flottust og tilbúin í hjólatúr
fallegar mæðgur að útskrifast

Solla nýstúdent....glæsileg

tvíbbarnir flottir með hvítu kollana

Jóna hjúkka og Hjördís glaðar og sælar
uppáhalds frændinn þeirra spilaði auðvitað fyrir uppáhalds frænkurnar sínar
skvísurnar mínar að hitta goðið!! Júlía leit ekki af Jóhönnu Guðrúnu haha

feðgin að spila og syngja saman

sennilega lag með scorpions
svo gaman að kúra með pabbaJæja....hvítasunnan liðin og við komin aftur í borgina...ja mínus Emelíana sem er komin í sumarfrí og eyðir því með pabba sínum og co.....
Síðasta vika byrjaði nú heldur illa fyrir mig því ég náði mér í þvílíkt djöfulsins helv...kvef að ég hef aldrei upplifað annað eins....fór því heldur betur veik af stað norður á föstudag.....lögðum af stað um leið og Emelíana var búin að keppa á innanfélagsmótinu í Gróttu.....stóð sig heldur betur vel stelpan og skellti sér alveg ein í arabaflikk í gólfæfingunum......stolt móðir horfði á og fékk gæsahúð og tár í augun....hún er svo flott stelpan mín!!!! Well....Jónas og Bryndís komu með okkur og gekk ferðin vel norður.....gaman á roadtripi....vorum mætt í sveitina góðu um kl.3 um nóttina......á laugardaginn var svo ferming inn á Akureyri þar sem Harpa María var fermd....ég varð því miður að vera ein heima í sveitinni meðan allt liðið skellti sér í veislu.....ég reyndi þó bara að hafa það náðugt og hvíla mig svo ég gæti mögulega gert eitthvað skemmtilegt um helgina.....well dældi í mig nokkrum verkjatöflum um kvöldið og kíkti í partý...staldraði þó stutt við því heilsan var ekki góð.....á sunnudag var ég aðeins farin að hressast svo við renndum niðrá Húsavík til mömmu og pabba....kíktum svo til Leu vinkonu og rétt náðum í rassinn á Dögg og Gunna Illuga áður en við brunuðum aftur upp í sveit......þar beið okkar gúrmei matur audda.....veðrið var yndislegt, logn og hlýtt svo við fórum í Lónið eftir matinn......og svo í gær dunduðumst við eitthvað og lögðum svo af stað heim......sem betur fer voru stelpurnar ekki veikar og gátu bardúsað hitt og þetta....farið í hesthús og allt.....Emelíana varð svo eftir hjá mömmu minni og pabba....og er núna farin til pabba síns.....mikið sakna ég hennar nú strax....en það eru þó ekki nema rétt rúmlega 2 vikur í næstu norðurferð.....
Jasso.....hér sé ýmislegt sem þarf að gera.....bílinn minn er farinn að taka upp á nýjum stælum og er að gera mig geðveika....þoli ekki þegar hlutir virka ekki....auka pirr.....annars er planið hjá mér að lesa og gera verkefni...vera dugleg því í næstu viku byrja ég á sumarnámskeiðinu mínu í þáttgerð.....kennsla fer fram í útvarpshúsinu í Efstaleiti og hlakka ég mikið mikið til þessa kúrs....akkúrat það sem ég hef áhuga á.....nú þarf ég bara að ákveða um hvað þessir 2 útvarpsþættir mínir verða um....hum....þar sem þeir fara í spilun næsta vetur...jey....gaman!
Eitthvað ætla ég líka að reyna að hreyfa mig....sauma og gera skemmtilega hluti.....á það nefninlega til að vera rosa löt og þá líða dagarnir án þess að ég geri rassgat....uss.....annars er ég með síþreytu þessa daga....er einhvernveginn alltaf þreytt....skil´ett ekki.....ó well....best að gera eitthvað....endilega kvittiði nú fyrir komuna krútt....Hi



|