ég hef ákveðið að tileinka mér að vera Joker....nákvæmlega þessi Joker....fólk getur svo ályktað fyrir sjálft sig hvernig þetta má vera....en það er bara mitt...held að ofboðslega fáir sem hér lesa fatti hvað ég meina...án þess að lasta neinn þá nefni ég bara eina manneskju sem ég tel að viti um hvað ég tala....og það er Vala (hehe rím sko).....enda þekkir hún mig betur en flestir í heiminum!
Hvort ég meini að ég ætli að verða eins svöl og hann....klæða mig eins...mála mig eins....nota frasana....vera í sömu ,,tilvistarkreppu" og hann....eða bara einfaldlega vera Joker verður ekki gefið upp.....ég er með missjón og mér líst vel á það....enda bara jákvætt fyrir mig....og vonandi fyrir aðra í leiðinni....nokkrir einstaklingar munu hinsvegar ekki njóta neins af því....hvorki pos eða neg....bara ekkert.....þessir einstaklingar eru einfaldlega í of mikilli tilvistarkreppu gagnvart bæði sjálfum sér og mér....verst fyrir það! eníveis....call me crazy....cuz i´m!!!
Jæja....fékk æði hringingu í gær frá Þórhöllunni minni.....sótti hana og við fórum í smá ferðalag....svo þegar við komum hingað heim sagði Stefán: velkomin heim! hehe....hún er sko dóttir okkar. Mikið rosalega voru stelpurnar glaðar líka að sjá hana....við elduðum saman og kúrðum svo öll saman upp í rúmi...veltumst til í gleði og hlátrasköllum.....endalaust gaman!
Svo fór ég að hitta (loksins) Etnu og Jónínu sem voru með mér í Húsmæðraskólanum í denn....það var rosa gaman líka....kjaftað fram á nótt ....gæddum okkur á dýrindis ostum og næsheitum....rifjuðum upp unglingsbrek okkar enda vorum við öflugar í djamm og partýum á þessum tíma....nöfn á strákum rifjuð upp....og voru misjöfn viðbrögð við því hehe....æi bara nostalgía...
Svo gaman að eiga svona góða daga....skemmtilegt!
Nú hinsvegar er hápunkti þessa dags lokið og ætla ég að senda strákinn minn í vinnuna....sjálf ætla ég að skúra smá enda búin að stafla upp eldhússtólunum 3 sinnum í vikunni....alltaf þurft að raða þeim við eldhúsborðið aftur því ég nennti ekki að skúra....en nú verður það gert! Eigið góða helgi....ég kem aftur! Hi


|