Saturday, January 17, 2009

Laugardagur

Hææ....ég ætla að setja inn eina uppskrift....hún er mega góð og ég mæli 100% með að þið prufið...verðið ekki svikin.....en hún er fyrir 6-8 fullorðna...ótrúlega drjúg...eníveis...here it goes:

Mexico kjúklingasúpa

3-5 laukar, saxaðir
2-3 hvítlauksrif, pressuð
1 chilipipar, saxaður (ég sleppi honum yfirleitt)
1 flaska Granini tómatsafi (fæst í Hagkaup, má líka vera annar tómatsafi)
5 dl kjúklingasoð
5 dl kjötsoð
1 tsk cumin eða koriander
2 tsk worchestersósa
1 tsk chilipipar
1 tsk cayennepipar (eða venjulegur pipar)
2 dósir maukaðir tómatar
1 kjúklingur brytjaður niður eða 4-6 léttsteiktar kjúklingabringur

Steikið laukinn ásamt hvítlauki. Setjið restina í pottinn fyrir utan kjúklingin. Súpan látin sjóða í 2-3klst. Kjúklingurinn settur út í síðasta klukkutímann.
Borið fram með rifnum osti, sýrðum rjóma, nachosflögum og guacamole (allt sett ofan á súpuna) og brauð með.
(Guacamole: 1 avocado mixað í mixer með 1 tómat og einu rifi af hvítlauk)


Sko ég sleppi alltaf chilipiparnum ferska...súpan er nógu sterk fyrir utan hann. Svo bý ég til kjúklinga og kjötsoð með því að nota bara vatn og mylja kjötkraft og kjúklingakraft út í...blanda saman og þá ertu komin með soðið. Svo nenni ég yfirleitt ekkert að léttsteikja bringurnar heldur sker þær bara í hæfilega bita og set út í súpuna....heilann kjúkling spái ég ekkert í....of tímafrekt...en kannski örlítið ódýrara að nota en bringur. Í heildina á súpan að sjóða í 2-3 tíma svo ég set bara kjuklingabitana út í c.a. þegar súpan hefur soðið í 2 tíma....en það getur auðvitað hver gert þetta eftir sínu höfði. Þetta er svo ótrúlega auðvelt...og hrikalega gott....og má alls ekki klikka á því að mylja svo ofan í súpudiskinn sinn flögunum....smá sýrðum rjóma ef þér finnst hún of sterk...og svo rifin ost....það er algjört möst....þetta fær mann alveg til að slefa....uppskriftin er líka stór og því upplagt fyrir stóra fjölskyldu...matarboð eða svo bara frysta restina og hita upp síðar....try it babys....jæja...ætla að fara að gera hluti...heyrumst síðar...já þið megið alveg láta mig vita ef þið prufið uppskriftina....bara svona forvitni í mér....eníveis...ciao