....og ég er að lesa....fyrir löngu orðin syfjuð og þreytt....en þar sem ég hafði takmarkaðan tíma í dag né eirð í mér til þess að lesa þá lendir þetta á þessum tíma.....spurning hve mikið fer inn í litla hausinn minn...
Dagurinn byrjaði á því að koma stelpum í skóla og leikskóla...svo að koma Stefáni mínum upp í Orkuhús þar sem hann svo gekkst undir aðgerð á öxlinni.....Okkur var tjáð að í heildina tæki þetta um 2-3 tíma og því var ég send heim/út....það yrði haft sambandi við mig þegar aðgerðin væri búin og Stefán kominn á vöknun. Jæja...ég hafði nú tekið lesheftin með mér og ætlaði mér alls ekkert heim/út.....en svo fór að ég hafði ekki hugann við lesturinn og fór því að brasa....taka bensín á bílinn...ná í 2 miða upp í Borgarleikhús....lét svo skoða bílinn....kíkti í Betra Bak og skoðaði dýnur....Rúmfatalagerinn og Hagkaup tekið í leiðinni þar sem ég var í Skeifunni....svo fannst mér komið nóg og nú hlyti ég að geta farið aftur upp í Orkuhús....var hálf viðþolslaus að bíða eftir símtali....jamms....ég mætti og fljótlega eftir það mátti ég fara inn til hans þar sem hann var ný vaknaður....
Ekki var nú útlitið upp á sitt besta ....náfölur og hálf gulur eitthvað....enn dálítið dröggeraður en mjög sætur eins og alltaf....Ég sagði honum allskonar sögur...las meira að segja upp úr einu heftinu mínu fyrir hann....hringd nokkur símtöl til að segja hvernig hefði gengið og svona og svo máttum við bara fara....en já...þetta gekk bara vel...kom miklu meira í ljós við aðgerðina en lækninn hafði grunað eða séð á myndum....mikil vefja myndun ofan á liðnum sem olli klemmunni og var til marks um mikinn áverka....viðbeinið var stytt um 1 cm og vefirnir hreinsaðir burt ásamt einhverju fleiru...man ekki alveg...svo nú er bara að fara eftir því sem læknirinn segir og er ég nú þegar farin að skamma Stefán...hann er alltaf svo æstur í að prufa að hreyfa og sjá hvort hann geti þetta eða hitt....þá kem ég alveg eins og mamman bara og skamma hann.....
Jæja...svo var að sækja pizzu ....ná í Júlíu á leikskólann og koma sér heim.....þjónusta stráksa minn og þjóta svo aftur út til að ná í lyf fyrir hann....og smá tónlist í leiðinni....aftur heim...gefa stelpum að borða...hátta og svona....allt tekur sinn tíma...því það beið mín svo að búa um rúmið...brjóta saman þvott og hengja annann upp.....ah...svo...kl. rúmlega 23 byrjaði ég að lesa grein nr. 1....svo nr. 2 og núna á ég bara eftir nr.3....og klukkan að verða eitt um nótt...úff...sturtan eftir líka og svo vakna kl hálf 8.....ég segi það alveg í hreinskilni að ég skil stundum ekki hvernig ég fer að þessu....á hvaða orku ég geng suma daga....það er alltaf nóg að gera....of mikið að gera....æh...væl....og mér finnst skólinn og ég sitja á hakanum....verð stundum svo pirruð út af þessu.....en....þegar fjölskylda manns þarfnast einhvers...eins og ælu-stússið á Júlíu...þá geri ég það sem þarf að gera....og ekkert annað kemur til greina....ég skrópa í skólann og læri á næturnar.....það er bara þannig og ekkert við því að segja/gera.
Já annars hlakka ég rosa mikið til....fyrst hlakkar mig til miðvikudagskvöldsins en þá ætlum við Hanna vinkona í bíó saman....ætlum að sjá He´s just not that into you.....held að hún sé gerð eftir einhverri bók.....well svo á fimmtudagskvöldið fer ég að hitta Etnu og Jónínu en það eru 2 vinkonur mínar úr Húsmæðraskólanum...jey....við vorum mikið saman og ég hef ekki séð etnu síðan þá...1995 en rakst á Jónínu fyrir um ári síðan .....svoooo á föstudagskvöldið förum við hjúin í Borgarleikhúsið að sjá Blasted/Rústað....hlakka mikið til að sjá það verk...og Ingvar E á sviðinu....en ég fékk miðana í gegnum kennarann minn Terry sem kennir mér sviðslistafræðina....svo ég verð með þjóðfræðigleraugun mín ....skrifa sennilega smá um verkið....eníveis....svo það er margt að hlakka til....og ég ætla að nýta mér það að stefán er heima í veikindafríi og skjótast út á kvöldi....það get ég sjaldnast gert nefninlega annars sko....já já...jæja...ætli ég verði ekki að halda áfram svo ég nái einhverjum svefni....ég gæti skrifað meira en það kemur síðar....góða nótt lömb....Hi
Monday, February 9, 2009
dagur er að kveldi kominn....eða meira að nótt
Subscribe to:
Comment Feed (RSS)

|