Friday, February 20, 2009

Hilda er af góðum ættum komin...

....þessi orð skrifaði ég í statusinn minn á facebook í gær....var svo mikið að hugsa...og búin að vera að hugsa um allt fólkið mitt....nær og fjær...og hvað ég tel mig einstaklega heppna með forfeður og allt....

Ég hef líka verið að hverfa svolítið aftur í tímann...í huganum jú...því miður er hitt ekki hægt....já og ég skrifaði líka í status á FB að mig langaði til að fara aftur í tímann...Freyja frænka spurði hvað mig vantaði nú.....en málið er að mig vantar ekkert....og ég þarf ekkert....en mig langar óskaplega mikið til að hitta ákveðið fólk...já og dýr líka.....t.d. langar mig til að fá að kúra í hálsakotinu hans afa Eysteins í smá stund á meðan hann hvílir sig í hægindastólnum sínum og hlustar á Auðlindina...fréttaþátt um sjávarútveg.....svo hlustum við á stolt siglir fleygið mitt.

Svo langar mig líka til að spjalla við ömmu Heiðu...spila svolítið við hana og fá malt.

Mig langar líka til að fara í Hliðskjálf til ömmu Unnar og bara tala við hana....svo margt sem mig langar til að vita.....afa Fikka líka....hlusta á hann segja mér sögur af einhverju merkilegu....

Mig langar líka að tala við langömmu Kristínu og fá að vita svoooo margt...

Mig langar á hestabak á Sögu....og Pöllu líka....langar að klappa og knúsa bæði Lappa minn og Hring minn.....langar líka að hitta kisurnar mínar sem hétu allar Bonnie.


Svo langar mig að fara á rúntinn með Önnu Maríu og hlægja með henni!


Allt þetta fólk er farið...og dýrin líka.....en það eru líka móment úr fortíðinni sem ég væri til í að upplifa aftur bara upp á funnið sko....t.d. að labba í bænum með Elísu vinkonu og ver rosa gellur....og já Alma...fara í Buffalo skóna mína og vera töff! .....mig langar að vera pönkarinn aftur og fara á tónleika með öllum böndunum sem voru æði þá....Mig langar að renna á Jónasartúninu með Heidda og strákunum.....langar í Torgarar á móti Hólurum keppni aftur....mig langar að leyfa Didda að kyssa mig hehe....en það var sko sætasti strákurinn sem allar stelpurnar voru skotnar í og líka ég....og hann var skotin í mér....og bað um að fá að kyssa mig bless einu sinni áður en hann fór aftur til Rvk....en ég sagði NEI við hann....ok ég var líka bara svona 10 - 11 ára!!!

Ah ég gæti haldið endalaust áfram...nostalgía dauðans sko.....



En að öðru....oh ég er alltaf búin að hugsa eitthvað flott blogg þegar ég fer að sofa og ætla svo að muna það...en man það svo auðvitað ekkert þegar ég vakna....eða allavegna ekki eins og ég setti það upp í hausnum mínum.....eníveis....það rann upp fyrir mér ljós um daginn....æi þið vitið...stundum er maður að díla við eitthvað púsluspil í hausnum sínum og það passar ekki...það er bara eitthvað ekki að passa....mér leið svoleiðis um daginn....en svo....upplifði ég/ sá/ heyrði what ever....og þá allt í einu fannst mér púslið passa...ég gat raðað þessum asnalegu stykkjum inn í og fengið nokkurskonar heildarmynd.....Ok sumt fólk hefur enga þörf fyrir að láta púslin sín passa....og er alveg saman....ég er hrikalega skipulögð og þarf alltaf að analæsa og einmitt...láta púslin mín passa...kára allt...klára púslið.


í kjölfar þessa....og ég kem nánar að því síðar....þá hugsaði ég....er ég kannski frelsuð? haha...ok nú haldiði að ég sé gúgú í hausnum sko...nei....alls ekki....maður getur nefninlega frelsað sjálfan sig frá slæmum/vondum/óþægilegum/óþarfa hugsunum um eitthvað sem skiptir svo engu máli þegar upp er staðið...já ég fattaði það í kjölfar þess sem púslið passaði að ég væri í raun frelsuð frá þessu óþarfa dóti sem annars hefur oftar en ekki böggað mig í hausnum......mér var alveg sama....


ég sem sagt fann að þetta sem ég púslaði saman hafði ekki lengur þau áhrif á mig sem það hafði haft....það fór út alveg á sömu sec og það fór inn....yndislegt get ég sagt ykkur...og því fann ég að ég var frelsuð frá þessu leiðinda böggi í hausnum og hjartanu.....


ég komst að því hvernig landið liggur hjá sumu fólki.....og að mínu mati liggur það nú bara ekkert vel...ansi mikill halli.....en eins og ég segi...það er ekki mitt vandamál...og ég finn að mér er alveg sama....djöfull er það gott!!!!

Það er svo merkilegt með það.....allt þetta fólk sem ég hef kynnst í gegnum ævina er í 99% tilfella gott fólk....sama í hve nánum tengslum ég er við það....sumum mjög nánum...öðrum ekki...bara svona eins og þið kannist við sjálf væntanlega.....og ég hugsa þetta pínu eins og hnött....afföllin..þ.e.a.s. þeir sem ekki passa við mann...eru pólarnir sem mætast....segull í segul passar ekki séu þeir á öndverðu meiði ....ekki með hjartað á réttum stað!
þið vonandi skiljið mig....en....allavegna....ætla að læra smá....svo stússa eða eitthvað...tengdó eru í heimsókn og allt í eintómri gleði..nema náttúrulega að það vantar Stefán....hann kemur á morgun...veiii....og já...panntaði miða á kardemommubæinn....jey...öll fjölskyldan að fara 8 mars...jess...hlakka til....en ok...bæjó og eigið góða helgi rúsínur!