Mig hefur lengi langað til að skrifa ,,alvarlega" færslu en ekki gefið mér tíma í það....ég hef lengi hugsað og mallað saman í hausnum mínum blogg sem ég ætla á einhvern hátt að reyna að koma frá mér hér og nú.....hvað veldur að ég dríf mig í þessu núna? jú....ég upplifði svo mikið helvíti í bílnum um daginn þegar ég var að keyra og hlusta á fréttirnar.....fréttir þess efnis að börn í heyrnleysingjaskólanum m.a. hefðu verið misnotuð og þeim misþyrmt.....kannski brást ég svona við....svona ofur mikið við vegna þess að ég er ólétt og viðkvæmari, með hormónasveiflurnar og hitaköstin á milljón....en ég held ekki....ég þekki sjálfa mig best og þeir sem þekkja mig VEL þeir vita að ef ég þoli ekki eitthvað þá er það óréttlæti!!!
Ég bókstaflega öskraði í bílnum ......ég var svoooo reið....ég meina hvaða andskotans ógeð er þetta....hver vill meiða börn? Mamma er búin að vera í bænum núna og ég talaði um þetta við hana.....hvað fær fólk...fullorðið fólk sem á að vita betur muninn á réttu og röngu...hvað fær það til að koma svona fram? Auðvitað erum við dýr....en andskotinn hafi það við erum...eða eigum að vera þróaðasta skepnan....en erum við það? djöfull ég held ekki.....
Þegar ég hugsa um þetta þá fer ég bara að gráta.....sé fyrir mér börn sem send hafa verið á heimili til þess að læra og þeim er misþyrmt.....engin leið fyrir þau að hafa samband við mömmu eða pabba til að klaga/kvarta.....engin leið til að fá hjálp! djöfulsins viðbjóður......
En það er til svo margvíslegt óréttlæti....þetta orð er samheiti fyrir svo margt sem við mennirnir gerum eða tökum þátt í að gera.....ég held að þó svo að ég sé fædd undir Vogarmerkinu og sé alltaf að reyna að halda jafnvægi á skálunum mínum þá er ég líka alin upp hjá góðu fólki og það hefur mikið að segja.....mér hefur verið kennt margt af f0reldrum mínum....líka af þeirra hegðun og heimilishaldi.....þetta tel ég að hafi ótrúlega mikið að segja! og sé þessi staðreynd tekin til hliðsjónar við þennan viðbjóð sem ég talaði um hér að ofan þá má kannski og mjög líklega færa rök fyrir einhverju af ógeðis hegðuninni......fólk alið upp við ofbeldi o.fl. er kannski líklegra til að feta einhverskonar ranglætisbraut í framtíð sinni......nú er ég engin sálfræðingur...geðlæknir ....mannfræðingur eða neitt þannig.....svo ég get ekki staðhæft neitt í þessum efnum en mér finnst þetta bara líklegt! það er allavegna þannig að ef barn er hrætt í bernsku segjum t.d. með hundi þá fylgir það barninu....hræðslan....fólk gerir sér ekki alltaf grein fyrir þessu....eníveis...ég er komin út fyrir það sem ég ætlaði.....back to hitt sko aftur.....
Tilfinningar.....ó já....við bregðumst við ákveðnum atburðum misjafnlega....alveg eins og við erum mörg og margvísleg....sumt fólk er harðgert...annað brothætt og viðkvæmt....það er til heili skalinn um flóru tilfinninga og sviðs þeirra.....hver dæmir fyrir sig.....en það sem ég er að hugsa um er hvernig í andskotanum fólk getur gert og sagt hluti sem særa fólk sem stendur því næst? afhverju að stunda óréttlæti? ok nú finnst einhverjum þetta skrítið...stunda óréttlæti....já....það er það sem ég meina.....þú veist að þú ert að gera eitthvað sem þú átt ekki að vera að gera en þú gerir það samt....til að svala einhverri þörf...hver sem hún svo sem er....til að upplifa eitthvað....ég allavegna efast um að fólk sé að gera eitthvað beint og með því marki að særa....ok kannski einhverjar tíkur og bastarðar....eða þið fattið......þú allavegna átt að vera það þroskaður einstaklingur til að vita hvenær þú ert að ,,brjóta" lög/reglur samfélgasins...sambandsins....vinskapsins....traustsins o.s.frv.
ég vona að þið skiljið hvað ég er að meina.....er fólk almennt bara svona eigingjarnt....eða er það þetta dýrslega eðli í okkur sem er öllu öðru yfirsterkara að við verðum að fá okkar fró í hvernig formi sem hún svo er? er fólk svona veikbyggt? oohhhh ég bara er kannski í ruglinu hérna.....að pæla alltof mikið.....
svo er annað.....sem er sko alveg tjallens fyrir fólk.....það er fyrirgefningin....vá!!! hvernig er það hægt? ok spurjið sjálf ykkur hvað þið munduð gera ef einhver ógeðis kall nauðgaði barninu ykkar....ég hef pælt í þessu.....auðvitað er það fyrsta sem ég hugsa að drepa helvítið! en það má ekki drepa....og hvað græði ég á því? einhvern frið?........þetta er kannski svolítið brútal dæmi en ég meina...fólk lendir í allskonar situasjónum.....fólk er drepið......framhjáhöld.....lygar.....o.fl......hvernig fyrirgefur maður svona? Lífið er alltaf að kenna mér ýmislegt.....eftir því sem ég eldist finnst mér ég læra meira.....ég er þorskaðri....kannski meira í stakk búin til að takast á við vandamál....flækjur....dauðsföll....áföll....o.s.frv.......stundum langar mig bara að vera 12 ára aftur.....stundum þegar maður var unglingur og lenti í rimmu út af einhverju bulli þá voru svo auðveldar lausnir í boði....lausnir sem mér finnst ekkert vera í boði lengur.....mér finnst ég þurfa að tækla allt...díla við vandamálin og finna lausn fyrir mig.....já fyrir mig!!!
Jæja....þetta var svona.....pælingar bara.....gott í bili...endilega segið hvað ykkur finnst....hvort sem þið komið undir nafni eða ekki...laumulesarar mega líka kommenta.....kiss ykkar Hi
Thursday, September 10, 2009
óréttlæti
Subscribe to:
Comment Feed (RSS)

|