Wednesday, February 18, 2009

Tempur spring


Ok kannski ekki mjög góð mynd en engu að síður nýja rúmið okkar...veiii....og jesú minn hvað það er gott...þó svo að ég hafi bara vígt það í gær...ásamt mínum heittelskaða þá get ég sagt að þetta sé besta rúm sem ég hef sofið í...þvílík snilld....hreinn unaður!
Fengum líka frábæra þjónustu í Betra bak....fórum sem sagt í gær og keyptum rúmið...vorum svo rétt komin heim þegar þeir komu með það og símhringingu skömmu síðar frá fyrirtækinu um hvort allt hefði ekki verið ok og gengið vel....brill bara.
Í kjölfarið ruttuðum við öllu til...fluttum Emelíönu inn í okkar herbergi og fluttum okkur inn í hennar....Júlían og Emelíanan eru því komnar með stóra herbergið saman og við í minna....fínt! Systur sofnuðu svo sælar og glaðar saman í herbergi í gær....en litla músin skreið svo upp í til mömmu og pabba í nótt...það er nú alltaf næs samt.
Nú er bara eftir að skipta um í fataskápunum og fínisera....mig langar svo að kaupa eitthvað sætt í okkar herbergi....eða ná í eitthvað af dótinu okkar sem er í geymslu fyrir norðan....gaman gaman að breyta til.
Well....Emelíönu gekk vel að keppa á sunnudaginn....allt tóks nema stökkið...smá krepptir fætur en annars allt fínt....þetta var liðakeppni og undirbúningur fyrir aðalkeppnina sem verður síðar....þá er einstaklingskeppni og þá taka þær 5 þrep....örlaði aðeins á vonbrigðum hjá henni að vinna ekki liðakeppnina en það fór nú fljótt....fínt að vera með keppnisskap en gott líka að hún er aldrei lengi fúl....eníveis....
Júlían er að ná sér af veikindunum og búin að fara 2 daga á leikskólann....hins vegar er ég komin með flensuskít...smá særindi í hálsi og kvef....samt ekki alveg nógu veik til að liggja bara og gera ekki neitt....ekki það að ég geri það svo sem aldrei þó ég sé veik....
Stefán er svo að fara austur á Egilsstaði að syngja með Wilson rockness...eða hvað þeir heita...var beðinn um að leysa söngvarann af....peningur fyrir það sem er gott fyrir okkur enda liggja þeir ekki á lausu alltaf....allt svo peningarnir....well um leið og strákurinn á heimilinu fer austur þá koma tengdó til okkar og Andrea Ylfa líka.....nóg að gera og bara gaman....afmæli á afmæli ofan....amma Steina 85 ára á sunnudaginn og bara gaman....annars ætlum við að hafa það notalegt og skemmtilegt um helgina....svo það er til margs að hlakka....en núna ætla ég að setja tónlist á fóninn og skemmta mér við að flytja föt á milli skápa...jei!!