Jább...ég hef verið að melta þetta svona með mér í dálítið langan tíma...og komin með ákvörðun...ætla sem sagt að taka mér pásu um stundarsakir...í blogginu allt svo...var á tímabili að hugsa um að hætta en er ekki komin svo langt í hausnum varðandi þá ákvörðun....en margt spilar inn í ....þessa ákvörðun hins vegar rökstyð ég með vaxandi álagi í skóla en einnig með þeirri staðreynd að ég hreinlega hef ekki haft neina löngun lengi í að blogga og sést það berlega á stopulum skrifum mínum sem eru hreinlega hálf leim....ef svo má að orði komast...ég vil ekki skrifa allt hérna inn því sumir eru svo lúnknir í að misskilja og svoleiðis stússi nenni ég ekki að standa í....eins og ég setti í stausinn á fb-inu mínu í gær....ég læt aðra um skítverkin!
Eníveis....það er hreinlega að bresta á með öllu því stressi og álagi í skólanum núna sem fyrir finnst í mínum skilningi....og nú þarf heldur betur að bretta upp ermar og láta verkin tala....wow...ég held sveim mér að ég yrði góður pólitíkus....er þannig máli farin hér eitthvað núna...ó well....annars er ég best undir pressu og á það því til að velta hlutunum fram á undan mér þangað til boltinn er orðinn ansi stór og kemst ekki fyrir lengur í híbýlum mínum....þá þarf að krapa (eins og Júlían mín notar um orðið klór) í boltann og vinna hann niður í litla kúlu.....svo að þessu leiti yrði ég ekki góð í ríkisstjórn t.d.
Ég er að vinna risa verkefni núna sem er búið að taka endalausann tíma en sér loksins fyrir endan á....bara herslan eftir....svo bíða fleiri og fleiri verkefni....skila 1 á fimmtudag og 4 á föstudag....jess....svo ákveða og byrja að undirbúa 2 ritgerðir....þannig að....pása á bloggi er kærkomið og vonandi næ ég að blása lífi í annars fátækleg skrif mín.....svo er aldrei að vita nemað ég vendi mínu kvæði í kross og tali um það sem annars ætti ekki að tala um....eða já...bla....
Ég og stúlkurnar mínar fórum ásamt Siggu Þóru vinkonu Emelíönu í sundhöllina í dag og skemmtum okkur vel.....ég sá áhugaverðan líkama á karlmanni sem ég reyndi að skilja....en ég er ekki læknisfræðilega menntuð svo ég skildi hann bara ekki neitt.....síðan fórum við í bakarí og heim að borða það gúmmelaði ásamt köldum royal búðing....namm.....læra læra læra....hlægja af Júlíu sem hefur greinilega erfti mjög svo twisted húmor minn í bland við húmor föður hennar....hún er alveg búin að fara á kostum í bullinu....bara gaman....og gott að hún er hætt að æla.....svo nú eru börnin farin í bólið....ég ætla að læra þangað til kærastinn minn kemur heim úr vinnunni......
en....ég bið því að heilsa ykkur í bili...sjáumst með vorinu kids...hafið það gott og takk fyrir að lesa þið sem nennið því ....og þið sem ,,nennið" að kommenta.....þið hin þarna laumulesarar....hafið þið það líka gott! ciao...Hi
Sunday, March 15, 2009
...og þar kom að því!
Subscribe to:
Comment Feed (RSS)

|