Monday, April 20, 2009

Í tilefni morgundagsins....

Júlía Brá nokkurra mín. gömul í pabbafangi

hjá stóru sys


að hlaupa niðri við Reykjavíkurtjörn



steinsofandi með pabba...sem er ekki sofandi




Í tilefni þess að yndislega Júlían okkar á afmæli á morgun langaði mig að blogga smá.....ég ætla ekkert að segja að það sé ótrúlegt að 3 ár séu liðin síðan hún fæddist...því mér hefur alveg fundist 3 ár líða...margt gerst á þeim tíma, sem hefur verið yndislegur tími...þessi fallegi litli gleðigjafi er einfaldlega frábær karakter sem fær mann til að brosa á hverjum degi, sama hve illa gengur hjá sjálfri mér og ég ekki upp á mitt besta þá er nóg að horfa á þessa stúlku og lundin breytir um lit....ótrúlegt hvað sú ást er hrein sem kemur frá dætrum mínum....þær eru bestar!!!



Á tímamótum sem þessum þá lít ég oft tilbaka...hugsa hvað hefur gerst, breytt mér og fleira.....ég fór að hugsa um skemmtilegt atvik sem gerðist þegar við Stefán vorum að byrja að hittast....á þessum tíma bjó ég og vann á Húsavík en hann í Mývatnssveit, við vorum bæði í vaktavinnu og skiptumst því á að keyra á milli staða eftir vinnu...þegar þetta atvik átti sér stað var Stefán væntanlegur niður eftir til mín....ég hafði verið á sjónum til klukkan 20 ...fór þá heim og lagðist í baðkarið, dundaði mér svo á meðan ég beið eftir sæta stráknum sem var að koma til mín, hann var þó ekki væntanlegur fyrren upp úr miðnætti vegna þess að hann var á vakt til miðnættis...jæja...ég ákvað svo að leggja mig smá upp í rúm og hlusta á tónlist...eitthvað dösuð og þreytt eftir sjóinn....ég ranka svo við mér þegar ég heyri einhvern berja all fast á herbergisgluggann minn.....á þessum tíma bjó ég í blokk á annarri hæð....ég rýk á gluggann og sé þar frekar pirraðann en ógeðslega sætann Stefán.....ég hafði sem sagt steinsofnað og hafði legið á góða eyranu mínu (allt svo því sem ég heyri með) heyrði því ekki þegar hann bankaði á útidyrahurðina, né þegar hann hringdi milljón sinnum í símann minn (og hann skildi ekkert afhverju ég svaraði ekki því hann heyrði símann minn hringja)....jæja svo minn tók bara á það ráð (enda greinilega æstur í að hitta mig) að klifra upp þakrennuna og upp á svalir...hehe...þegar hann segir söguna er hún allt öðruvísi en þegar ég segji hana...ég segi hana með rómantískum keim....hans er svona pirr en smá matsjó því hann segir að það hafi sko ekki verið auðvelt að klifra þarna upp....mér finnst það svakalega rómó og töff.....
Á morgun höldum við Stefán ekki bara upp á fæðingardag dóttur okkar heldur svona ,,þegar við sáumst fyrst dag" en það var nákvæmlega 21 apríl 2005......svo það er gaman að þetta hitti svona á...auðvelt að muna daginn.....ekki það að við munum mómentið alltaf enda var það, þegar við horfðum í augun á hvort öðru, ótrúlegur tími sem hvorugt okkar hafði áður upplifað....það var eitthvað í loftinu (smile)
Jamms....en svona að öðru þá kláraði ég ritgerð 1 af 2 í gærkvöldi...framundan er því að byrja á ritgerð 2 og undirbúa mig fyrir munnlegt próf....þannig að á föstudaginn n.k. er ég komin í FRÍ...jey....skólinn búinn...engin próf....bara sæla...eða svona þangað til ég byrja á smá verkefni fyrir deildarstjóra minn og svo stefni ég á að byrja að skrifa BA ritgerðina mína...jesú minn...ég er að fara á síðasta árið...búin að velja fögin og allt....aahhh.....en ...svo ætla ég beint í master eða taka kennslufræðin...svo það eru væntanlega 2 ár í viðbót....jey...ég elska að vera í skóla...svo gaman þegar maður er að læra það sem manni finnst skemmtilegt...og þjóðfræðin er sko BEST!
Jæja...undirbúningur afmælis....ætla að búa til ostasalat, byrja svo á ritgerðinni.....á morgunn verður svo svona sitt lítið af hverju...læra ...laga til....baka og græja....bara gaman....well...off i go...þangað til næst....ást til ykkar!!!