Tuesday, February 24, 2009

5 mars og 7 mars

ó já....Boston leagal að byrja aftur...5 mars...það má hlakka til þess....7 mars er svo þorra/góu/árshátíð/gleðin okkar í þjóðfræðinni....við stefán erum með atriði..nokkur....þar á meðal fjöldasöng...æfðum í dag....það var gaman....við hjóluðum líka í rigningunni niðrá Austurstræti....það var líka gaman...svo gaman að hjóla og miðborgin er svo falleg...þó að tjörnin sé brún og það hafi ringt...ég elska rigningu....og það var stemmari í loftinu....allskonar litlir og mismikilvægir hlutir sem ég tók eftir....eins og þegar ég lét stefán næstum hjóla á gamla konu á Tjarnargötunni....þegar útvarpsstjórinn stoppaði til að heilsa og brosa til okkar.....þegar Stefán kyssti mig .....þegar stefán bætti lofti í dekkin fyrir mig og hann tók ekki eftir að ég var að horfa á rassinn á honum í leiðinni.....þegar ég sýndi honum álfasteininn við Grímshaga....


saltkjöt og baunir í matinn...auðvitað enda einn af mínum uppáhalds....ég passaði mig þó...fékk mér bara einn disk...vanalega sprengi ég mig....svo kannski sveik ég lit í dag....eníveis...þar sem bumban er orðin alvarlega stór þá bara neitaði ég mér um meira...ég var södd og það var nóg....annars veitti það mér gleði að geta gefið nágranna kjötbita og súpu.....og ég held mér hafi bara tekist ágætlega til!


Annars er lítið að frétta eins og er....er að fara í vettvangsferð á morgun og í leiðinni splæsi ég í 2 verkefni....lítil solla stirða fer á leikskólann.....stóra Jóhanna Guðrún í bæinn með vinkonum.....bara snilld!