Tuesday, May 19, 2009

Love me tender

við Þingvallavatn

Öxarárfoss eftir miðnætti


Labbað í Almannagjá á miðnætti


Júróvisíonstuð í bústað


stigataflan klár og allir í mega stuði






ég með eggin sem ég síðar skilaði vegna samviskubits



ég að vaða eftir eggjum






Heiða sá um að tana








heitu gaurarnir okkar að redda vatnsmálunum








ég fann lítinn kettling í partýi








og varð ástfangin af honum












aahhh hann er svoooo sætur











ég og vala hressar











og heitar í þjóðfræðipartýi












stefán brjálaður því ég var að fara í partý...















Júlía syngur og gerir handahreyfingar við Is it true














gott að sofna í pabba-fangi

















ég hress kl.5 um nótt eftir eitthvað partý
















feðgin að lúlla sér



















21 apríl varð Júlían 3 ára og þá var smá kaffiboð
já brot af því besta frá s.l. vikum....margt búið að gera......en jeee ég fór í óvissuferð með mínum heittelskaða.....Heiða og Hinrik voru hluti af óvissunni líka og var það bara bónus á ferðina....við fórum sem sagt í bústaðinn hennar Heiðu sem er við Þingvallavatn.....æðislegur staður og frábært að vera þarna.....strákarnir voru með allt á hreinu varðandi ferðina enda einkenndist hún meira og minna af dekri við okkur stelpurnar...ekki slæmt það.....við lentum í smá ,,bakk-vandræðum" þegar stefán var fyndinn og bakkaði næstum ofan í gjótu....gott grín það nema ég og Heiða vorum eins móðursjúkar og hægt er......nú svo þurfti að brasa við að koma vatninu af stað í bústaðnum og urðum við fyrir smá lekavandræðum....enn allt hafðist á endanum og þá var fírað upp í grillinu.....ég reyndar tanaði smá með Heiðu milli þess sem ég fylgdist með kríum og Hettumávum setjast á hreiður sín.....ég vildi ólm ná mér í egg en vissi svo sem að krían er ekki byrjuð að verpa ....hettumávurinn er það hinsvegar og sótti ég 3 egg frá einum þeirra.....eitthvað leið mér illa með að horfa á aumingjas fuglinn sveima yfir hreiðri sínu svo ég skilaði þeim.....iss þetta hefði ég aldrei gert út í eyjunni minni....enda svo sem tíni ég yfirleitt bara kríuegg þar og lít aldrei tilbaka með vott af samviskubiti....æi jú ok stundum en HALLÓ þar eru líka fleiri þúsund fuglar og kríueggin eru bara svoooo góð...uppáhalds eggin mín.....
eníveis....maturinn var ekki af verri endanum enda eldaði stefán af sinni alkunnu snilld....humarsúpa og heimagert hvítlauksbrauð í forrétt....namm namm....svo grillaðar kjúklingabringur sem voru marineraðar í mangóchutney sósu heimagerðri frá tendamömmu.....villisveppir og allskonar gott með....hvítt og rautt að drekka....þegar við vorum búin að skúffa þessu í okkur þá settumst við í sófann algjörlega á blístrinu.....ostar og parmaskinka átti að vera í eftirrétt en við hreinlega meikuðum það ekki.....svo eftir mjög svo stranga stigagjöf í júróvisíon þá stakk ég upp á því að við færum í göngútúr í Almannagjá....svona til að ná af okkur mestu þyngslunum eftir matinn.....bjór og stuð hjá strákunum en við Heiða vorum nú slakari á því enda búnar að taka vel á því kvöldinu áður...próflokadjamm...say no more! jæja...við stefán vorum svo æst að við vildum líka labba að Öxarárfossi og gerðum það....svo heim í bústað að spila fram á nótt og snakka.....bongóblíða næsta dag og vöknuðum við Heiða beint í english breakfast....egg, beikon, pylsur og fleira.....bara næs....þeir kunna sko að tríta stelpurnar sínar vel þessir frændur!
Við brunuðum svo heim og beint í Nauthólsvíkina þar sem stelpurnar okkar stefáns biðu með sínum barnapíum....mega veður og allir glaðir.....Júlían reyndar eitthvað lasleg.....og svo þar sem helgin einkenndist af feast stemmara þá fórum við út að borða á ......ooohhhh nú man ég ekki nafnið á staðum....dem þegar þetta gerist...en ég set það inn um leið og ég man það....en staðurinn er nýr og er í Glæsibæ....oh var að mæla með honum við vinkonu mína í dag en nafnið er alveg lost núna....eníveis....MEGA staður....gátum varla valið af matseðlinum því allt var svo girnilegt og fyrir utan það þá er hann hrikalega ódýr....og í matinn er ekki notaður neinn hvítur sykur né hvítt hveiti.....mæli með að þið tékkið á honum!!! ah....stefán hringdi...og bjargaði málunum...staðurinn heitir Saffran....allavegna....s eða z.....jamm svo bara brunað með Emelíönu niðrá Austuvöll til að taka á móti júródrottningunni hehe....ísbúðin í vesturbæ og heim....þá fannst mér Júlían vera ansi dommsaraleg og mældi hana...39.5 stiga hiti!!!! síðan þá höfum við mæðgur hangið inni í bongóveðrinu....því miður...en börnin ganga alltaf fyrir auðvitað!
Jasso....ég held bara áfram að bæta framan á bumbuna mína....og nei ég er ekki ólétt...bara feit! verð að fara að gera eitthvað í þessu.....æh...væl.....annars er nóg að gera...undirbúa hitt og þetta...alltaf eitthvað að gera....vinna í verkefninu mínu og svo styttist í að sumarnámskeiðið mitt byrji...það verður gaman......en jæja....komið nóg...ætla að henda mér í sófan og glápa á mynd....góðar stundir og takk þið sem NENNIÐ ÞORIÐ og allt það að kvitta....Hi
jább...p.s hérna....2 einkunnir komnar í hús af 3......ein 8 og ein 8.5.....bara sátt við það svo sem!