Á morgun verður þessi sæti og frábæri strákur 29 ára!
Það sem mér finnst svo magnað við hann er það að hann er alltaf í svo góðu og jákvæðu skapi....til í allt og ótrúlega duglegur og fylgin sér. Hann er góður pabbi...góður kærasti og mér finnst ég endalaust heppin að hafa kynnst honum og náð í hann! Hann er duglegur og klár....syngur best og semur falleg lög. Ég gæti skrifað langa ritgerð um kosti hans....en þá væri ég nú sennilega farin að sánda montin hehe....og það ætla ég ekki að fara útí hér.
Eníveis...ég lofaði Guðrúnu mágkonu að stríða bróður hennar vel og duglega á því að þetta væri nú síðasta ár hans sem tuttugu og eitthvað....nú væri alvarleikinn framundan og ellin...hehe....og aðsjálfsögðu mun ég standa við gefið loforð! Annars finnst mér svo fyndið að Stefáni finnst ég alltaf vera 3 árum yngri en hann....ég ætla bara að leyfa honum að finnast það eins lengi og hann vill....þó ég sé bara 23 ára...djók...það er frábært að ná þrítugsaldri skal ég segja ykkur....þið sem eruð ekki enn orðin það eigið eftir að upplifa stórkostlega hugarfarsbreytingu....það gerast nefninlega hlutir við það að ná þessum aldri....þá fer lífið loks að byrja!!!
Jæja...nóg að rugli í mér um þetta....en samt...aðeins um þroska....ég hélt að þegar fólk gengi í gegnum ákveðin skeið....ákveðna hluti...að þá mundi að þroska það til hins betra...þannig að það gerði ekki sömu mistök að áður....Ein vinkona mín sagði við mig um daginn að hún hefði þurft að labba fast á vegg til að átta sig á stöðu mála....hún vissi alveg hvað var í gangi og ég náttúrulega búin að segja henni það 100 sinnum....en alltaf hélt hún áfram að gera sömu vitleysuna....þangað til að hún labbaði á vegginn...fast eins og hún orðaði það.
Kannski er það málið...að sumt fólk heldur áfram að segja og gera sömu vitleysuna bara vegna þess að það labbaði ekki nógu FAST á vegginn....? ég veit ekki...sumir eru náttúrulega bara siðblindir og satt best að segja virðast vera illa upp aldir....ég að minnsta kosti er farin að segja það um ýmsa sem mér finnst haga sér illa....það sé bara fólk sem er illa upp alið eða jafnvel er búið að gleyma því sem mamma/pabbi kenndu þeim um mannlega framkomu....nú svo eru alltaf til foreldrar sem hreinlega kenna börnum sínum enga mannasiði....
Allavegna....þá finnst mér með ólíkindum þegar fólk hagar sér illa....segir hluti um aðra bara...að því virðist...til að sverta það...nú eða reyna að upphefja sjálft sig....svoleiðis fólki hrapast illilega....og það endar alltaf þannig að það fær það í bakið með einu eða öðrum hætti.
Annars er ég að reyna að halda því sem ég sagði hér neðar einhverntímann....læt þetta fólk bara sem vind um eyru þjóta....þó ég sé viðkvæm í eyrunum...sérstaklega fyrir vindi...þá set ég bara upp húfu...hún er góð og varnar alltaf einhverju!
Ég veit að ég hef oft sagst vera hálfgerð norn....og að vissuleit er ég það því ég veit alltaf hvenær er verið að ljúga að mér....eða hvenær eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera....Það getur því verið lúmskt gaman að ,,stríða" fólki....æi kannski ekki beint stríða en já...svona horfa framan í fólk sem hefur talað illa um mann og jafnvel logið upp á mann...horfa framan í það...horfa á líkamstjáningu þess og sjá hvernig það hálfpartinn engist um vegna þess að það veit upp á sig skömmina....og að koma vel fram við svona fólk...sem á það samt ekki skilið....er nákvæmlega það sem ég geri....í flestum tilfellum...kannski 1-2 undantekningar....eníveis....ég er ekki vitlaus og þó ég láti eins og allt sé ok þá veit ég sannleikann.....ég leggst bara ekki á sama low plan og sumir.
ég hef í gegnum tíðina oftast fengið eitthvað á tilfinninguna þegar ég er í nýjum aðstæðum...t.d. þegar ég er að kynnast nýjum einstaklingum.....ég finn mjög fljótt hvort mér líkar vel eða illa við manneskjuna....hvort það sé einhver vafi í mér eða ekki....ég veit ég get verið oft á tíðum mjög dómhörð varðandi hluti og málefni...en ég reyni að gera það ekki með fólk....því flestir eiga skilið að sýna sig...og oftar en ekki sýnir fólk ekki alveg sitt rétta andlit strax....það er ekki fyrren maður kynnist þeim betur að þessi litlu smáatrið sem gera hvern einstakling að því sem hann er fer að skína í gegn.
Ég lennti í þessu....kynntist mannesku og fékk strax einhvern illan bifur á tilfinninguna....og því miður þá hlustaði ég ekki á sjálfa mig...eins og ég annars oftast geri....nei ég vildi held ég sanna eitthvað....endaði nú illa á hausnum við það...hefði betur átt að fylgja mínu innsæi....og þá kannski hlusta líka betur á allt í kringum mig sem sagði NEI.....skondið hvernig fólk/vinir í kringum mann getur látið sig varða um eitthvað svona...gott mál og þeim gengur flestum vel til....og núna...eftir á að hyggja er ég ótrúlega þakklát og glöð að sjá og heyra að þetta fólk ...sem vildi mér bara vel....hafði 100% rétt fyrir sér....fólk sem hefur alltaf staðið sig og er fyrir löngu búið að sína hver það er og maður getur verið svo fullviss um að ganga að þeim vísum.....það eitt lætur mér líða vel....og það er einmitt fólkið sem ég sé....heyri og finn....allt það sem ég sagði hér neðar....að horfa á það sem er í kringum mig....og það er besta fólkið....vinir mínir og fjölskyldan!
En jæja...áfram með jákvætt....ég er orðin þvílíkt spennt fyrir skólanum...byrja á fimmtudaginn...vona samt að stundataflan breytist aðeins...er ekki alveg sátt við að vera í tímum kl 15....kannski fáum kennarana til að flýta tímunum um klukkutíma...það væri betra...æi...þetta er bara svo að ég geti skuttlað í fimleika og svona...eníveis...er í spennandi fögum: sviðslistafræði, þjóðfræði samtímans og söfnun þjóðfræða....allt áhugavert og spennandi.
Jamms...svo er framundan afmælisveisla....hittingur...og auðvitað ferð norður á þorrablót í Mývó...yeah...stuð stuð stuð...hlakka mega mikið til...ekki verra að vita hvaða hljómsveit verður...en það er Von...þeir eru fínir á böllum og auðvitað sæti frændi minn á trommunum....svo nú verður tekið á því...og tjúttað fram á rauða nótt!!! get ekki beðið....
En jæja...best að gera eitthvað skemmtilegt...nota síðustu dagana í fríinu og dunda mér....hafið það gott og góðar stundir fallega og góða fólk...

|