ég ákvað að hafa grænana lit á bloggi dagsins....bæði svona út af því að mínir menn í vinstri grænum sigruðu kosninguna og líka því nú er komið sumar og allt fer að grænka...
Jáh erfiðar..stressmiklar og álagstengdar 2 vikur að baki...skólinn búinn og ég komin í ,,frí".....var gjörsamlega óviðræðuhæf s.l. 2 vikur vegna ritgerðarskrifa og undirbúnings fyrir eitt lítið og sætt munnlegtpróf.....skilaði síðari ritgerðinni á föstudaginn s.l. og fór í prófið þá líka....sem ég náttúrulegast brilleraði í auðvitað hehe.....nei það gekk ROSA vel og er ég þokkalega sátt við framistöðu mína í skólanum þessa önnina...þó svo að mér finnist ég hafi gert nokkur verkefni og ritgerðir fyrir aftan rassgatið á mér ...þá er ég bara sátt...nú er bara að bíða eftir einkunum og þá lokast hringurinn fyrir 2 árið mitt í þjóðfræði.....
það sem er svo framundan er svo sem bara sumar og gleði....en líka önnur verkefni, misjöfn að gerð, sem ég ætla að taka að mér.....s.s. þá hef ég verið valin af/ beðin að taka að mér verkefni fyrir deildarstjórana mína í þjóðfræðinni.....þetta verkefni á að taka um 2 vikur og felst í því að taka viðtal við einn helsta þjóðfræðimeistara Íslands Jón Hnefil.....og þar sem það fréttist að ég hafði áður tekið viðtal við hann og fengið 9 fyrir það verkefni, þá var ég beðin um að taka þetta að mér....stolt af því sko....en verkefnið verður um upphaf þjóðfræðikennslu við HÍ.....nú svo ætla ég að byrja á BA ritgerðinni minn...jább ætla að skrifa hana í sumar....er reyndar ekki alveg búin að negla niður hvað ég ætla að skrifa um enda hugmyndir mínar margar og sumar slungnar...hehe...svo nú fer ég að fara á fund með leiðbeinanda mínum og kýla á þetta....
við Stefán tókum sem sagt ákvörðun um það í sameiningu að ég mundi ekki vinna neitt í sumar....fyrir utan það að ég nennti ekki að finna mér vinnu fyrir svo stuttan tíma....Júlía fer í sumarfríið sitt og Stefán í sitt og þá er ómögulegt að ég sé föst í vinnu.....því við auðvitað ætlum norður í fríinu.....ég kannski tek nokkrar ferðir í að gæda en ætla ekkert að binda mig neitt....það væri nefninlega frábært að geta klárað ritgerðina af í sumar....eða allavegna koma henni vel af stað....oh ég er svo skynsöm og skipulögð híhí....
Jæja...svo núna er ég bara í slökun...eða þannig sko....er sjúklega þreytt og syfjuð eftir álag s.l. 2 vikna....svo ég á skilið að dúlla mér....en þar sem ég get það nú sjaldnast...verð fljótt eirðarlaus...þá er ég komin í vorhreingerningar....snéri öllu við í búrinu í gærkvöldi og henti, endurraðaði, þreif og skipulagði....var að þessu til 1 í nótt....búin að setja fullt af drasli, dósum og blöðum út í bíl hjá Stefáni sem fer í Sorpu.....í dag ætla ég svo að laga enn meira til....skúra og svona....búin að brjóta saman vetrarföt og ganga frá....sortera föt af okkur sem fara í Rauða krossinn o.fl....það er allt að gerast....svo hreinsandi eitthvað að laga svona til og henda því sem hefur setið á hakanum í allan vetur.....nú verður öllu loftað út!!!
Annar er það að frétta líka að við erum að fara norður á föstudaginn...jey....loksins...hef ekki farið neitt síðan þorrablótið var....og ég er alveg í þörf fyrir að komast í þingeyskaloftið mitt....djöfull hlakkar mig til....ég ætla svo að gera ALLT.....fara í gjánna, Lónið, til Húsavíkur, heimsækja Júlíu mína, fara í sveitina mína og skoða hestana okkar, í fjósið með Þórhöllu, í fjárhúsin, ævintýraferð með Stefáni, Illuga og Þórhöllu...haha...leyndóferð sko...halda smá kaffi-afmælisboð fyrir Júlíu Brá....hitta vinkonur mínar...og margt margt fleira...íííha....spenna....eníveis....ætla að láta þetta gott heita í bili...setja tónlist á og vinda mér í hreingerningar.....kiss Hi
Monday, April 27, 2009
Sumarið er tíminn....
Subscribe to:
Comment Feed (RSS)

|