Wednesday, May 27, 2009

eftir þetta baka allir upp súpu!!!

hæ....ég ætla að gefa ykkur góð ráð....kem með almennilegt blogg bara eftir helgi enda verður frá meiru að segja þá.....en núna ætla ég að kenna ykkur (sem ekki kunnið) að baka upp súpu....þetta er rosa einfalt!


Grunnur í allar súpur:
bræðið 30gr. smjör í potti
hrærið um 30gr. hveiti (c.a.3 msk) saman við bráðið smjörið
setjið smá salt
hrærið saman í smjörbollu
því næst takið þið 1 líter af vatni og hellið því smátt og smátt saman við bmjörbolluna
muna að hræra vel í svo ekki fari í kekki.....þessvegna hellið þið aðeins smá og smá af vatninu saman við.....jamm því næst setjiði 4-6 teninga af kjötkrafti (litlu nautatengingarnir) ef þið notið teninga frá Knorr...þessa stóru þá skulu þið nota c.a. 3 svoleiðis......
nú ef á að gera aspassúpu þá skelliði vökvanum (ef þið notið niðursoðna) út í og hrærið.....svo fer aspasinn út í og þetta látið malla smá......smakkið til....gott að setja rjóma líka.....
nú ég gerði um daginn súpu með blómkáli og brokkolíi.....var æði góð....eins og ég segi...þetta er grunnurinn og því hægt að gera hvernig súpu sem er.....

ef þið viljið gera extra fína súpu...t.d. fyrir jól eða o.fl. þá er gott að splæsa í 1 pela rjóma....og....hræra svo saman 1 eggjarauðu, 2 msk rjóma og hella svo súpunni út í þetta.....en þetta síðarnefnda má alls ekki sjóða (fínt að setja í súpudiskana áður en ausið er í það)


well.....farið nú að gera súpur.....þær eru svooo góðar....prufið ykkur áfram og verið óhrædd um að prufa allskonar grænmeti og stuff í þær.....ég hinsvegar ætla að gera blaðlaukssúpu í kvöld....góðar stundir kæru vinir......ég verð fyrir norðan um helgina með fjölskyldunni minni....heyri í ykkur eftir helgi....hafið það gott...ciao