
Svoooo....ef þið lumið á góðum brandara....sögu....eða eigið húðflúr þá megið þið láta mig vita....ég er til í allt!
Annars er ég ekki svo hress....læt hluti fara í taugarnar á mér...s.s. þá staðreynd að þegar ég ætlaði að skuttla Emelíönu á fimleikaæfingu í dag þá fór bíllinn minn ekki í gang...heyrðist bara eitthvað mjög svo skrýtið hljóð....Allt svona auka vesen núna fer ekki vel í mig....ég hef um nóg annað að hugsa og gera og þarf á því að halda að hlutirnir og tíminn gangi næstum fullkomnlega upp!
Jæja....svo er ég líka með svona ,,ég þarf" áráttu núna....þarf nauðsynlega þetta og hitt...langar að kaupa mér föt...langar að skreppa til útlanda....langar á djammið....langar til að hafa meiri tíma fyrir sjálfa mig....langar langar þarf og vantar.....aahhhh....
Emelíana sagði sagði skondið við mig í dag þegar við sátum við matarborðið og snæddum soðna ýsu....þá sagði hún: ,,sko mamma...þú ert nú oft að skamma mig og Júlíu ha? og sko...þegar ég og Júlía eignumst síðan börn og þau eru óþekk og við þurfum að skamma þau þá er það allt þér að kenna! Nú? segi ég...afhverju? þá segir hún: já sko...af því að við erum bara börn og við lærum af foreldrum okkar!
Jesú minn....ég gat nú ekki annað en brosað hehe...þessir litlu snillingar sem ég á....ja hérna...
Annars hjálpar nú alltaf að blogga sig frá hlutunum....ég þarf bara að pústa um annaðslagið...get vel ímyndað mér að það sé ekki gaman að lesa um það hinsvegar....eníveis....þegar ég er bissý þá vil ég ekki þurfa að græja mat....vaska upp eða stússa í þvotti....nenni ekki að horfa á þegar stelpurnar sýna mér einhver fimleikaatriði...ó já...sú litla er sko að apa eftir stóru sys í þeim efnum.....nei þá vil ég bara fá frið....en ég veit alveg að ég er mamma og húsmóðir og skólastelpa og kærasta....stundum þarf maður bara að fá tíma til að vera maður sjálfur....vera bara Hilda!
Ekki skylja að ég sé eitthvað óánægð....er bara í þungu skapi....læt alltof oft smá hluti sem vel er hægt að laga slá mig út af laginu.....þið vonandi skiljið. En sem betur fer er ég ekki lengur að taka inn á mig leiðinlega slúðrið um mig...ó já...það er sko í gangi enn....meira hvað ég get verið merkileg...að fólk eyði tíma í partýi til að tala um mig....kannski að maður ætti bara að líta á þetta sem hrós??? heiður??? veit ekki....aumingjas grey sem eru að þessu annars....ætti að taka aðra sér fremri til fyrirmyndar og hætta þessu auma og leiðinlega háttarlagi.....annars kemur allt svona í bakið á fólki...leiðinlegt fyrir það....en á endanum uppskerðu eins og þú sáir...það eru engin ný vísindi á bak við það....bara leiðinlegt að vita að fólk...sem gæti annars verið svo ágætt...sé að mála sig svona út í horn í þessum efnum.....hálf vorkenndi því þegar ég heyrði viðbrögð fólks sem varð vitni að þessu baktali....en það fólk sagðist bara loka eyrunum fyrir svona slúðri...það vissi alveg hvernig viðkomandi væri innrættur. Gott að heyra það!
En....ætli það verði ekki alltaf einhverjir sem sjái ,,hag" sinn í því að níða mig niður....það fattar kannski síðar að það er að gera það á sinn eigin kostnað!
Já....það er nú gott að geta hunsað svona núna...annars er ég gjörn á að taka hluti inn á mig....sérstaklega þegar ég veit að um ósannindi er að ræða....myndi örugglega gera það þó ef einhver sem mér þykir mikið til koma gerði það....annars er ég ekkert að kippa mér upp við þetta lengur.....læt það ekki fara í taugarnar á mér....brosi bara og hlæ stundum meira að segja.
Og þó svo að bílinn og þetta auka vesen sem sennilega kostar mig auka fjárútlát sé að pirra mig þá er svo margt annað sem gleður...og um það er vert að hugsa....t.d. öll þessi börn sem væntanleg eru í heiminn ....að geta glaðst með vinum og ættingjum er mikilvægt og hollt....að láta fólk sem manni þykir væntum vita það....og segja það sem manni finnst.....í stað þess að hugsa það bara.....
Og nú ætla ég að hætta að láta þessa efnislegu hluti fara í taugarnar á mér....það reddast alltaf allt með svoleiðis....peningar...nóg til að þeim...bara grafa þá upp hehe....og kannski ég grafi bara hausinn minn ofan í koddann núna....og reyni að sofna....vonandi dreymir mig eitthvað fallegt og gott í nótt....þó svo að Hermann Hreiðarsson fótboltakappi sé nú alveg ágætur og fínn þá nenni ég ekki að dreyma hann aftur í nótt...hehe...dreymdi hann sem sagt í gær....var eitthvað að þvælast með honum og hann var pínu lítill og feitur....jesú minn....jæja...góða nótt! Hi




|