Oh hvað mig langar til að skríða aftur upp í rúm til Stefáns og litlu lösnu Júlíu....en ég ætla ekki að láta það eftir mér....skóli á eftir og mér veitir ekki af að taka daginn snemma.
Er búin að loka glugganum og kveikja á kerti...það er svo notalegt að hafa kerti í myrkrinu.....vefja sjálfa mig inn í teppi og taka svo smá svona móment fyrir mig og skrifa aðeins.
Dagarnir eru góðir.....þrátt fyrir handlömun Stefáns þá gengur dagsrútínan vel....hann þarf náttúrulega aðstoð mína við ýmislegt s.s. að láta baða sig...reima skóna og skipta um umbúðir á saumunum.....annars er hann ótrúlega duglegur ....þrífur og gerir nánast allt...svo mikið að ég þarf eiginlega að stoppa hann af......ótrúlega bestur....besti kærastinn minn!
Ég fór í bíó í gær með Thyri vinkonu.....fórum að sjá He´s just not that into you....mynd byggð á bestseller bók skildst mér......alveg ætla ég EKKI að mæla með því að fólk borgi sig inn á hana í bíó....allt í lagi afþreying til að leigja á dvd en ekki bíó virði.....ótrúlega illa unnið úr annars ágætisefni....var allan tímann (eins og ég geri oft þegar ég horfi á myndir) að hugsa hvernig ég mundi/hefði gert myndina.....eiginlega var þetta léleg mynd sko.....hefði getað orðið betri.....en ég hefði örugglega látið marga vini mína hlægja hefðu þeir séð svipinn á mér þegar ég horfði á myndina haha....æi hann var mjög spes....well....amerísk deit vellu mynd....auðvitað góðir punktar sem sagðir voru t.d. hvernig við stelpur/konur búum til í hausnum okkar.....ákveðum hitt og þetta....að þetta sé svona en ekki hinsveginn.....og segjum hvor annarri eitthvað bull til að bæta sjálfstraust þeirra....og jafnvel okkar sjálfra......eníveis....strákarnir voru líka með margt á hreinu og punktar sem Stefán hefur meira að segja sagt við mig haha...svona stundum.....æi við stelpur erum ótrúlegar í bullinu stundum.....eníveis....nenni ekki að tala meira um þessa mynd.
Mig langar til að segja ykkur eitt hressandi og fyndið....eða mér finnst það sko.....Það er svo ótrúlega pirruð og neikvæð kona með mér í 2 tímum.....hún er alltaf að búa til rifrildi....og mér finnst eins og henni finnist það gaman....eins og að hún bara VERÐI að þusa út af hlutum......þessi kona er samt dónaleg....dónalegt það sem hún segir og líka við samnemendur sína....segir hikstalaust eitthvað við fólk.....ég bíð enn eftir að hún segi eitthvað við mig því mig klægjar í fingurnar að láta hana heyra það....því ég þoli ekki dónalegt fólk....er svo alveg búin að ákveða hvað ég ætla að segja við hana ef hún einhverntímann skyldi dirfast að vera dónaleg við mig....Stefáni finnst hún fyndin og mér í raun líka...ég hlæ að henni....rígfullorðin kona að haga sér svona....ótrúlegt....ég kannski kem með sögur af henni hérna einhvern tímann....ef ég þori...en hún les nú örugglega ekki bloggið mitt......en ég veit að hún er með blogg sjálf og hluti af slóðinni inn á hennar er í alvörunni TÍK....hahah....fyndið. Einn kennara minn missti sig við hana um daginn og það er maður sem ég hefði ekki trúað að mundi nokkurntímann æsa sig við nemanda....annar kennara minna svaraði henni í gær og svo augljóst að kennararnir þola hana ekki.....því skyldi engan undra....manneskjan er dóni og ekkert annað.....jæja...nóg um hana....en það er orðið þannig að við stelpurnar fylgjumst spenntar með hverri hreyfingu hjá kellu því annaðslagið baðar hún út höndunum...þá er hún sko að sýna að henni finnist athugasemdir samnemenda sinna asnalegar.....hehe...hún er bara fáráðnleg.....
Jæja....við keyptum svo gsm síma í gær hana Emelíönu.....jess því lík gleði sem braust út hjá stórunni minni þegar við afhentum henni símann.....svo nú er bara að fara í æfingaferð í strætó svo hún geti farið að taka hann sjálf á fimleikaæfingu.
Í kvöld var svo planið að hitta Húsó stelpur, Etnu og Jónínu en það frestast fram yfir helgi.....svo í staðinn ætla ég að hitta þjóðfræðipíurnar mínar í samskota dinner.....og þar sem ég efast um að dónakellingin mæti þá reikna ég alveg með að við segjum skemmtisögur af henni.....haha eða ekki....óþarfi að vera að eyða tíma í lágkúrulegt fólk.
Annað kvöld er svo loksins komið að leikhúsferðinni.....á Blasted/Rústað.....hlakka svoooo til....búin að heyra að þetta sé mjög ofbeldisfullt verk en það er einmitt ástæða þess að mig langar að fara...eitthvað nýtt og ögrandi að sjá....´plús auðvitað meistarinn Ingvar E á sviðinu...jess....fólk er víst að labba út af sýningum....fyrir hlé og allt...meira að segja ælandi....þessu heyrði ég fleygt....djöfull er ég spennt að fara....Sigurlaug ætlar að vera svo indæl að passa fyrir okkur á meðan.....Well svo kemur einn lítill Jóhann Ási í pössun á laugardagskvöldið....hann er nú svo skemmtilegur og mikil rúsína....verður gaman að hafa hann....svo á sunnudag er Emelíana að keppa....í 5 þrepi...svo við fylgjumst með því að sjálfsögðu.....hún verður flott stelpan! Á mánudag leynifundur the running toots.....svo það er nóg að gera....
En já....held ég muni ekkert fleira í bili sem ég ætlaði að skrifa um.....svo ég læt þetta duga og ætla hér með að óska ykkur góðrar helgar og vona að þið séuð að kósýast í kuldanum....Hi
Thursday, February 12, 2009
Morgunblogg
Subscribe to:
Comment Feed (RSS)

|