Monday, September 21, 2009

20. vikna sónar og fréttir!

hér má sjá brosandi lítið og fallegt Hildu og Stefánsbarn

20 vikna sónar

fyrsta sónarmyndin tekin í Júní byrjun og lítið að sjá nema þeir sem eru glöggir....komin rúmlega 5 vikur á leið þegar þetta er tekið


lítil sæt il á litla babyinu




afi minn Fikki....ótrúlega sjarmerandi mynd sem segir svo margt fallegt




afi Fikki ungur að árum með Sigurði tengdaföður hans og langaafa mínum
Jamms....skellti inn til gamans nokkrum sónarmyndum....fór í sónar í morgunn og allt gékk vel....leit vel út og allt eins og það á að vera....ég ætlaði að forvitnast um kynið en litla babyið mitt var í fimleikastellingu með báða fótleggi krossaða...klemmda saman og þeir náðu upp að höfði....eins og það væri að teygja á.....þannig að það var no way að sjá kynfæri þess.....
en það er allt í lagi því það má alveg vera surprice....Stefán reyndar komst ekki með mér því hann var tepptur á Akureyri með stelpurnar....þreyttur eftir 12klst. göngur um Búrfellshraun í leit að rollum.....jæja svo við ákváðum í sameiningu að pannta tíma í þrívíddarsónar....það er í raun skemmtisónar þar sem börn mega koma með líka....við fengum því tíma 13 nóvember....það verður gaman að prufa....þetta er nú 3 barn og allt í lagi að prufa þetta....kostar reyndar 12þ.kall en hey...hvenær hefur maður ekki eytt öðru eins í bíó...pizzu o.fl.....sé ekkert eftir þessu svo fær maður víst 60 myndir á disk og líka 4 video af barninu.....kannski það sýni sig fyrir okkur.....annars er okkur alveg sama hvort kynið við fáum....verðum bara glöð á ánægð að fá það í hendurnar í byrjun febrúar.
Ákvað að setja myndir af afa Fikka með....hann hefði orðið 94 ára 20.sept s.l.....ég vildi að ég gæti talað við hann.....þarf að spurja hann að svo miklu núna þegar ég er orðin eldri og þroskaðri.
Jamms....svo á hún Emelíana mín afmæli á miðvikudaginn....tíu ára skvísan...jesú hvað tíminn líður....10 ár síðan ég eignaðist hana....skrítin tilfinning....ætla að koma með annað blogg soon um þessa elsku sem er frábær!
Jæja...klukkan orðin alltof margt....ganga hálf 2 og ég ekki sofnuð....gengur ekki.....það er bara svo erfitt að sofna þegar strákurinn minn er ekki heima (er á næturvöktum núna) og hausinn minn á fullu.....best að hvíla hann....já og fá mér smá að borða...er allt í einu voða svöng hehe....góða nótt lömb...góða drauma og daga...ykkar Hi