Thursday, March 5, 2009

Fálki og Ugla





































Þetta eru ótrúlega fallegir fuglar...ástæða þess að ég set inn myndir af þeim hér...og er að tala um þá er sú að rétt áðan var ég út á svölum og sá Uglu fljúga framhjá....VÁ!!! svo tignarleg....og s.l. vikur hef ég séð fálka...í fyrsta skiptið flaug hann rétt framhjá svölunum mínum og eg ég hefði teygt út hendina þá hefði ég getað snert hann...hann horfði líka beint framan í mig um leið og hann þaut hjá....ótrúlegt móment! Næsta skipti sá ég hann fljúga framhjá og í 3 skiptið settist hann upp á húsþakið á húsinu hér við hliðiná mér....meiriháttar...elska þegar ég sé uglur eða fálka...sá einmitt snæuglu síðast þegar ég var í Mývantssveit....en þessi í kvöld var brandugla.
Ég á líka stórkostlega teikningu hér upp á vegg hjá mér af uglu sem Sara vinkona mín teiknaði handa mér....innrömmuð og æðisleg....síðan hitti ég Baldur minn Kristjáns um s.l. helgi og við ræddum saman....við erum góðir vinir en langt síðan við höfum átt spjall.....hann teiknaði m.a. handa mér táknmálsfrétta merkið á sínum tíma...enda bað ég hann um það....núna spurði ég hann hvort hann teiknaði fugla...og hann fór að hlægja....sagði mér svo að það væri fyndið að ég skildi spurja því hann væri einmitt búinn að vera að teikna þá.....svo ég lagði inn pönntun fyrir krumma/Hrafn....sem er minn fugl algjörlega...uppáhaldið mitt! svo lögðum við á ráðin um fleira en það er eiginlega leyndó...hann ætlar að teikna tattoo fyrir mig sem verður leyndóið....kemur svo bara í ljós hvenær ég læt setja það á mig.....gaman gaman! vei....
jepps annars er nóg að gera í skólanum....verkefnavika í næstu viku sem þýðir engin skóli....bara læra heima....og ætla ég mér að vera rosa dugleg...klára sem mest ég get....en áður en ég geri það ætla ég að njóta helgarinnar með því að fara kannski á konukvöld annað kvöld hér í blokkinni...svo á árshátíð á Hótel sögu á laugardagskvöldið....kíkja kannski í partý í leiðinni....hehe...og í bæinn....erum með góða barnapíu sem leyfir okkur að vera úti lengi hehe....
En ´jamm....ég trítaði mig aðeins í dag...fór til Röggu í lit og vax....fer svo á morgun í klipp og lit til Þóreyjar....næs næs....mátaði kjól í Gyllta kettinum í dag en fílaði hann ekki alveg nógu vel...svo ég keypti hann ekki....ætla að kíkja smá í búðir á morgun og ath hvort ég finn mér ekki eitthvað smart.....annars sjoppaði ég rauðar gallabuxur um daginn...borgar sig greinilega að bíða eftir því sem maður fílar 100% því þessar voru akkúrat þær sem ég hafði í huga.....ekki hinar sem ég hafði séð....pikkí borgar sig...þá verður maður líka sáttari fyrir vikið.
Eníveis....læra læra....búin að setja saman hillueiningar fyrir stelpurnar....auðvitað gerði ég það ein...þarf enga karlmenn til að hjálpa mér....æ æ...enda er stefán enn handlama greyjið....en það er allt að koma held ég....hann er að spila á tónleikum núna....og missti því af svitanum á milli brjóstanna á mér hahaha....fyndið að svitna bara þar....ó well...nóg af bulli....eigið góða helgi og munið að snúa andlitinu að sólinni....hún er að veita svo yndislega og nauðsynlega birtu núna...gott að daginn er að lengja.....alright....ciao