Monday, October 12, 2009

kúkur og piss

hæ.....hef svo sem ekkert merkilegt að segja...er í tilvistarkreppu með þetta blogg því mig langar svo að setja allskonar djúpar og persónulegar pælingar mínar hér inn en fæ mig ekki til þess meðan það er svona opið fyrir alþjóð og ég veit í raun ekki nema um nokkra sem lesa hér reglulega....ætli það séu ekki flestir hættir að lesa blogg? ég veit að ég nenni minna og minna að lesa hjá öðrum....og eiginlega nenni voða lítið að vera á netinu almennt....kannski að ég sé að verða svona gömul....eða er það kannski vegna þess að ég hef bara nóg annað að gera....? æh ég veit það ekki....allavegna....það væri gaman ef fleiri mundu kvitta eftir lestur....það gefur manni alltaf búst.


Jáh...meðgangan gengur so far bara vel....bumban dafnar og ég stækka....barnið sparkar og almennir kvillar meðgöngunnar láta á sér kræla....s.s hægðartregða og annað mis skemmtilegt....læt það fara óskaplega mikið í taugarnar á mér....en það er bara þannig....svo er helv...rasskinnin mín ekkert að skána og verkur enn niður eftir löppinni....kæmi mér ekki á óvart að ég fengi grindargliðnun eins og síðast en ég held í vonina að það gerist ekki....enda viðbjóður!


Svo á ég afmæli á næsta laugardag....Stefán spyr mig óeðlilega oft hvort ég sé með eitthvað planað eða hvað mig langi að gera....ekki nema furða því ég rústaði planinu hans fyrir síðasta afmæli mitt....annars er ég eitthvað voða lítið spennt fyrir þessum afmælisdegi og nokkuð sama þó hann líði hjá án mikilla tíðinda.....skrítið að ég hugsi svona því yfirleitt finnst mér afmæli stórkostleg og að upp á þau eigi að halda.....kannski er ég bara eitthvað dauf...finnst ég stundum líða bara áfram....en ég ætla ekkert út í það hér....æi alltof persónulegt.


Annars gengur bara allt vel þannig...skólinn hjá mér...vinnan og allt hjá Stefáni....stelpurnar eru ánægðar í sínu nema Júlía Brá tók upp á því að fara að pissa á sig í tíma og ótíma okkur til mikillar gleði eða þannig.....fyrst héldum við að þetta væri bara sýking eða eitthvað en höfum svo séð að hún einfaldlega nennir ekki á klósettið...sest á hælinn frekar heldur en að fara á settið.....svo finnst mér hún vera í svolítilli uppreisn.....já komin einhver krakki í hana....æi börn breytast svo mikið á þessum aldri....annars er gaman að segja frá því að ég er í kúrs sem heitir Þjóðfræði barna og er ógeðslega skemmtilegur....er m.a. búin að fara í vettvangsferðir á leikskólann hennar Júlíu og fylgjast með leikjum barnanna....svo geri ég ritgerð um þetta allt saman og tek fyrir High scope stefnuna.....á morgunn held ég fyrirlestur um leikföng ...ásamt 3 öðrum stelpum...við fórum og tókum út leikfangaverslanir hér í bæ og stúderuðum.....nún vantar mig bara heimildir fyrir ritgerðina....svona leikskóla-eitthvað...Sædís? þú þarna leikskólakennari...hjálp!! hehe...



Jæja....nenn´essu ekki meir....ætla að sofa...farin að sofna ansi snemma þessa dagana enda er ég alltaf þreytt.....assas....en kannski sé ég einhver ykkar um helgina...aldrei að vita nema að maður viðri sig á afmælisdaginn og kíki í bæinn haha...rím....ég er rosaleg...bæ!