Ég veit að fyrirsögnin hljómar ekkert mjög æðislega....en hún er næstum sönn.....
Þessi yndislega og fallega stúlka mín...Júlía Brá....gladdi móður sína með smekklegri ælu beint í andlitið í morgun....jább....dagsatt...
Hún sem sagt var eitthvað hálf ólík sjálfri sér þegar við komum heim af leikskólanum á miðvikudaginn....lagðist í sófann og sofnaði...svo kom það....ælupest....annars mjög hress en við höfðum hana heima í gær til vonar og vara....ældi ekkert í gærdag og meira að segja borðaði smá...svo kom það aftur í byrjun nætur...alltaf jafn gaman að standa í svona á næturnar...rífa utan af rúmum og henda í vél...skola...baða og græja...nú jæja...Stefán og Emelíana fóru svo á fætur í morgun en við Júlía kúrðum saman lengur....þar til ég vaknaði við vel volga ælu sem ég fékk pent yfir allt andlitið....jebbs....ég rétt náði að loka munninum og fnæsa með nefinu svo það læki ekki allt inn í það haha....fór undir sturtu hausinn og náði að skola mest framan úr mér...úr hárinu líka...skellti því í handklæði og fór að bjarga barninu mínu sem sat í ælupolli enn inn í rúmi....eftir að hafa skuttlað henni í bað...skolað rúmföt og sett í vél leit ég í spegill.....þarna voru leyfar af ælu enn í augnkrókunum og víðar framan í mér....hehe ég er með svo stórt andlit ....eða þannig....eníveis....litlan mín er ótrúlega dugleg...sjá lítinn kropp fara og taka fötuna eða rölta inn á bað til að æla er bara ótrúlegt....þau eru svo dugleg þessi börn.....en núna heldur hún engu niðri...og ég búin að bjóða henni ALLT sem mér dettur til hugar....en eina sem hún vill er mjólk....og það er það versta....mjólkurvörur hjálpa ekki.....en....mikið óskaplega er erfitt að horfa á þá sem maður elskar þjást og engjast svona mikið.....pínulítill kroppur sem má ekki við því að missa neitt....æi óskaplega finn ég til með henni.
En það er vonandi að þetta fari nú að ganga yfir....vona svo sannarlega að við hin nælum okkur ekki í þetta....en líkurnar á því eru nú samt yfirgnæfandi....ég meina....ég fékk þetta nú nánast beint í æð!!! hehe....
ó well...lítið farið fyrir lærdómi og það er kreisí að gera hjá mér.....Stefán er í vinnuhelgi og ég kemst því lítið afsíðis til að fá frið við lærdóm....en þetta reddast eins og alltaf....annars er allt ágætt að frétta....stefni á að hafa það bara kósý heima með stelpunum um helgina....spáin er ekkert sérstök svo vegna aðstæðna er líklegt að við förum lítið á flakk....
annars óska ég ykkur góðrar helgar og ,,sé" ykkur síðar....ciao

.jpg)
|