Thursday, February 5, 2009

Einum degi á undan

Já...ég skil þetta ekki...fannst vera fimmtudagur í gær og föstudagur núna....alveg í ruglinu greinilega....en

jáh...við Júlía Brá erum bara heima....hún ældi í morgun og því ákvað ég bara að setja hana ekki á leikskólann...engin hiti og hún hefur ekki ælt meira ...er bara hress og kát en listarlítil...svo það er besta að dúllast bara heima....missi reyndar af 2 tímum í skólanum en þá er nú gott að þjóðfræðin er kennd í fjarnámi svo allir tímarnir eru teknir upp og ég get horft og hlustað á þá á Uglunni svo kölluðu.

Jæja...alltaf nóg að gera og ég er að hugsa um að nýta daginn í að lesa og þar af leiðandi flýta fyrir mér með verkefnaskil o.fl. Annars er planið að tjútta feitt á föstudagskvöldið....fara í partý og svo í bæinn....svo ætla ég að eyða laugardeginum með Heiðu og Betu kannski í smá leyndóferð fyrir fylleríisboltann....say no more. Á sunnudaginn er planið að fara upp í Bláfjöll á skíði og bretti....öll fjölskyldan plús fullt af vinum okkar...setja kakó á brúsa og smyrja nesti...ummm bara gaman....

Hafdís sys mín kemur á morgun suður á fund og ætlar að kippa skíðum fyrir Júlíuna með...svo það verður stuð að fylgjast með og kenna henni á skíði í fyrsta skipti.


Stefán minn er að spila í kvöld á tónleikum á Dillon og svo aftur annað kvöld á einhverjum stað í Kópavogi...nóg að gera sko.

Emelíana er komin í frí...langt helgarfrí um hádegið í dag...og enn meiri ánægja fyrir hana er sú staðreynd að pabbi hennar og co. komu í borgina í gærkvöldi svo hún fer til þeirra og brallar eitthvað skemmtilegt með þeim næstu dagana.

Annars bíður hún spennt eftir afmælisgjöfinni frá okkur...jú jú hún á afmæli í september en við höfum sem sagt ákveðið að gefa henni gjöfina núna....en það er gsm sími...wúhú...loksins...ein búin að bíða ansi lengi en ég sem ábyrgur forráðamaður og uppalandi vildi ekki að hún fengi síma fyrren hún yrði 10 ára.....ok ALLIR í bekknum eiga nú þegar síma nema hún....fokk þatt...alveg saman....fyrir 10 ára aldur er þetta bull....og í raun þurfa þau ekkert síma....en....þar sem við ætlum að senda hana með strætó aðra leiðina einu sinni í viku í fimleika þá finnst mér öruggara að hún hafi síma með sér....djöst inn keis.....æh...sumir krakkar hafa átt síma síðan þeir voru 6 og 7 ára gamlir...rugl! já svo nú þarf ég að fara í smá síma leiðangur....þetta má ekkert vera hvernig sem sími....samloku eða svona....alveg með þetta á hreinu sko.

Oh well...dagarnir eru nokkuð góðir bara....átti góðan dag með Heiðu fyrr í vikunni þar sem óhóflegt át átti sér stað hehe....nei ég meina við erum hávaxnar ungar stúlkur sem erum enn að vaxa....fólk þarf nú að borða!

Æh annars langar mig svo til Húsavíkur...veit ekki afhverju...fékk það allt í einu í höfuðið að ég yrði að skreppa heim....

ætlaði nú að koma með eitthvað innihaldsríkt blogg....en ég sé að ég er bara ekki í stuði fyrir það núna....best að koma sér í eitthvað af viti...s.s. að læra? hugmynd....heyrumst og góða helgi kids.