Friday, June 12, 2009

Icelandic beauty

æh fyrirsögnin er nú bara svona skáld....myndin American beauty er að byrja í sjónvarpinu og ég fór bara að hugsa hvað ég væri lánsöm að vera íslensk stelpa!

Annars er ég nú bara að blogga svona meira af skyldurækni, nenni því varla....but what the hell....Hugsa að ég bloggi lítið í sumar...nóg að gera og stutt í að við förum norður....þá hef ég allavegna eina afsökun...lélegt lyklaborð hjá tengdó haha.....eníveis...

Mig dreymdi ansi merkilegan draum um daginn....ok mig dreymir ALLTAF eitthvað....svo ræð ég í þá....sumir eru merkilegri en aðrir og það var þessi.....mig dreymdi að Stefán kæmi til mín með 2 gullhringa...við erum að tala um svoleiðis skínandi-glimmrandi-gullhringi...ég hef aldrei séð annað eins....en málið var að mér fannst þeir too much og eiginlega ljótir....Stefán spurði mig svo hvort ég vildi giftast honum og ég sagði eiginlega nei ekki nema að hann fyndi aðra hringi því þessir væru svo ljótir ahaha....MEN!!! Á draumur.is segir um gullhringi að þeir tákni barneign eða giftingu.....well...let´s see about that sko....allavegna hef ég góða tilfinningu fyrir drauminum og held að hann tákni bara gott....er eiginlega búin að ráða í hann sjálf út frá mér og Stefáni....en það er of persónulegt til að láta flakka hér!

Jasso....annars áttum við frábæran dag í dag...haha....eiginlega svona frábærann....vildi að svona dagar kæmu oftar...þá meina ég við hjúin í fríi, með fullt af tíma fyrir okkur...gott verður og sól....gerðum alveg helling sem var næs....fórum m.a. í foreldraviðtal á leikskólann sem var gaman....heim að laga til og þrífa.....fengum Valdimar og Bjart (aka Danny Zuko) í heimsókn.....fórum á sumarhátíð hjá leikskólanum.....í Nauthólsvík.....og grilluðum góðan mat....kósýstund í sófanum og núna er Stefán farinn á næturvakt, Júlían sofnuð og ég ætla að hafa það smá náðugt ein í sófanum...

Útvarpsþátta námskeiðið er SNILLD!!!! ógeðslega gaman að hanga upp í útvarpshúsi með öllu þessu frábæra fólki sem vinnur þar....allir svo vingjarnlegir og tilbúnir að hjálpa....námsefnið er skemmtilegt og ég bara elsk´etta!!


Æh ég man aldrei neitt....ætla alltaf að safna í sarpinn og blogga heavy en svo gleymi ég bara....en ja ég er að reyna að hætta að drekka kók....það gengur ágætlega...fékk fráhvars einkenni fyrst og gríðarlegan hausverk svo ég ákvað að það væri ekki gott að hætta 1 2 og 3....er að tremma mig niður.....það gengur vel eins og ég segi.....úff er búin að hafa það alltof gott síðan ég hætti í skólanum...hreyfi mig ekkert...borða bara og búin að fitna um einhver kg held ég...þori ekki á viktina...enda engin svo sem til hér....eníveis....nú þarf að taka á því....annars fer þetta allt á magann minn ....mest hissa á því að enginn skuli enn hafa spurt mig hvort ég sé ólétt haha....þorir því engin greinilega en ég er alveg vissum að fólk hefur tekið eftir nammi-matar-kók-óhollustu-hreyfingarleysis-bumbunni minni!!! en já...væl...nú verður tekið á því...bara losa sig við spikið...planið er nú að labba upp á Herðubreið með Stefáni og tengdapabba....vonandi brenni ég 2-3 cm af bumbós við það....æi sorry ég er eiginlega bara komin með ógeð af sjálfri mér og maganum.....þannig að þetta er svolítið á sálinni minni....well....hætt að væla hér.....ætla að henda mér í myndina og loka svo augunum.....reikna með einu bloggi áður en ég fer í sumarfrí frá þessu...en þangað til...hafið það gott og kvittið nú fyrir innlitið...Hi