Andrea, Emelíana mín og Alexandra
Stefán og Emelíana fallegust!

Júlía hjálpar afa að tjalda
Stefán stekkur í Grænalæk...sér aðeins líka í Gazza líka
í 28 stiga hita er best að vökva fyrir ömmu

í sveitinni að kemba

Moi að kyssa Ósk
komin 6 folöld af 7
Emelíana prufar kubb-leikinn í sveitinni minni
Ja hérna hér....komin tími á blogg??? ákvað bara að nenna ekki að skrifa neitt í sumar....enda lélegt lyklaborð hjá tengdó hehe....eníveis.....man náttúrulega ekki neitt af því sem ég ætlaði að muna og skrifa svo hér inn....enda með eindæmum mikið gullfiskaminni þessa dagana! En eitthvað man ég þó....og stuttlega skal hér sagt frá því sem hlýtur þá að standa upp úr í sumar.
Emelíana fór náttúrulega norður til pabba hennar og hefur eytt sumrinu þar í góðu yfirlæti, skroppið annaðslagið í sveitina til mömmu og pabba og vaktað hryssurnar sem hafa allar kastað nema ein....hún byrjaði á golfnámskeiði og stóð sig eins og hetja, a.m.k. fékk hún svo mikið hrós frá þjálfaranum sem sagði að hún væri mikið efni, með háa og góða sveiflu og bla bla ég veit ekkert um golf....eníveis hún stendur sig nú alltaf vel í hvaða íþrótt sem er stelpan og ég ákaflega stolt eins og gefur að skilja.
Ég ákvað að leita mér ekki að vinnu heldur taka eitt sumarnámskeið í útvarpsþáttagerð, hef nú þegar lokið því og munu þættirnir fara í loftið fljótlega eftir áramót.....bíðið bara spennt....þetta er ótrúlega spennandi og elska ég að vinna við þetta.
Stefán fór svo í sumarfrí 16 júní og Júlía líka, við brunuðum auðvitað beint norður í sæluna og vorum þar nánast til Júlí loka....héldum Úlfalda úr mýflugu tónleika sem tókust með afbrigðum vel! Svo auðvitað stunduðum við Lónið, fórum á ættarmót minna ættingja á Laugum, kayjak, stefán synti yfir vatnið (sjá selebin við í séð og heyrt hehe), fórum á Humarhátíð o.fl. Man hreinlega ekki allt sem við gerðum en veðrið var náttúrulega snilld á meðan við vorum fyrir norðan og ekki síðra hér fyrir sunnan eftir að við yfirgáfum norðurlandið.
Stefán byrjaði svo að vinna aftur og Júlían fór á leikskólann, ég hef dundað mér við að vera aðallega löt og nenna ekki neinu.....en það er nú alveg leyfilegt því skólatörnin fer að byrja.....
Nú svo kemur stóra fallega stelpan mín á morgun og verður það yndislegt því ég hef saknað hennar mikið, eins og við öll hér.....ætlum að fara í latabæjarhlaup á laugardag og skemmta okkur svo saman í bænum fram á kvöld.....sem sagt allt er við það besta á þessum bæ og bara tilhlökkun framundan. Iss ég er örugglega að gleyma einhverju en það kemur þá bara síðar....enda sennilega engin sem nennir að kíkja hingað lengur, halda örugglega allir að ég sé hætt að blogga....en þið sem rambið hingað inn megið gjarnan skilja eftir komment....þá máski held ég dampi og blogga meira í haust og vetur....þangað til næst? hafið það gott litlu lömb...Hi



|