Wednesday, May 13, 2009

jasso

já þetta er nýja orðið mitt...mér finnst það töff! Eníveis...það er greinilegt að það eru allir hættir að lesa og fáir sem kommenta....mættuð alveg láta vita af ykkur, hvort sem þið komið undir nafni eður ei...ef þið þorið hehe....jamm jæja...aðeins af lífinu....ég er náttúrulega búin að vera í fríi í næstum 3 vikur og reyni að hafa eitthvað fyri stafni hvern dag....svo í dag fór ég og byrjaði á verkefninu sem deilarstjórarnir mínir í þjóðfræðinni báðu mig um að gera.....hitti þjóðfræði guðinn sjálfan Jón Hnefil.....það fór auðvitað vel á með okkur eins og síðast og gaman að vera þjóðfræðinemi að tala við og taka viðtal við manninn sem gerði þjóðfræðina að veruleika innan HÍ. Nú er bara að pikka upp viðtalið og vinna verkefni úr þessum upplýsingum....það verður gaman.


Annars fór ég nú bara í litun og plokkun í gær....algjör nauðsyn enda grámygluð eftir vorönnina....hitti svo fallegu Emilíu mína í lunch og spjall.....það var yndislegt eins og alltaf.....Í dag tókum við Heiða gleiða..hehe...smá Kringlu-könnun....en ég hélt að mér höndum sökum peningaleysis....stóð reyndar með einn sætan brúnan kjól í höndunum þegar Stefán hringdi í mig....hann vildi endilega leggja inn á mig pening svo ég gæti keypt kjólinn.....en ég sannfærði hann um að það þyrfti ekki....tók reyndar tíma að sannfæra hann en tókst að lokum.....nauðsynjar ganga fyrir í peningaleysinu sem hrjáir mig þessa mánuðina....en ég komst loks í það að fara með 2 pör af skóm í hælaviðgerð......jæja...svo fór ég og tók viðtalið...kom svo heim og viti menn...38.000kr duttu upp í hendurnar á mér!!! jább....mundi ekkert eftir því að ég ætti bók í sparisjóðnum á Húsavík en fékk sem sagt bréf í dag um að orlofsinnistæða væri laus til útborgunar....jibbý...ég á pening fyrir kjól og fleira...jeee.....


seinni partinn fórum við mæðgur svo á Hressó til að hitta frænkur mínar sem ég hef ekki séð (sumar þeirra) í laaaangan tíma....við erum örugglega að tala um áratug eða meira.....spjölluðum og borðuðum saman góðan mat....frábært alveg hreint....sögðum sögur af langömmu o.fl. skemmtilegar minningar!


Á morgun er svo missjón...leyndó missjón partur af því enda tengist hann undirbúningi fyrir fylleríisfótboltann árlega í Mývó.....og eitthvað fleira skemmtó skal ég gera líka á morgunn.....eennn aðal spennan er framundan...fyrst skal nefna þrusu partý þjóðfræðistúlkna þar sem ég hyggst slá met og vera trúður....það verður gaman.....og svooooo á laugardag dumm durumm....þá er stefán með völdin og ég veit ekki neitt....einhverskonar óvissuferð...hann allavegna panntaði að fá að ráða laugardeginum svo við redduðum pössun fyrir stelpurnar og er mikil spenna í loftinu með hvað verður gert.....en það verður pottþétt eitthvað gaman held ég....stefán er svo rósmantískur (nei þetta er ekki vitlaust skrifað hjá mér...á alveg sínar útskýringar)


jasso.....já ég er að gleyma...hairdo á föstudag....oh hlakka svooo til að láta Þórey krafla í hárinu mínu....kannski slengi ég inn myndum síðar...en það er tótallí missjón í gangi hjá okkur....skemmtilegt líka....það er bara allt svo voðalega skemmtilegt í lífinu!


En jæja...þetta var nú bara svona smá updeit....leyfið mér nú að finna fyrir ykkur annars væri réttast að læsa þessu bloggi ef það eru bara 2 eða eitthvað sem kommenta....ta ta...í bili...love H