagði svo snilldarlega hér eitt sunnudagskvöldið: vinir eru þeir sem taka á móti þér með brosi, sama hve langt eða stutt er síðan þú hittir þá. Þessu er ég sammála.....ég veit hverjir eru svona vinir mínir....og sem betur fer eru það flestir vinir mínir....þessir vinir segja líka ekki ónærgætna hluti við mann....þar sem tími og space spilar auðvitað inní.....

Eníveis.....röfl kannski...veit ekki.....annars erum við Júlían hér að horfa á skógarlíf....og maulum á smá nammi....Emelíana fyrir norðan í slökun hjá ömmu og afa þar sem hún mátti ekki fara í skólann alla vikuna og var því brugðið á það ráð að senda hana í sveitina til mömmu og pabba....þar hefur hún það sko gott....Stefáninn minn er að vinna....hann er alltaf svo duglegur....fór í rjúpur í morgun með Jónsa frænda sínum.....allt er fínt bara....fyrir utan þetta smá drama hérna með bréfið....en það líður hjá....eins og allt annað sem skiptir litlu máli.....ætla að reyna að næra litla kroppinn minn sem hungrar í mat en klígjar við flestu.....góða helgi öll sömul....ciao