Tuesday, November 3, 2009

Bara eitthvað ....hausverkur þess vegna!

jæja....gríðarlegur hausverkur í gangi....held mig hljóti að vanta einhver efni í líkamann...kannski kók? hehe.....nei annars er ég að fara í mæðraskoðun á morgunn og ætla að tala um það við ljósuna að ég er bara alltaf syfjuð og þreytt....no-stop....engin orka....nenni því alls ekki....Annars er allt ágætt að frétta nema ég er aftur komin með kvef og smá hálsbólgu...Júlía Brá líka, fékk smá hita á leiðinni heim s.l. sunnudag.....svínasprauta hjá mér á fimmtudaginn, það verður gaman! enda fyrir ykkur sem ekki vitið þá elska ég sprautur....því stærri...því betri!


Jamm við fórum norður um helgina s.l. það var mega næs nema þetta að ég var hálf lasin og ekki í stuði til að gera eins mikið og ég hefði viljað....fór þó á Húsavík á föstudeginum með stelpurnar, heimsótti Sædísi mína og fékk að máta litla prins Gunnar Hólm.....honum virtist líka það vel að kúra ofan á bumbunni minni.....systur fengu að prufa að halda líka....ægilega gaman! Sædísin lánaði mér svo 2 fullar möppur af leikskólakennaradóti sem ég ætla að grúska í og nota í ritgerðina mín....sem b.t.w. gengur bara vel....stefni á að klára hana fyrir helgi.....þarf nefninlega að gera 1 ritgerð á viku út nóvember......það verður ekkert mál...hum hum.....


jæja svo fórum við í bakaríið....besta bakarí á landinu!!! kíktum til mömmu og pabba sem voru í bæjarferð.....heimsóttum Leu...fórum til Sigga bró niðrá bryggju þar sem hann var að stússa í bátnum sínum.....kíktum í bankann til ömmu Önnu (Emelíönu ömmu) og aðeins í bókabúðina....bara næs dagur sem endaði í Lóninu með Stefáni og tengdó eftir ljúfa pizzu ala Edda! sweet....

Stefán var auðvitað á rjúpum alla helgina og náði 29 stk. allgjör veiðimaður.....ég notaði laugardaginn til að læra smá og stelpur fóru með afa í hest-og fjárhús....þær eru nú stoltir fjáreigendur...Emelíana á svarta kind með hvíta sokka sem hefur hlotið nafnið Katla....Júlía Brá á gráa kind sem heitir Selva!!!!!! hahaha jamm....hún vildi sko að Emelíana skírði sína Elva....Elva og Selva....töff!!!! við erum enn að hlægja....en well.....þessi nöfn verða skráð í bók og punktur með það!



Helgin var mega góð....stoppuðum aðeins á Halldórsstöðum hjá mömmu og pabba áður en við keyrðum suður....alltaf gott að koma í sveitina!


En núna ætla ég að drífa mig út að borða með Kollu baby Hólm.....kem hingað inn fljótlega með eitthvað bull eins og venjulega.....allavegna....hafið það ljúft....og smúts* Hi