Já og það er ég.....er sem sagt komin 17 vikur á leið og gengur vel.....við Stefán tilkynntum þetta saman á facebook um daginn enda Stefán búinn að bíða ansi lengi eftir að ég gæfi leyfi til að segja öllum frá þessu....vorum aðsjálfsögðu búin að gauka þessum fréttum að okkar nánasta fólki......ég ætlaði bara ekki að lenda í því sama og síðast þegar ég var ekki komin nema 4 vikur á leið eða u.þ.b. og öll sveitin vissi það.....svo nú voru menn beðnir um að þegja!
Jamms....annars er ég ansi slök yfir þessu bara enda mitt 3 barn og ekki eins og ég sé að gera þetta í fyrsta skipti...gleymdi meira að segja að panta tíma í 12 vikna skoðun svo ég fór bara þegar ég var komin 14 vikur...fór ekki í neinn sónar eða neitt....fer bara í hann á 20 viku.....annars er ég búin að vera ótrúlega hress...eins og á fyrri meðgöngum....æli aldrei og var ekki með teljandi morgunógleði....það voru frekar hormónarnir sem fóru stundum með mig í gönur...lét alveg ótrúlega margt pirra mig...meira að segja Helga Stein í búðinni hahaha.....æi og greyjið var ekki að gera neitt...ég kom bara út úr búðinni og upp í bíl til stefáns tuðandi hvað Helgi væri óþolandi.....jæja...maður ræður nú víst ekki miklu þegar hormónarnir eru á blússandi....þannig að sumarið einkenndist svolítið af skapsveiflum og svo klýgju....ég vildi helst ekki borða brasaðann mat...bara ávexti og grænmeti...sem er fínt auðvitað....og ég er enn svona svolítið enn, vel mér alveg hvað mig langar í og ég meika ekki fitugan slísí mat.....vil helst bara fisk og hrísgrjón.....
Ég byrjaði að finna hreyfingar á 14 vikur...svona svaml inn í mér og svo viku seinna almennilegar hreyfingar....litla dýrið hreyfir sig og sparkar.....stefán er búinn að finna smá og systur líka....merkilegt alltaf! svo finn ég núna hvernig slaknar á nára-böndunum....smá stingir....æi það er bara svo fyndið hvað maður veit nákvæmlega ferlið....fer varla inn á ljósmóðir.is til að skoða vikurnar....það er samt gaman annaðslagið og þá les ég s.l. vikur.
Mér finnst ég bara svo merkilega róleg eitthvað yfir þessu...sem er fínt....finn þó örla aðeins fyrir hreiður-gerð enda erum við líklega að fara að kaupa vagn.....þá verð ég bara með gamla fyrir svalavagn....fínt þegar maður býr upp á 3 hæð að hafa auka. Já svo höfum við ekki enn talað saman um það hvort við ætlum að fá að vita kynið....Júlía Brá segir að þetta sé strákur...hana langar í lítinn bróður eins og Tinna Katrín og Brynja Sif eiga.....enda litli Jakob Elvar frændi hennar einstaklega sætur litli bróðir......Emelíana er náttúrulega svo ótrúlega þroskuð næstum 10 ára stelpa og hún segir að hún voni að ég fái strák en sér sé alveg sama bara að barnið verði heilbrigt! ......skynsöm eins og mamman hehe.....og það er auðvitað málið...okkur er alveg sama hvort heldur sem er....ég kann á stelpur en auðvitað væri gaman að fá strák núna....enda vil ég helst ekki eiga fleiri börn...það er bara stefán sem þykist ætla að dúndra öðru í mig fljótlega eftir að þetta kemur í heiminn haha....jesú minn jæja......annars hugsa ég að ég verði forvitin og fá að vita kynið.....ef ég sé það þá ekki bara sjálf eins og þegar ég var sónaskoðuð með Júlíu á sínum tíma....þá blasti augljóslega við hvaða kyn væri þarna á ferðinni.
Jasso.....annars fáið þið nú að fylgjast með öllu hérna á blogginu þegar fram líða stundir....ég er t.d. með ákveðnar pælingar varðandi sjálfan fæðingarstaðinn o.fl. sem ég þarf að heyra álit ykkar á.....svo endilega kommentiði......Ok kláraði stúdíó vinnuna í morgunn og búið að setja þættina mína á dagskrá....fyrri þátturinn verður 25 janúar og síðari 8 febrúar....á Rás 1 kl. 15:25 minnir mig....um það leiti og endurfluttir á miðv.dagskvöldum kl 21.....en ég minni auðvitað á það þegar nær dregur.....að minsta kosti er ég rosa sátt við mína vinnu við þessa þætti og hlakka mikið til að fá þá spilaða! svo byrjar skólinn held ég bara á mánudaginn....þarf eitthvað að fara að undirbúa það.....er núna að vinna í einu verkefni sem ég ætla helst að klára í byrjun sept. svo það sé frá.....annars leggst veturinn ágætlega í mig....hef smá áhyggjur af því að ég verði þreytt enda er ég mega þreytt suma daga....eníveis.....leiksýning í kvöld í Iðnó...vala frænka að sýna með hópnum hennar frá London.....svo fer ég í sjúkraþjálfun nr.2 í fyrramálið því ég er búin að vera með klemmda taug í vinstri rasskinn og stundum svo sjúklega verki sem leiða niður alla löppina og niðrí ökkla....men hvað fyrsti tíminn var góður...heitur bakstur...nudd á rassinn og nálastungur......love it......já og svo önnur sýning í Austurbæjarbíói annað kvöld...þá sýnir Rósa frænka dans með hennar hópi...svo tónleikar á Dillon með Steffs mínum og jáh.....Grease á laugardag....sweet days ahead....góða helgi krútt...Hi
Thursday, August 27, 2009
Jæja....ein óléttu-tilkynning!
Subscribe to:
Comment Feed (RSS)

|