Saturday, January 31, 2009

Góðir hlutir gerast hægt

Voðalega var ég sæt!


laugardagskvöld og ég er að fara að læra....how sad? Stefán að vinna...og stelpurnar að horfa á mynd og borða popp....næs hjá þeim.

Annars hef ég svo sem ekkert merkilegt að segja...bara smá að fresta því að lesa og gera verkefni...borða eins og vitfirrt manneskja enda bumban eftir því....NEI ekki ólétt...það virðist vera misskilningur hjá mörgum þessa dagana...haha...nokkuð margir spurt mig að því....ætli ég sé ekki bara svona feit??? nei...þegar ég tala um bumbu þá er það bara þessi sem hefur fylgt mér síðan ég átti Júlíu og ekki NENNT já ég segi það...ekki nennt að losa mig við.....er alltof ´góð við sjálfa mig....ætti kannski að fara að....já...úff...er alltaf á leiðinni að gera eitthvað af viti....hef ekki hreyft mig síðan...tja...svo langt síðan að ég man það ekki lengur....eníveis....

plan kvöldsins: lesa og læra smá....koma stelpunum í rúmið....horfa smá á sjónvarpið...ef það er eitthvað gott í því...kíkja á facebook (vani dauðans)....fara í sturtu og svo stunda smá tilraun....jább...ætla að prufa að setja á mig brúnkukrem sem Hanna vinkona mín lét mig fá....ætli þetta virki eitthvað??? kemur í ljós....

Annars langar mig sjúklega á djammið....er eitthvað djamm þyrst þessar vikurnar...skil´ett ekki....en jú...það verður tekið á því eftir tæpa viku....þá gerast spennandi hlutir...jæja...það þýðir ekkert að væla...ég er ekki á leiðinni út í kvöld...það er víst...

Annars var ég að uppgötva nýja hönnunarlínu...Starkiller...hafiði heyrt um hana? ég var bara að sjá hana í dag....sjúklega flott OMG mig langar í svo margt....vild ég væri múruð og gæti bara keypt ALLT sem mig langar í.....

Já bíllinn...haha...það er nú sagan sko...haldiði að hann hafi ekki bara farið í gang...ok...skal segja ykkur....ég hringdi á dráttarbíl því það þarf svoleiðis þegar um sjálfskipta bíla ræðir...má ekki draga þá...eníveis...ég fór svo í göngutúr í fallega veðrinu með Hönnu og þegar við erum að koma að húsinu mínu aftur þá sé ég dráttarbílinn...ég labba af stað í áttina að honum og sé þá að einhver maður er að keyra bílinn minn upp á dráttarbílinn....JÁ KEYRA.....bílinn minn í gangi og?....what....ég spyr svo gaurinn hvort hann hafi bara farið í gang....en hann sagði mér að hann hafi gefið honum start og að hann hafi verið svolítið lengi að fara í gang....þetta gerði hann því það var svo erfitt að koma dráttarkrókinum að bílnum mínum....jæja...bílinn í gangi og komin upp á pall....ég vissi ekkert hvað ég átti að gera...átti ég að biðja hann um að setja bílinn niður aftur? nei...þá væri ekki víst að hann færi í gang aftur...eníveis...ég hafði nú þegar borgað fokkings 8000kr fyrir þetta svo það var alveg eins gott að hann færi með bílinn....well....þá vissi ég allavegna að þetta var ekki tímareimin...og sennilega bara ónýtur rafgeymir....sem sagt bílinn minn...hann Raggi Bjarna er fyrir utan verkstæði í Kópavogi....og verður þar fram yfir helgi...svo kemur í ljós hvað er að honum.....samt pínu pirrandi...ó well...

Skólinn er fínn....mikið um skil á verkefnum í hverri viku....3 þjóðfræðidæmum skal skilað fyrir hvern fimmtudag.....á hverjum mánudegi fyrir kl 9 skal ég skila diary notes fyrir performance studies og í sama áfanga annan hvern mánudag skal ég skila fieldworks analysis....svo er nokkuð þétt skil í síðasta áfanganum....en fyrir vikið ENGIN LOKAPRÓF....næææsss......

Hef mikið velt fyrir mér hvort ég eigi að vinna í sumar eða ekki...hvað ég eigi að gera í Maí??? hef eiginlega ákveðið að nota þennan tíma til að safna heimildum fyrir BA ritgerðina mína....er með hugmynd sem er mjög kúl...það er í skoðun enn....en ef ég geri þetta sem ég er að hugsa um þá er ég komin enn lengra með að útfærslur á henni....sem gæti skilað mér aur...hum....segi síðar...ef ég fæ endanlegt samþykki fyrir ritgerðinni.....well...mig langar svolítið til að vera í Mývó í sumar...æi...ég er komin alltof langt áfram...1 feb á morgun og nægur tími...ennþá....eníveis....best að vinda sér í lesturinn áður en augun lokast.....kissknús...Hi