Friday, September 18, 2009

...og kærastinn spilaði fyrir mig lag

Jamms....helgin að renna í garð...eða eitthvað þannig....ég ein heima í kotinu á meðan Stefán og stelpurnar fara norður. Merkilegt hvað ég sakna þeirra alltaf um leið og þau eru farin....


Tengdamamma er búin að vera hjá okkur í 2 vikur...hún fór norður líka áðan....ég hins vegar ákvað að taka skynsemina á þetta og vera heima og læra....hin týpíska vog ég lætur skynsemina oftast ráða í ákvarðanatökum....það er bara þannig.

ég á besta kærasta í heimi....hann er svo ótrúlega fallegur...verst að ég finn ekki myndavélina, sem virðist vera týnd, til að setja hér inn nýja mynd af honum og hinum djásnunum mínum....en áður en þau fóru spilaði og söng Stefán fyrir mig lag sem hann samdi um mig....lagið var hann búinn að semja fyrir löngu síðan en fullkláraði það ásamt texta í gær......vá ég varð klökk....lagið er svo óendanlega fallegt og ekki spillir innihald textans fyrir! en hann er prívat enn sem komið er....bara fyrir mig!

Ég er þó alltaf að segja honum að fullklára lögin hans og gefa út sólóplötu....kannski kemur að því einn daginn....ég held það....drengurinn semur falleg lög....alveg eins og afi minn gerði.....


ég man þegar ég var ólétt af Júlíu...þá lá ég upp í rúminu hans Stefáns upp í sveit...hann settist niður við hliðiná mér með gítarinn og spilaði lag....ok hann er alltaf að spila og stundum veit ég ekki hvað er gamalt og hvað hann er að semja á staðnum.....þarna spilaði hann heilt lag í gegn....samið algjörlega á staðnum.....lagið átti að vera um barnið okkar sem þá var ófætt a.k.a Júlía sem sagt.....því miður lést amma hans Jóna stuttu eftir þetta og ákváðum við að lagið skyldi spilað við jarðarför hennar, því var gerður fallegur texti um Jónu heitina....frá Stefáni til hennar....ótrúlega fallegt!


Æh ég er svo ólétt....hehe ég segi þetta svona því ég er svo emotional alltaf.....það snertir mig allt þessa dagana....ég græt í bílnum yfir hinu og þessu...fréttum...lögum o.fl.


ég er bara eitthvað ánægð akkúrat núna....er ekki þannig alla daga...sveiflast rosalega...fæ geðsjúk hræðsluköst t.d. að eitthvað sé að barninu sem ég ber undir belti....mér finnst ég vera með litla bumbu og því hljóti eitthvað að vera að....Stefán...og ég svo sjálf ásamt vinkonum mínum minna mig á þá staðreynd að ég hafi á fyrri meðgöngum mínum alltaf verið með litla bumbu....svona fyrstu 6 mánuðina.....æi svo sé ég aðrar stelpur sem sýna 20 vikna bumbu myndir og þær með huges bumbur....og mér finnst ég bara vera feit....æh þið skiljið ....eníveis....ég er komin 20 vikur núna og fer á næsta mánudag í sónar.....held barasta að við ætlum að fá að kíkja á kynið....höfum svo sem ekkert rætt það en ég held við séum bæði ansi forvitin að vita....mín tilfinning er strákur en það er kannski afþví að ég á 2 stelpur og mig langar í strák....annars er mér alveg sama.....ég vona bara að allt gangi vel og í heimin fæðist heilbrigður einstaklingur.....svo er það bara vaxandi móðursýki í mér sem hleypir áhyggjunum af stað um að eftir 2 heilbrigðar stelpur hljóti eitthvað að fara úrskeiðis núna....ég eldri og áhyggjufullari.....er samt að reyna að bæja þessu frá mér.....njóta þess að finna litla Dýrið mitt sparka og leyfa Stefáni og stelpunum að finna....það finnst öllum gaman!



Annars er allt fínt að frétta svo sem....mamma mín kom í síðustu viku og stoppaði í nokkra daga....oh mamma mín er svo best! það var gaman að fá hana og eyða tíma með henni bara við tvær.....fórum m.a. að versla gleraugu handa henni saman og úlpu....mamma keypti svo auðvitað afmælisgjöf handa Emelíönu sem verður 10 ára á miðvikudaginn næsta....wow...10 ár síðan!!! keypti líka fullt af nærbuxum á Júlíu Brá sem hefur tekið upp á því að pissa í tíma og ótíma hér og þar....öllum til mikillar armæðu.......og svo toppurinn (fyrir mig sko) gaf mamma mér snemmbúna afmælisgjöf....geðsjúkan leðurjakka!!!! ég er svo sátt við hann....enda búin að leita í nokkur ár að flottum leðurjakka....nett (eins og elstan mín segir).


Jasso.....hvað meira...æi ég man ekki....og ætli það sé ekki best að fara að gera eitthvað af viti hér....læra og laga til svo ég geti kannski tekið mér pásu í smá tíma á morgunn og rölt niðrí bæ...tekið Laugarveginn og kolaportið kannski....keypt mér laugardagsnammi (uuuu...já) og spókað mig....þarf nefninlega að vera dugleg að labba....er sem sagt í sjúkraþjálfun út af klemmdri taug í vinstri rasskinn...var ég kannski búin að segja frá því? jesú minn ég er með minni á við gullfisk....eníveis....sjúkraþjálfarinn minn er kona og hamast hún á rassinum mínum einu sinni í viku....það er nett bara hehe.....jamms....ég segi bara góða helgi og endilega verið nú duglegri við að kvitta....mig langar ekkert til að skrifa fyrir tómum eyrum.....blaaaa.....þið fattið...ykkar Hi