
Stefán á leið í partý...smart!
Fyndin svipur á Júlíu...með popp á leið í sveitina
Fyndin svipur á Júlíu...með popp á leið í sveitinaSpúkí augu í Skugga hans Óla

Stuð í matarboði í gömlu Vogum
Brynja Hilduskott

uuu kreisí systkini

Andrea með eitthvert töfranuddtæki....allir í slökun

Línan okkar sem við hittum því miður alltof lítið...fallegust!

Við LENGST upp í fjalli á brettum hehe


Stuð í matarboði í gömlu VogumBrynja Hilduskott

uuu kreisí systkini

Andrea með eitthvert töfranuddtæki....allir í slökun

Línan okkar sem við hittum því miður alltof lítið...fallegust!

Við LENGST upp í fjalli á brettum hehe
ok kannski ekki alveg...en allavegna í Hlíðinni
Hæ....æi við tökum fáar myndir...verðum bara að fá að stela hjá Guðrúnu mágkonu eða tengdamömmu....tókum samt slatta á videovélina....en...jamms.....þetta er bara smá brot hérna að ofan.
Annars erum við komin aftur suður og normal-líf við það að hefjast....Stefán á leið í vinnu en við Júlía dúllumst....skólinn minn byrjar ekki fyrren 15 jan svo ég á enn gott frí eftir....Emelíana kemur á sunnudaginn og fer svo beint í skólann daginn eftir...og Júlían þá á leikskóla....eníveis....rosa gott að komast norður ...vildi bara að við hefðum getað verið lengur....en það er stutt í næstu ferð...þá komum við á þorrablótið....má engin missa af því sko.
En jamms....ég ákvað að skrifa ekkert blogg fyrir norðan því lyklaborðið hjá tengdó er það stífasta í heimi og ég bara nennti ekki að hamast á því......ég er búin að fá aðra einkun sem var 8...en ég bíð enn eftir síðustu og mest spennó einkun...veit ekki hvort ég eigi að vera kvíðin eða hvað....æh...hún hlýtur að fara að koma.....
En já við sem sagt fórum beint upp í sveit (Mývó) á annan í jólum og beint í dinner...yndælis purusteik og með því....daginn eftir var svo hangikjötsveisla í Vogum 3 hjá Óla....það var líka dásamlegt....nú svo var auðvitað barnaballið....Júlían dansaði upp á sviði og svo voru þær frænkur hún og Tinnan rosa duglegar að labba í kringum jólatréið og syngja og gera allar hreyfingar.....litla Brynjuskottið var mikil Hildustelpa....eðlilega...ég er náttúrulega svo mikið æði hehe.....já og svo þurfti ég að kyssa einn jólasvein á ballinu....hann var nú bara sætur!
Við fórum svo til Húsavíkur 29 des og borðuðum hjá mömmu minni og pabba....mamma gerði auðvitað einn af mínum uppáhalds réttum....namm namm...ég hitti svo Sillu vinkonu í smá spjall á kaffihúsi....og svo kíktum við hjúin í heimsókn til Daggar og Gunna Illuga...alltaf frábært að hitta þau...mikið spjallað enda vorum við að skríða heim að ganga 3 um nóttina...well....svo brölluðum við ýmislegt og enduðum svo á að fara í sveitina mína Halldórsstaði....ég tók skurk í tiltekt á endalausa dótinu mínu upp á lofti....og henti og henti...ja eða sko ekki...fyllti 2 fulla ruslapoka af fötum sem ég ætla að gefa í Rauða krossinn.....hreinsandi að laga svona til hjá sér....í leiðinni fann ég svoooo fyndin bréf...gaf mér reyndar ekki tíma til að lesa þau nema eitt....ok þetta er sko fyrir tíma gsm síma og þar af leiðandi smsa....jesús hvað þetta var fyndið...eníveis....svo fórum við upp í Mývó og héldum áfram að hafa það gott bara....kíktum í Lónið m.a. og svo á bretti upp í Hlíð....Ég var sem sagt á Þórhöllu bretti og var að fara í fyrsta skipti á bretti....ok...ekki bestu aðstæður í Hlíðinni..hjarn og ómögulegt færi....en hey...ég stóð mig vel...stóð alveg 5 metra eða eitthvað hehe....
Well....áramótunum eyddum við svo hjá Guðrúnu mágkonu og co ásamt tengdó....það var æði....borðuðum hreindýralæri sem var bara gott sko....horfðum á þetta helsta í tv og fórum svo upp í svokallaðan Fjallaskála til að horfa á skaupið og skjóta upp.....Ég var auðvitað með upptökutækið á fullu þar sem ég er að aðstoða kennara minn við rannsókn....Mér fannst skaupið SNILLD...vel leikið og skemmtilegt.....frábært´líka að vera í Fjallaskálanum....skemmtilegt fólk...góður staður til að horfa yfir bæinn og sjá þar af leiðandi flugeldana vel...eiginlega best....Við komum svo börnum í hátt og kíktum í bæinn aðeins...allt svo ég og Stefán...tókum Sigurgeir og Arnór vini stefáns með...dönsuðum einn dans á Café Amour...hittum fólk og fórum svo að lulla....svo eyddum við gærdeginum í að keyra suður....allt gekk vel og er bara ágætt.....jamm svo nú veit ég ekki hvað ég á að skrifa meir....gott veður svo ég er að hugsa um að labba út með skottuna mína...heyri í ykkur...bæ


|