Sunday, October 18, 2009

vild´eg væri Pamela í Dallas!

átti hún ekki alltaf pening? æh....ég meina það væri örugglega betra að vera hún núna heldur en ég.....er að kafna í sjálfri mér!


S.l. vika byrjaði á því að Emelíana varð veik og ég svo fljótlega í kjölfarið.....ég náði þó að mæta í skólann fyrstu 2 daga vikunnar og svo ekki meir.....fór svo með stelpurnar til læknis því mig vantaði beiðni frá honum upp á að rannsaka pissið hennar Júlíu...bara tékka hvort hún sé með sýkingu sem veldur þessu pissustandi eða ekki.....svo hlusta Emelíönu og ræða við doksa um svínaflensuna.....ég er í forgangshópi fyrir sprautunni og kemur skammturinn minn í byrjun nóv....en já hann segir að það sé ekkert hægt að segja til lengur hverjir eru/fá flensuna því það séu svo margar týpur í gangi....ég reyndar er búin að vera hundlasin en ekki með hita....hann fékk Emelíana þó....hósti og almenn vanlíðan bara....ég var reyndar svo orkulaus á föstudags morgunn að Stefán fékk að fara úr vinnunni til að hjúkra okkur.....þvílíkt ógeð þessi flensa.....


já þetta skírir kannski líka hversvegna ég var ekki spennt fyrir afmælinu mínu....held ég hafi fundið á mér að það færi einhvernveginn svona....missti svo af tónleikum með Thingtak á fimmtudeginum líka því ég var fokk slöpp og emelíana með háan hita....gaman hinsvegar að sjá myndir og vidjó frá því kvöldi....fólk augljóslega skemmti sér vel.....já já....voddafokk mér er sama....ég er ekkert svekkt! hehe.....gaman að sjá bara hverjir mættu!!!



Jamm annars er lesvika framundan sem þýðir að það eru engir tímar í þjóðfræðinni þessa vikuna....ég hinsvegar þarf klárlega að gera 2 verkefni sem ég á að skila eftir viku og því þarf ég að vera dugleg....svo er ég byrjuð að safna heimildum fyrir a.m.k. 2 ritgerðir svo það er nóg að gera....þarf að fara í Stakkahlíð...finna leikskóla-heimildir þar....ég finn út hvar það er....menntasvið....æh seinni tíma vandamál.....uuuu já en annars langar mig SVOOOOOO heim til Húsavíkur.....þessi löngun hefur ekki komið lengi....væri til í að fara þangað í einn dag....svo í sveitina til mömmu og pabba jú og auðvitað í Mývó til tengdó líka.....þarf bara að komast í burtu og hlaða batteríin.....sem eru algjörlega að tæmast.....ég er alltaf syfjuð og þreytt.....og svo langar mig að gera allt sem ég má ekki gera.....en það er náttúrulega bara týpískt.....eniveis....



ég fékk nokkrar afmælisgjafir....mamma og pabbi gáfu mér geðsjúkan leðurjakka (vald´ann sjálf) og Heiddi bró gaf mér stækkaða og innrammaða mynd sem hann tók af Júlíu Brá í sveinsprófinu.....hún er komin upp á vegg......Stefán og stelpurnar gáfu mér svo uppreimuð leðurstígvél sem eru geggjuð....þarf reyndar að skipta þeim í minna númer því þau eru of víð um kálfana....mæli með þessum fyrir stelpur sem eiga í vandræðum með að finna sér stígvél, ég á það yfirleitt ekki enda ekki með svera kálfa híhí....æi þið vitið....já og þessi henta líka vel utan yfir gallabuxur fyrir þær sem vilja svoleiðis.....allavegna.....



æh mér man ekkert meir....held ég fari bara að sofa svo ég verði kannski fersk á morgunn....vona að þið veikist ekki af þessari flensu því hún er ekki töff....aðallega svona lamandi á orku og mikill hausverkur æh ble....og talandi um Pamelu þarna í upphafi (Beta svo það sé nú eitthvað samhengi hér hehe) þá langar mig svoooo að eiga massa mikinn pening núna.....þoli ekki þegar peningar fara að stjórna skapinu hjá mér....aka núna!!! en þeir eru ekki lífið heldur allt annað......
hafið það gott....kiss kiss ykkar Hi