Sunday, January 25, 2009

Þorrablót og fleira skemmtilegt

vel uppalið barn!

Stefán, Garðar og Bryndís nýkomin af brettunum

Betu stillt upp og látið líta út eins og hún hefði líka verið á bretti hehe



Ég augljóslega á ekki töff brettafatnað en var samt sem áður klárlega BEST á brettinu þennan dag


Bryndís og Stefán upp í fjalli (örugglega að bíða eftir að ég kæmi LABBANDI upp)




Við Stefán gleymdumst út í bíl eftir Blótið...og þá gerðist þetta!





Heitustu píurnar á Blótinu







Heiða og Bryndís ótrúlega hressar og sætar







Moi og Stefán








Stefáni líður augljóslega illa á milli okkar...enda að kafna úr afbrýðissemi...við tengdó svooo heitar!








Tengdamamma og tengdapabbi sem skóflar í sig sviðasultunni











Það er auðveldast að þekkja Emelíönu svona....eða standandi á höndum










Sæta mín sem bráðum verður 10 ÁRA!!!!













Litla skvís að blása á sér hárið












Frjálsleg í svefninum....það er svo gott
Jæja...þá er helgin liðin og ný vika að taka við. Við fjölskyldan skelltum okkur norður í sæluna....ætluðum að leggja af stað seinnipart á fimmtudag en vegna hálku og hvassviðris frestuðum við því ....höfðum það extra kósý bara á fimmtud.kv, poppuðum og kúrðum öll saman upp í hjónarúmi og horfðum á Mamma mía....very næs....vöknuðum svo kl.5 um morguninn...græjuðum okkur og héldum svo af stað...komumst klakklaust norður...hittum mömmu mína og pabba við Einarsstaði og fóru stelpurnar með ömmu og afa til Húsavíkur....við héldum áfram upp í Mývó og vorum alsæl þegar loksins við komumst heim í hús....þar voru tengdó sem biðu okkar....við slökuðum á eftir ferðalagið en fórum svo að taka okkur til fyrir þorrablótið....
Blótið sjálft var æðislegt...ótrúlega gaman...góð skemmtiatriði og gott ball...allir hressir og kátir og bara já mega stuð...sjaldan skemmt mér eins vel á blóti eins og nú.....Nú daginn eftir vakti Stefán mig óvart....æi...hann getur nú verið rómó strákurinn svona þegar hann tekur sig til....kyssti mig og sagði svo þegar ég opnaði augun: þú ert falleg svona nývöknuð......þú ert allt sem ég óska mér.
Halló....ég gat náttúrulega ekki verið fúl yfir því að vera vakin...sérstaklega ekki þegar móttökurnar eru svona....(gott líka að geta gripið í texta eftir Bubba...hann er klár kallinn).....jæja...eins og mig langaði til að sofa lengur þá bara gat ég það ekki....hlakkaði svo til að fara og gera skemmtilega hluti með elskunni minni sem var svo b.t.w. búinn að græja handa okkur djúsí mat þegar ég kom fram....svo þegar maginn var vel mettaður drifum við okkur upp í Kröflu og á bretti...Heiða var svo góð að lána mér sitt svo nú ætlaði ég aldeilis að læra á þetta....fyrsta skipti á bretti ....en ég var líka með mega gelluna Bryndísi til að kenna mér....Stefán ástina mína til að passa mig og Garðar snilling til að vera fyndinn...Beta var móralskur stuðningur út í gegn....jæja...að komast upp með lyftunni var ekki alveg að gera sig...datt 4-5 sinnum og í eitt skiptið fékk ég disk(sem var að koma niður) í hausinn....og datt þá aftur..já og meiddi mig smá í hausnum.....ó well....ég var æst í að komast upp og byrja að renna mér....og þar sem það var skíðaæfing í gangi hjá Mývetningi þá gat ég ekki einokað lyftuna ....svo ég brá á það ráð að labba bara upp á topp með brettið....pústaði smá á milli....en hafði mig upp....festi á mig brettið og það er skemmst frá því að segja að ég datt ALDREI!!!! .....svo var ég víst með múvin á hreinu og fékk hrós frá hinum mér reyndari....og mikið ógeðslega var þetta gaman maður! sæll.....
Eftir ótrúlega góðan dag í fjallinu fór hersingin beint í Lónið þar sem við létum líða úr okkur....og fá hita í kroppinn....beint heim í góðan mat og svo kíkt í smá partý um kvöldið með góðum vinum....bara gott og gaman.
Dagurinn í dag fór svo að mestu í akstur heim....áður en við lögðum af stað fórum við í Voga...fengum fullan poka af kjöti hjá Ólöfu....mikið óskaplega er ég henni þakklát fyrir það....náðum í Huga (sem fékk far) komum svo aðeins við já Júlíu vinkonu á Laugum....mátuðum og dásömuðum litla nýja Kára 4 mánaða og kjöftuðum smá up pólitík og fleira...brunuðum svo í Einarsstaði þar sem ma og pa biðu okkar með stelpurnar.....well...svo Akureyri...náðum í dót og pizzur frá Greifanum namm namm....ferðin heim gekk fljótt og vel fyrir sig og allir glaðir að vera komnir heim.
Hefði svooo viljað fá 2 daga í viðbót...skreppa á Húsavík og fleira....en ætli það verði ekki bara páskarnir næst...hjá mér að minnsta kosti.
Svo sem ekkert framundan sem segja mætti frá....nema skólasystkina hittingur hjá mér...Stefán fer svo í aðgerð á öxlinni 9 feb og kostar sú aðgerð litlar 150þ.kr jább....annars erum við bara í okkar venjulegu rútínu og plönum svo litlar ferðir inn á milli....´brettaferð ....Akranesferð...tónleikar o.fl.....bara gaman....en nú ætla ég að láta þetta gott heita....heyrumst síðar ljúf...ciao