Friday, January 16, 2009

Föstudagskvöld

Jamm....það er föstudagskvöld og so far er sjónvarpsdagskráin leiðinleg punktur....

og þar sem ég er óhemju löt í dag þá nenni ég ekki að gera það sem þyrfti annars að gera...s.s. skúra...lesa ....og gera magaæfingar....er með feituna í dag sko...

Eníveis...átti svo snilldar góðan dag í gær...skólinn byrjaði og ég kynntist 2 af 3 kúrsum vorannar....fyrst þjóðfræði samtímans sem er ógó spennó...og EKKERT lokapróf...jey.....svo kom ég heim...las á meðan Stefán fór í smá leyniferð niðrí bæ...hann kom svo heim og ,,analæsuðum" við leyndóið.....fór svo í skólann og kynntist kúrsi nr. 2 sem er sviðslistafræði....ótrúlega áhugavert....eins og ALLT sem ég læri í þessari þjóðfræði....besta nám í heimi! Nú Heiða litla mín kom svo og við skelltum okkur í vesturbæjarlaugina....kósýuðumst í pottinum og kjöftuðum heilmikið....fórum svo heim og elduðum saman taco og tortillur...ummm namm namm....góð stund enda Heiða einstaklega skemmtilegur félagsskapur.

Jæja...í dag fór ég svo í kúrs nr. 3 sem er söfnun þjóðfræða....mjög mikilvægur kúrs við undirbúning alls þess sem mín bíður þegar ég legg heimin að þjóðfræðifótum mínum.....og aftur...EKKERT lokapróf...já og reyndar fer ég ekki bara ekki í neitt lokapróf í maí því kúrs nr. 2 inniheldur bara eitt lítið munnlegtpróf í lok aprí...hlakka til að fara í það....þannig að ég er bara búin þegar kennslu líkur...halelúja fyrir það....jey

Vitiði....þetta nám er svo akkúrat fyrir mig...ég elska það....er alltaf að sjá það betur og enn betur þegar á líður....því ég hef alltaf verið frekar þjóðfræði-þenkjandi....og eins og ég kom inná hér einhverntímann þá er ég nánast alltaf að horfa á fólk og hluti og umhverfið allt með pælingum....spái í laufblöð muniði...hehe....já og hvernig fólk aktar....í sviðslistafræðinni verður farið inn á það að miklu leiti.....

Ég hef lúmskt gaman að því að sjá hvernig fólk bregst við...hvernig það svara eða ekki svarar upplifunum eða áreiti eða bara hverju sem er.....og það þessu gefnu verð ég að segja smá sögu....en þannig er með mig að ég er mjög hreinskilin....ef ég reiðist fólki þá vil ég láta það vita af því...tala um hlutina og reyna að gera þá sem besta....laga.....Var einmitt að tala við eina vinkonu mína um daginn sem sagði mér að hún hefði frétt að vinkona hennar væri í fýlu við sig en hún vissi ekki afhverju....nú við ræddum þetta og vorum sammála um að auðvitað ætti þessi svokallaða vinkona hennar að tala við hana og segja afhverju hún væri fúl.....vinkona mín á ekki að þurfa að leita eftir svörum eða giska á það.....en já...svona getur fólk nú verið óþroskað....eða er þetta kannski hræðsla að einhverju leiti? ég held það....ég held að ef þú veist upp á þig skömmina þá þorir þú ekki að feisa manneskjuna með það....því finnst fínt að fela sig á bakvið eitthvað ...eða þá einhvern. Þessu lenti ég í fyrir ekki svo löngu síðan....ég reiddist manneskju og ákvað svo að tala um það við hana....því það er minn stíll að tala út um mál...bara í góðu...en manneskjan þorði ekki að feisa mig....allt endaði þetta svo illa og þá aðallega vegna þess að samskiptin fóru fram á netinu...sem er b.t.w. engin vettvangur fyrir tilfinningar....ég reiddist enn meir og sagði orð sem hefðu ekki átt að vera sögð á þessum stað....eníveis...eins og ég sagði þá fór þetta í lokin ekki vel....sem skildi eftir sig 2 reiðar manneskjur.

Mér finnst ekki gott að hafa hlutina neikvæða.....enda er ég vog...og réttlætisskálarnar mínar þurfa að vera jafnar....en þær ná því ekkert alltaf...allavegna....þar sem ég hef ákveðin einkunarorð að leiðarljósi í mínu lífi og hef haft síðan ég var lítil....en það eru orð sem móðir mín kenndi mér....sá vægir sem vitið hefur meira.....þá ákvað ég...þrátt fyrir að endilega finnast að ég ætti að taka af skarið og biðjast afsökunar....en þá ákvað ég að gera það...fyrir það sem ég sagði...þó svo að eins og ég segi...að mér hafi fundist ég þurfa þess....mér fannst ég nefninlega alls ekki vera sú sem ætti sökina....en....það á hins vegar ekki að snúast um það...fólk á að vera nógu þroskað til að geta beðist afsökunar og reyna að hafa lífið þannig að manni líði vel og öðrum í kringum mann....Ég var hins vegar alveg ákveðin í því að hafa þessa manneskju ekki í kringum mig meir því ég þarf ekki á fólki að halda sem sýnir mér ekki virðingu....virðingu fyrir því sem ég hef gert í þeirra þágu! Jæja....ég sendi afsökunarbeiðini sem var hunsuðu....það fannst mér ómerkilegt.....en lýsti kannski manneskjunni best sem fékk hana....afsökunarbeiðni mín fannst mér lýsa mér.....þannig að þegar upp var staðið eftir þetta atferli stóð ég uppi sem meiri manneskja...eða það finnst mér....og reyndar fleirum.....en já svo leið tíminn og ég ákvað að senda annan póst...honum var svarað en innihald svarsins var það mesta krap sem ég hef lesið...fyrir utan ógeðis ruglhótunarbréfið frá mínum fyrrverandi geðsjúklingi....eníveis....því líkur tvískinnungur sem þetta svar var....og ég skal viðurkenna að í hálfan dag var ég reið yfir því....en ég reyni nú að láta hlutina ekki fara í taugarnar á mér lengur en það og hugsaði með mér að svona mannvera ætti ekki skilið að ég eyddi hálfum degi í að hugsa um hve ómerkileg hún væri....svo nú var hugurinn komin á beinu brautina og þar af leiðandi þessi manneskja út í eyðimörk fyrir mér og ég er ekkert á leiðinni þangað neitt.....jæja...þrátt fyrir að hún hafi í svari sínu sagt að hún væri búin að fyrirgefa mér....þá baðst hún ekki afsökunar á því sem hún sagði við mig....og margt af því var mjög særandi fyrir móður...sem eg er.....já og meira að segja segist hlakka bara til að hitta mig næst þegar við myndum rekast á ...hvar svo sem það yrði....jæja...2 dögum síðar eða svo fer þessi sama manneskja og eyðir tíma í það að bakatala mig og ljúga upp á mig.....HALLÓ....er þetta nú ekki bara æpandi geðveiki?? ég skil ekki svona....og það eins sem ég var búin að vera að reyna var að gera hlutina bærilega þannig að fólk gæti verið sátt og ánægt....í þægilegu umhverfi.....NEI....þarna fauk heldur betur í mína....óréttlæti er eitthvað sem ég HATA....þetta var punkturinn yfir iið.....nú var svo komið að mig langaði mest til að ....ég veit það ekki....eitthvað....eitt vissi ég....að afsökunarbeiðnin stóð ekki lengur...hana dró ég tilbaka....sendi reyndar engan póst því það var ekki hægt lengur....já menn eru klókir...eða hvað...hræddir kannski? sumt fólk...ótrúlegt....en ég veit að þessi manneskja tók statusinn minn á facebook greinilega til sín....mér finnst það bara SNILLD......ég er sjaldan bitch og eiginlega aldrei....en þarna fór ég fínt í það....það er nefninlega þannig að fólk sem veit upp á sig skömmina...það tekur til sín það sem það á....og það veit hvenær einhverju er beint að því....þannig að þessi manneskja er alveg búin að sanna sig fyrir mér....og sanna allt sem ég hafði verið vöruð við....en eins og ég sagði áður hér að neðan....þá vill maður ekki láta segja sér hlutina...a.m.k. ekki ég...þarf að komast að þeim sjálf...og dæma sjálf af minni eigin reynslu.....nú er ég búin að því....og engin sagði I told you so við mig....þó ég hefði ekki látið það fara í taugarnar á mér....það fólk er allt búið að brenna sig á ljótum lygum og óheiðarleika þessarar manneskju....svo það hefur varann á sér....

Merkilegt hvað sumir virðast aldrei læra....þroskast.....en það er ekki allt fullkomið í þessum heimi....mér finnst bara svo ótrúlega óþolandi að þurfa að standa í að díla við svona aðstæður...hálfgert gelgjudæmi....og þetta virðist bara vera á meðal stelpna...strákar láta aldrei svona.....og ætli allt verði ekki brjálað núna? en mér er alveg sama....það verður það þá bara.....ég ætla ekki að taka þátt í þessum skrípaleik lengur.....ég stimpla mig út frá þessari vinnu....takk!

Svona í lokin ætla ég að tala um eitthvað skemmtilegt....svo þessi færsla verði ekki bara eitt reiði-púst...hehe....en já...Stefán minn átti afmæli á miðvikudaginn.....auðvitað lögðum við stelpurnar hans okkur fram við að gera daginn sem bestann.....ég gaf honum spes leynigjöf rétt eftir miðnætti...sem engin nema hann fær að sjá sko....híhí....nú svo bakaði ég æðislega appelsínusúkkulaðiköku...skreytti hana með frosnum bláberjum frá Húsavík hehe....og jarðarberjum....við gáfum honum svo geggjaða skó....hvíttgaddaólabelti og æði ilmvatn....rosa ánægður audda.....hann hafði svo boðið fólki í mat svo ég eldaði kjúklingasúpu og auðvitað kakan og ís með í eftirrétt....ótrúlega næs dagur....!!! gaman gaman.....jæja...ætla að lesa smá....helgin verður með ágætasta móti....þrátt fyrir að Stefán sé að vinna....ég ætla út að hlaupa í fyrramálið...Emelíana á æfingu...svo kemur Elín vinkona í heimsókn....Þórhallan mín er búin að boða komu sína....Við ætlum svo að elda kjúkling þegar ég verð búin að skúra pleisið.....svo er von á Kollu og Alla´um kvöldið í spil....það verður gaman...jæja....fínt að vera búin að létta aðeins af sér....þá er það frá....the rest is history....góða helgi...Hi