
Þessi yndislega dóttir mín er veik....hiti hósti kvef og nú líklega eyrnabólga....
Já....klukkan er hálf 3 um nótt og ég svona u.þ.b. að fara í rúmið.....Stefán í Douglas Wilson rejúníoni með strákunum....Emelíana og litli Jóhann Ási sofa vært.....erum að passa hann meðan foreldrarnir tjútta....hann er yndi.
Júlía er sem sagt búin að vera með hita síðan seinnipart á miðvikudag og nú er hún farin að kvarta um í eyranu.....sem þýðir ferð á læknavaktina á morgun....hefur verið með mjög háan hita...nærri 40stig....en ótrúlega hress inn á milli sem hún er lítil mús.
Eitthvað fer lítið fyrir lærdómi hjá mér....verð að fara að koma mér í gírinn og gera hluti....annars alveg að halda dampi...bara mætti vera duglegri og vera ahead með hlutina....en svona er þetta....hálf svefnlausar nætur og þá er maður einfaldlega ekki í stuði og almennt bara þreytt!
Valentínus skauk hinum ýmsu örvum í hjarta mitt í dag....lét mig gera góða hluti....sem ástin mín naut góðs af....fínn dagur sem fór að mestu bara í kósýheit og innihangs....
Á morgun er Emelíana svo að fara að keppa í fimleikum....er að taka 5 þrep og hlakka ég mikið til að horfa á stóru flottu stelpuna mína!
Eitthvað reiðiblogg hér í Fionu formi fyrir neðan....fæ stundum æluna upp í háls á fólki sem er svo gegnumsýrt af geðveiki....sem betur fer rennur mér ógeðið fljótt úr brjósti....ágætt að láta Fionu tala mínu máli þá....svo ég segi ekki orð sem ég gæti séð eftir síðar. Merkilegt hvað mannskepnan getur verið lágkúruleg....svikul og óheiðarleg....mest við sjálft sig....sumt fólk er bara ekki með þroska til að skilja að það gerir sjálfu sér verst með svona háttalagi! Kemur alltaf í bakið á því þegar fram líða stundir....það bregst ekki....því er ekki alltaf vorkun!
Fórum í leikhús á föstudagskvöldið og sáum Rústað eða Blasted eftir Söru Kane.....viðbrögðin voru ekki þau sem ég hafði vænst...fór svo sem ekki með neinar stórkostlegar væntingar en hafði þó heyrt ýmislegt ....s.s. að fólk labbaði út....sumir ælandi....fólk að kúgast....o.fl.....ekkert svoleiðis hjá mér....vildi bara að aðstandendur verksins hefðu farið lengra fram af brúninni....þá held ég að ég hefði verið sáttari....nálgun verksins ágæt en of stíliseruð kannski....allavegna...hefði mátt vinna settið betur! Ingvar E brilljant....up´s and down´s....æi....alveg þess vert að sjá....ég kannski of gagnrýnin því ég er að stúdera performans og sviðslist....horfði með þjóðfræðigleraugunum....var samt að reyna að gera það ekki....en þegar maður er svona innvolveraður í námið sitt þá er það erfitt....endalaus rannsókn.
Jæja....ætla upp í rúm og láta mig dreyma...veit alveg hvert ég ætla að fara í nótt.
Góða nótt....Hi


|