ætli fólk sé almennt bara hætt að kommenta hjá mér eða bara ekki búið að fatta að ég er byrjuð aftur? hum...eníveis....hér kemur smá pistill frá s.l. dögum
já ég verð nú að byrja á að segja frá því hve óheppin ég var fyrir viku síðan...við stefán vorum að henda gömlu tölvuborði í sorpu og vildi svo óheppilega til að hilla, innan í borðinu, hafði losnað í flutningunum og þegar við vorum að lyfta borðinu út úr bílnum þá hlúnkaðist helvítis hillan niður og beint á stóru tánna á hægri fæti....hornið á hillunni lenti beint ofan á þar sem nöglin byrjar....ég get svo svarið það að tárin spruttu gjörsamlega fram og hef ég ekki grátið svona síðan ég var krakki, þegar langatöng á vinstri hendi lokaðist á milli stafs og hurðar....eníveis....ég grínlaust grét í svona 5 mín....fór náttúrulega ekkert upp á spítala...stefán náði mér þó úr skónum og sokknum og kíkti á dæmið....allt þegar orðið fjólublátt og grænt...já grænt....úss...(nýtt orð sko...töff...úss) jæja....ég kvaldist áfram en stelpan er nú þrjósk varðandi verkjatöflur og hélt að verkirnir færum nú minnkandi með kvöldinu...svo var nú ekki og versnuðu þeir bara...nóttin var hell og lítið um svefn...það fór svo að ég druslaðist upp á heilsugæslu og lét kíkja á þetta....jú jú...beinið sprungið!!!! og því ekki hægt að bora gat á nöglina til að létta á þrystingnum....því þá væri ég komin með opið brot og það er ekki svalt....well....nú ég fór bara í gúmmískóna enda einstaklega þægilegir til alls...gat ekki verið í öðrum skóm en þeim fyrstu dagana á eftir....er nú öll að koma til, amk hætt að haltra....fallega marin og rauð og bólgin enn...og nú er bara að bíða eftir að nöglin fari af.....já svona var nú sú ferð!
En við erum nú ný komin úr annarri ferð...skelltum okkur norður s.l. helgi og það var náttúrulega bara snilld! Lögðum af stað upp úr hádegi á föstudaginn...Emelíana hoppaði svo úr við Einarsstaði þar sem pabbi hennar og co biðu eftir henni....nýveiddur og eldaður silungur beið okkar á borðum þegar við loks mættum í Mývatnssveitina....umm namm namm....og jú audda Guðrún mágkona og allt hennar lið...fékk að grípa í nýfæddan Jakob jr. sem er náttúrulega bara yndislegastur! Leiðin lá svo beint í lónið sem var unaðslegt, lítið um slökun því ég stefán og tengdapabbi höfðum með okkur tja einar 5 stelpur hehe....það var bara gaman!
Fösudagskvöldið fór að mestu fram í skúrnum enda fengum við gesti, Illugi og Þórhalla kíktu á okkur, Stefán minn að drekka bjór og spila á gítar....það er alltaf ágætt sko...Á laugardaginn var svo haldin afmælisveisla fyrir miss Júlí litlu....ég stóð vaktina í undirbúningi og bakaði og græjaði í marga klukkutíma....stefán skottaðist í fjárhúsin með liðið svo við tengdamamma vorum um tíma bara 2 einar heima að græja...Mamma, pabbi og siggi bróðir komu svo ásamt Emelíönu minni auðvitað, Lea vinkona með sín börn og auðvitað Þórhallan okkar líka....veitingar runnu ljúflega út og allir í góðum fíling bara. Eftir að gestir fóru borðuðum við dýrindis lambahrygg ala Edda uppáhalds tengdamamman mín.....svo yfirgáfu Guðrún og co okkur og fóru til síns heima....ég var búin að stinga upp á ævintýraferð og buðum við Þórhöllu með okkur...byrjuðum á að fíflast í Illuga, fórum svo upp í Lón aðeins (bjór)....björgðum Skarphéðni og krossaranum hans...allt tók þetta heil langan tíma....vorum svo um miðnætti niðrí Helgavogi og stríplast og syntum í vatninu....fórum því næst í fjárhúsaheimsóknir...stefán spilaði fyrir lömbin, þórhalla pissaði með kind og ég var að bonda með lambinu sem var í næsta hólfi við svínakindafolandið....haha...æh þið munið ekki skilja nema sjá...eníveis....svo kíktum við í annað fjárhús og rugluðum þar...fórum svo í Gjánna....ah hún var svo mátuleg....allt var þetta mjög skemmtilegt og fyndið....keyrðum svo heim til Illuga um nóttina á handklæðunum einum fata (svona næstum því)....sögðum brandara og höfðum geðveikt gaman...þangað til ákveðin maður var sofnaður og tími kominn á að fara heim.....sunnudagurinn var bjartur og fagur....við skelltum okkur upp í Kröflu á skíði og bretti...Þórhalla kom með og var svo yndisleg að fara fyrstu ferðina með Júlíu á skíðum....gleði gleði....Valdi opnaði lyftuna fyrir okkur svo við vorum eins og kóngar í riki okkar...ein með brekkuna....ég brölti á brettið hennar Tótu og setti nýtt met í lyftunni.....allt svo það gekk aðeins betur en síðast....ég skal get þetta einn daginn...en allt í lagi ég labbaði bara upp og renndi mér niður....er ansi góð í því...ja betri en í lyftunni amk.....
jamm....svo fórum við í fjósið og hittum muu...muu...og klöppuðum kálfunum,,,horfðum á Dagnýju gefa þeim mjólk....Júlía spjallaði við Ólöfu sem gaf henni spenvolga mjólk að drekka....rákum kýrnar á básana og höfðum gaman.....eftir matinn fórum við öll, ásamt tengdó, í lónið....yndislegt, logn og fallegt veður....svo heim í kósystemmara....í gærmorgun renndum við svo niðrá Húsavík, borðuðum hjá mömmu og pabba, fengum fullt af fiski og kartöflum með okkur og brunuðum svo suður.....yndislegir dagar að baki og ég get ekki beðið eftir að komast aftur norður í sumarfrí!!!
Nú er bara dúttl framundan...svona eitt og annað sem ég þarf að gera og passlegt að gera smá á hverjum degi svo mér leiðist ekki....annars þrátt fyrir að virðast hafa allan heimsins tíma fyrir mig þá líða dagarnir óþarflega hratt stundum.....en ég vil hafa nóg að gera...annars verð ég bara bleeeh....eníveis...skráði mig í eitt jah...reyndar 2 sumarnámskeið hjá HÍ í dag...ætla að sjá til með annað þeirra...tapa svo sem engu á því að skrá mig....svo er bara að sjá til hvað ég geri...en ég segi betur frá þessu later...þetta er orðið ágætt í bili....en þið sem nennið að lesa megið endilega kvitta hjá mér svo ég viti af ykkur, auðvitað alltaf einhverjir laumulesarar en það er nú bara gaman af því...eða þúst....alright...see you when i see you....ykkar H
Tuesday, May 5, 2009
pistill
Subscribe to:
Comment Feed (RSS)

|