Saturday, November 7, 2009

síðasta færslan?!

Júlía Brá klæddi sig upp á fyrir æfingu! Hún er með taktana á hreinu eins og pabbinn

Stelpur hræddar við skrímsli

Dr. Death


Reykur og fjör



allt lagt í þetta!




snyrtifræðingurinn að störfum





þegar ekki er til baðkar fyrir fullorðna en litlar dætur vilja fara í bað með pabba....þá fer pabbi í ,,bað" .....
Jæja....myndavélin fannst.....var ofan í tölvutöskunni....svo ég gat farið og myndað hrekkjavökupartýið ógurlega sem foreldrar siggu Þóru halda ár hvert fyrir stelpurnar í bekknum .....það er engu til sparað get ég sagt ykkur og allt lagt í stemmninguna......enda er þetta sjúklega flott hjá þeim....ákvað að smella inn hér nokkrum myndum sem segja minna en meira...bla......
ó well....laugardagskvöld og ég er að skrifa ritgerð, Emelíana boðin í gistingu og Júlían að fara að sofa.....Stefán að vinna og fer svo beint að trúbba með Einari Höllu á Íslenska barnum eftir vinnu.....MEN mig langar alveg að kíkja í bæinn, svo gott veður og ég þrái félagslíf.....er alveg að morkna úr leiðindum.....skólaleiði...eða meira svona mig langar bara til að stússa fyrir jólin og hafa það gott með fjölskyldunni.......
annars er tengdamamma væntanleg.....3D sónar á föstud eftir viku.....40tugs afmæli og nóg að hlakka til..........missi af Heiðu babyjar afmæli í kvöld en það er svona.......
ég fór 4 sinnum á heilsugjæslu seltjarnarness í vikunni.....fyrst í mæðraskoðun sem var fín nema ljósan hafði áhyggjur af þreytunni hjá mér og vildi að ég færi í blóðprufur og dæmi.....svo fór ég í svínasprautuna....men hvað var vont að sofa á handleggnum eftir hana....er enn aum......já og svo til læknis og svo næsta dag í blóðprufur.......er mjög lág í blóði...102.....en skjaldkirtill virkar eins og á að gera og járnið í blóðinu er gott......en þetta lága útskýrir slappleysi og þreytu mína....svo nú á ég bara að háma í mig járnríkan mat því hann á vonandi að lyfta blóðinu upp og hressa það!
Jamms.....ég er svona að spá í að hætta með þetta blogg....ég nenni varla sjálf að lesa hjá öðrum og er almennt mjög lítið á netinu......en ég hafði hugsað mér að halda þessu bloggi hér áfram og nota það til að setja myndir af babyinu þegar það kemur í heiminn og fréttir og svona.....en svo er bara ekkert gaman að blogga þegar engin nennir að lesa/kommenta........get ég þá ekki alveg eins sleppt þessu? held það bara......
hafið það ljúft og lofið hvern dag......maður veit aldrei hvað morgundagurinn ber í skauti sér og því ættu allir að vera þakklátir fyrir þá sem eru í kringum þá og gefa manni yl......ykkar Hi