Saturday, January 31, 2009

Góðir hlutir gerast hægt

Voðalega var ég sæt!


laugardagskvöld og ég er að fara að læra....how sad? Stefán að vinna...og stelpurnar að horfa á mynd og borða popp....næs hjá þeim.

Annars hef ég svo sem ekkert merkilegt að segja...bara smá að fresta því að lesa og gera verkefni...borða eins og vitfirrt manneskja enda bumban eftir því....NEI ekki ólétt...það virðist vera misskilningur hjá mörgum þessa dagana...haha...nokkuð margir spurt mig að því....ætli ég sé ekki bara svona feit??? nei...þegar ég tala um bumbu þá er það bara þessi sem hefur fylgt mér síðan ég átti Júlíu og ekki NENNT já ég segi það...ekki nennt að losa mig við.....er alltof ´góð við sjálfa mig....ætti kannski að fara að....já...úff...er alltaf á leiðinni að gera eitthvað af viti....hef ekki hreyft mig síðan...tja...svo langt síðan að ég man það ekki lengur....eníveis....

plan kvöldsins: lesa og læra smá....koma stelpunum í rúmið....horfa smá á sjónvarpið...ef það er eitthvað gott í því...kíkja á facebook (vani dauðans)....fara í sturtu og svo stunda smá tilraun....jább...ætla að prufa að setja á mig brúnkukrem sem Hanna vinkona mín lét mig fá....ætli þetta virki eitthvað??? kemur í ljós....

Annars langar mig sjúklega á djammið....er eitthvað djamm þyrst þessar vikurnar...skil´ett ekki....en jú...það verður tekið á því eftir tæpa viku....þá gerast spennandi hlutir...jæja...það þýðir ekkert að væla...ég er ekki á leiðinni út í kvöld...það er víst...

Annars var ég að uppgötva nýja hönnunarlínu...Starkiller...hafiði heyrt um hana? ég var bara að sjá hana í dag....sjúklega flott OMG mig langar í svo margt....vild ég væri múruð og gæti bara keypt ALLT sem mig langar í.....

Já bíllinn...haha...það er nú sagan sko...haldiði að hann hafi ekki bara farið í gang...ok...skal segja ykkur....ég hringdi á dráttarbíl því það þarf svoleiðis þegar um sjálfskipta bíla ræðir...má ekki draga þá...eníveis...ég fór svo í göngutúr í fallega veðrinu með Hönnu og þegar við erum að koma að húsinu mínu aftur þá sé ég dráttarbílinn...ég labba af stað í áttina að honum og sé þá að einhver maður er að keyra bílinn minn upp á dráttarbílinn....JÁ KEYRA.....bílinn minn í gangi og?....what....ég spyr svo gaurinn hvort hann hafi bara farið í gang....en hann sagði mér að hann hafi gefið honum start og að hann hafi verið svolítið lengi að fara í gang....þetta gerði hann því það var svo erfitt að koma dráttarkrókinum að bílnum mínum....jæja...bílinn í gangi og komin upp á pall....ég vissi ekkert hvað ég átti að gera...átti ég að biðja hann um að setja bílinn niður aftur? nei...þá væri ekki víst að hann færi í gang aftur...eníveis...ég hafði nú þegar borgað fokkings 8000kr fyrir þetta svo það var alveg eins gott að hann færi með bílinn....well....þá vissi ég allavegna að þetta var ekki tímareimin...og sennilega bara ónýtur rafgeymir....sem sagt bílinn minn...hann Raggi Bjarna er fyrir utan verkstæði í Kópavogi....og verður þar fram yfir helgi...svo kemur í ljós hvað er að honum.....samt pínu pirrandi...ó well...

Skólinn er fínn....mikið um skil á verkefnum í hverri viku....3 þjóðfræðidæmum skal skilað fyrir hvern fimmtudag.....á hverjum mánudegi fyrir kl 9 skal ég skila diary notes fyrir performance studies og í sama áfanga annan hvern mánudag skal ég skila fieldworks analysis....svo er nokkuð þétt skil í síðasta áfanganum....en fyrir vikið ENGIN LOKAPRÓF....næææsss......

Hef mikið velt fyrir mér hvort ég eigi að vinna í sumar eða ekki...hvað ég eigi að gera í Maí??? hef eiginlega ákveðið að nota þennan tíma til að safna heimildum fyrir BA ritgerðina mína....er með hugmynd sem er mjög kúl...það er í skoðun enn....en ef ég geri þetta sem ég er að hugsa um þá er ég komin enn lengra með að útfærslur á henni....sem gæti skilað mér aur...hum....segi síðar...ef ég fæ endanlegt samþykki fyrir ritgerðinni.....well...mig langar svolítið til að vera í Mývó í sumar...æi...ég er komin alltof langt áfram...1 feb á morgun og nægur tími...ennþá....eníveis....best að vinda sér í lesturinn áður en augun lokast.....kissknús...Hi

Wednesday, January 28, 2009

Tveir góðir með MUSE

"Muscle Museum"

She had something to confess to
But you don’t have the time so
Look the other way
You will wait until it's over
To reveal what you’d never shown her
Too little much too late

Too long trying to resist it
You’ve just gone and missed it
It's escaped your world

Can you see that I am needing
Begging for so much more
Than you could ever give
And I don’t want you to adore me
Don’t want you to ignore me
When it pleases you
And I’ll do it on my own

I have played in every toilet
But you still want to spoil it
To prove I’ve made a big mistake
Too long trying to resist it
You’ve just gone and missed it
It's escaped your world

Can you see that I am needing
Begging for so much more
Than you could ever give
And I don’t want you to adore me
Don’t want you to ignore me
When it pleases you
And I’ll do it on my own
I’ll do it on my own


"Unintended"

You could be my unintended
Choice to live my life extended
You could be the one I'll always love
You could be the one who listens to my deepest inquisitions
You could be the one I'll always love

I'll be there as soon as I can
But I'm busy mending broken pieces of the life I had before

First there was the one who challenged
All my dreams and all my balance
She could never be as good as you

You could be my unintended
Choice to live my life extended
You should be the one I'll always love

I'll be there as soon as I can
But I'm busy mending broken pieces of the life I had before

I'll be there as soon as I can
But I'm busy mending broken pieces of the life I had before

Before you

Tuesday, January 27, 2009

get ekki sofnað argh









Þessar myndir tók ég í gær og í dag....þær verða notaðar í verkefni sem ég er að vinna....á sem sagt að safna þjóðfræðiefni...og skila 3 dæmum í hverri viku...samtals 27 dæmum.....þetta má vera graffiti...tattoo...brandarar....sagnir....flökkusögur ....o.fl.
Svoooo....ef þið lumið á góðum brandara....sögu....eða eigið húðflúr þá megið þið láta mig vita....ég er til í allt!
Annars er ég ekki svo hress....læt hluti fara í taugarnar á mér...s.s. þá staðreynd að þegar ég ætlaði að skuttla Emelíönu á fimleikaæfingu í dag þá fór bíllinn minn ekki í gang...heyrðist bara eitthvað mjög svo skrýtið hljóð....Allt svona auka vesen núna fer ekki vel í mig....ég hef um nóg annað að hugsa og gera og þarf á því að halda að hlutirnir og tíminn gangi næstum fullkomnlega upp!
Jæja....svo er ég líka með svona ,,ég þarf" áráttu núna....þarf nauðsynlega þetta og hitt...langar að kaupa mér föt...langar að skreppa til útlanda....langar á djammið....langar til að hafa meiri tíma fyrir sjálfa mig....langar langar þarf og vantar.....aahhhh....
Emelíana sagði sagði skondið við mig í dag þegar við sátum við matarborðið og snæddum soðna ýsu....þá sagði hún: ,,sko mamma...þú ert nú oft að skamma mig og Júlíu ha? og sko...þegar ég og Júlía eignumst síðan börn og þau eru óþekk og við þurfum að skamma þau þá er það allt þér að kenna! Nú? segi ég...afhverju? þá segir hún: já sko...af því að við erum bara börn og við lærum af foreldrum okkar!
Jesú minn....ég gat nú ekki annað en brosað hehe...þessir litlu snillingar sem ég á....ja hérna...
Annars hjálpar nú alltaf að blogga sig frá hlutunum....ég þarf bara að pústa um annaðslagið...get vel ímyndað mér að það sé ekki gaman að lesa um það hinsvegar....eníveis....þegar ég er bissý þá vil ég ekki þurfa að græja mat....vaska upp eða stússa í þvotti....nenni ekki að horfa á þegar stelpurnar sýna mér einhver fimleikaatriði...ó já...sú litla er sko að apa eftir stóru sys í þeim efnum.....nei þá vil ég bara fá frið....en ég veit alveg að ég er mamma og húsmóðir og skólastelpa og kærasta....stundum þarf maður bara að fá tíma til að vera maður sjálfur....vera bara Hilda!
Ekki skylja að ég sé eitthvað óánægð....er bara í þungu skapi....læt alltof oft smá hluti sem vel er hægt að laga slá mig út af laginu.....þið vonandi skiljið. En sem betur fer er ég ekki lengur að taka inn á mig leiðinlega slúðrið um mig...ó já...það er sko í gangi enn....meira hvað ég get verið merkileg...að fólk eyði tíma í partýi til að tala um mig....kannski að maður ætti bara að líta á þetta sem hrós??? heiður??? veit ekki....aumingjas grey sem eru að þessu annars....ætti að taka aðra sér fremri til fyrirmyndar og hætta þessu auma og leiðinlega háttarlagi.....annars kemur allt svona í bakið á fólki...leiðinlegt fyrir það....en á endanum uppskerðu eins og þú sáir...það eru engin ný vísindi á bak við það....bara leiðinlegt að vita að fólk...sem gæti annars verið svo ágætt...sé að mála sig svona út í horn í þessum efnum.....hálf vorkenndi því þegar ég heyrði viðbrögð fólks sem varð vitni að þessu baktali....en það fólk sagðist bara loka eyrunum fyrir svona slúðri...það vissi alveg hvernig viðkomandi væri innrættur. Gott að heyra það!
En....ætli það verði ekki alltaf einhverjir sem sjái ,,hag" sinn í því að níða mig niður....það fattar kannski síðar að það er að gera það á sinn eigin kostnað!
Já....það er nú gott að geta hunsað svona núna...annars er ég gjörn á að taka hluti inn á mig....sérstaklega þegar ég veit að um ósannindi er að ræða....myndi örugglega gera það þó ef einhver sem mér þykir mikið til koma gerði það....annars er ég ekkert að kippa mér upp við þetta lengur.....læt það ekki fara í taugarnar á mér....brosi bara og hlæ stundum meira að segja.
Og þó svo að bílinn og þetta auka vesen sem sennilega kostar mig auka fjárútlát sé að pirra mig þá er svo margt annað sem gleður...og um það er vert að hugsa....t.d. öll þessi börn sem væntanleg eru í heiminn ....að geta glaðst með vinum og ættingjum er mikilvægt og hollt....að láta fólk sem manni þykir væntum vita það....og segja það sem manni finnst.....í stað þess að hugsa það bara.....
Og nú ætla ég að hætta að láta þessa efnislegu hluti fara í taugarnar á mér....það reddast alltaf allt með svoleiðis....peningar...nóg til að þeim...bara grafa þá upp hehe....og kannski ég grafi bara hausinn minn ofan í koddann núna....og reyni að sofna....vonandi dreymir mig eitthvað fallegt og gott í nótt....þó svo að Hermann Hreiðarsson fótboltakappi sé nú alveg ágætur og fínn þá nenni ég ekki að dreyma hann aftur í nótt...hehe...dreymdi hann sem sagt í gær....var eitthvað að þvælast með honum og hann var pínu lítill og feitur....jesú minn....jæja...góða nótt! Hi


Sunday, January 25, 2009

Þorrablót og fleira skemmtilegt

vel uppalið barn!

Stefán, Garðar og Bryndís nýkomin af brettunum

Betu stillt upp og látið líta út eins og hún hefði líka verið á bretti hehe



Ég augljóslega á ekki töff brettafatnað en var samt sem áður klárlega BEST á brettinu þennan dag


Bryndís og Stefán upp í fjalli (örugglega að bíða eftir að ég kæmi LABBANDI upp)




Við Stefán gleymdumst út í bíl eftir Blótið...og þá gerðist þetta!





Heitustu píurnar á Blótinu







Heiða og Bryndís ótrúlega hressar og sætar







Moi og Stefán








Stefáni líður augljóslega illa á milli okkar...enda að kafna úr afbrýðissemi...við tengdó svooo heitar!








Tengdamamma og tengdapabbi sem skóflar í sig sviðasultunni











Það er auðveldast að þekkja Emelíönu svona....eða standandi á höndum










Sæta mín sem bráðum verður 10 ÁRA!!!!













Litla skvís að blása á sér hárið












Frjálsleg í svefninum....það er svo gott
Jæja...þá er helgin liðin og ný vika að taka við. Við fjölskyldan skelltum okkur norður í sæluna....ætluðum að leggja af stað seinnipart á fimmtudag en vegna hálku og hvassviðris frestuðum við því ....höfðum það extra kósý bara á fimmtud.kv, poppuðum og kúrðum öll saman upp í hjónarúmi og horfðum á Mamma mía....very næs....vöknuðum svo kl.5 um morguninn...græjuðum okkur og héldum svo af stað...komumst klakklaust norður...hittum mömmu mína og pabba við Einarsstaði og fóru stelpurnar með ömmu og afa til Húsavíkur....við héldum áfram upp í Mývó og vorum alsæl þegar loksins við komumst heim í hús....þar voru tengdó sem biðu okkar....við slökuðum á eftir ferðalagið en fórum svo að taka okkur til fyrir þorrablótið....
Blótið sjálft var æðislegt...ótrúlega gaman...góð skemmtiatriði og gott ball...allir hressir og kátir og bara já mega stuð...sjaldan skemmt mér eins vel á blóti eins og nú.....Nú daginn eftir vakti Stefán mig óvart....æi...hann getur nú verið rómó strákurinn svona þegar hann tekur sig til....kyssti mig og sagði svo þegar ég opnaði augun: þú ert falleg svona nývöknuð......þú ert allt sem ég óska mér.
Halló....ég gat náttúrulega ekki verið fúl yfir því að vera vakin...sérstaklega ekki þegar móttökurnar eru svona....(gott líka að geta gripið í texta eftir Bubba...hann er klár kallinn).....jæja...eins og mig langaði til að sofa lengur þá bara gat ég það ekki....hlakkaði svo til að fara og gera skemmtilega hluti með elskunni minni sem var svo b.t.w. búinn að græja handa okkur djúsí mat þegar ég kom fram....svo þegar maginn var vel mettaður drifum við okkur upp í Kröflu og á bretti...Heiða var svo góð að lána mér sitt svo nú ætlaði ég aldeilis að læra á þetta....fyrsta skipti á bretti ....en ég var líka með mega gelluna Bryndísi til að kenna mér....Stefán ástina mína til að passa mig og Garðar snilling til að vera fyndinn...Beta var móralskur stuðningur út í gegn....jæja...að komast upp með lyftunni var ekki alveg að gera sig...datt 4-5 sinnum og í eitt skiptið fékk ég disk(sem var að koma niður) í hausinn....og datt þá aftur..já og meiddi mig smá í hausnum.....ó well....ég var æst í að komast upp og byrja að renna mér....og þar sem það var skíðaæfing í gangi hjá Mývetningi þá gat ég ekki einokað lyftuna ....svo ég brá á það ráð að labba bara upp á topp með brettið....pústaði smá á milli....en hafði mig upp....festi á mig brettið og það er skemmst frá því að segja að ég datt ALDREI!!!! .....svo var ég víst með múvin á hreinu og fékk hrós frá hinum mér reyndari....og mikið ógeðslega var þetta gaman maður! sæll.....
Eftir ótrúlega góðan dag í fjallinu fór hersingin beint í Lónið þar sem við létum líða úr okkur....og fá hita í kroppinn....beint heim í góðan mat og svo kíkt í smá partý um kvöldið með góðum vinum....bara gott og gaman.
Dagurinn í dag fór svo að mestu í akstur heim....áður en við lögðum af stað fórum við í Voga...fengum fullan poka af kjöti hjá Ólöfu....mikið óskaplega er ég henni þakklát fyrir það....náðum í Huga (sem fékk far) komum svo aðeins við já Júlíu vinkonu á Laugum....mátuðum og dásömuðum litla nýja Kára 4 mánaða og kjöftuðum smá up pólitík og fleira...brunuðum svo í Einarsstaði þar sem ma og pa biðu okkar með stelpurnar.....well...svo Akureyri...náðum í dót og pizzur frá Greifanum namm namm....ferðin heim gekk fljótt og vel fyrir sig og allir glaðir að vera komnir heim.
Hefði svooo viljað fá 2 daga í viðbót...skreppa á Húsavík og fleira....en ætli það verði ekki bara páskarnir næst...hjá mér að minnsta kosti.
Svo sem ekkert framundan sem segja mætti frá....nema skólasystkina hittingur hjá mér...Stefán fer svo í aðgerð á öxlinni 9 feb og kostar sú aðgerð litlar 150þ.kr jább....annars erum við bara í okkar venjulegu rútínu og plönum svo litlar ferðir inn á milli....´brettaferð ....Akranesferð...tónleikar o.fl.....bara gaman....en nú ætla ég að láta þetta gott heita....heyrumst síðar ljúf...ciao















Wednesday, January 21, 2009

Söknuður

Mér finnst ég varla heill né hálfur maður
og heldur ósjálfbjarga, því er verr.
Ef værir þú hjá mér, vildi ég glaður
verða betri en ég er.

Eitt sinn verða allir menn að deyja.
Eftir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma það, en samt verð ég að segja,
að sumarið líður allt of fljótt.

Við gætum sungið, gengið um,
gleymt okkur hjá blómunum.
Er rökkvar ráðið stjörnumál.
Gengið saman hönd í hönd,
hæglát farið niður á strönd.
Fundið stað, sameinað beggja sál.

Horfið er nú sumarið og sólin,
í sálu minni hefur gríma völd.
Í æsku léttu ís og myrkur jólin;
nú einn ég sit um vetrarkvöld.

Eitt sinn verða allir menn.............

Ég gái út um gluggann minn
hvort gangir þú um hliðið inn.
Mér alltaf sýnist ég sjái þig.
Ég rýni út um rifurnar.
Ég reyndar sé þig alls staðar.
Þá napurt er, það næðir hér og nístir mig



Þetta er það sem ég hef að segja í dag!
Hi

Sunday, January 18, 2009

sunnudagskvöld

"Cruel"
So don't give me respect
Don't give me a piece of your presiousness
flaunt all sh'es got in our old neighbourhood
I'm sure she'll make a few friends
Even the rain bows down
Let us pray as you cock-cock-cock your mane
No cigarettes only peeled Havanas for you
I can be cruel
I don't know why
Why can't my ba.ll.oo.n stay up in a perfectly windy sky
I can be cruel
I don't know why
I don't know why
Dance with the Sufis
Celebrate your top ten in the charts of pain
Lover brother bogenvilla
My vine twists around your need
Even the rain is sharp
Like today as you sh-sh-shock me sane
No cigarettes only peeled havanas for you
I can be cruel
I don't know why
Why can't my ba.ll.oo.n stay up in a perfectly windy sky
I can be cruel
I don't know whyI don't know why
I can be cruel
I don't know why
Why can't my ba.ll.oo.n stay up in a perfectly windy sky
I can be cruel
I don't know why
I don't know why


Stundum hugsa ég eitthvað....en kem ekki nógu góðum orðum að því...stundum ekki einu sinni nógu góðum hugsunum að því....þá er gott að eiga Tori Amos að!


Annars ætlaði ég ekkert að segja....var að byrja að lesa í sviðslistabókinni minni og upphafsorðin eru þess:

Performance

Usually people say that a truly artistic show will always be unique
impossible to be repeated: never will the same actors,
in the same play, produce the same show.
Theatre is Life.

People also say that, in life, we never really do anything
for the first time, always repeating
past experiences, habits, rituals, conventions.
Life is Theatre.

Augusto Boal




Saturday, January 17, 2009

Laugardagur

Hææ....ég ætla að setja inn eina uppskrift....hún er mega góð og ég mæli 100% með að þið prufið...verðið ekki svikin.....en hún er fyrir 6-8 fullorðna...ótrúlega drjúg...eníveis...here it goes:

Mexico kjúklingasúpa

3-5 laukar, saxaðir
2-3 hvítlauksrif, pressuð
1 chilipipar, saxaður (ég sleppi honum yfirleitt)
1 flaska Granini tómatsafi (fæst í Hagkaup, má líka vera annar tómatsafi)
5 dl kjúklingasoð
5 dl kjötsoð
1 tsk cumin eða koriander
2 tsk worchestersósa
1 tsk chilipipar
1 tsk cayennepipar (eða venjulegur pipar)
2 dósir maukaðir tómatar
1 kjúklingur brytjaður niður eða 4-6 léttsteiktar kjúklingabringur

Steikið laukinn ásamt hvítlauki. Setjið restina í pottinn fyrir utan kjúklingin. Súpan látin sjóða í 2-3klst. Kjúklingurinn settur út í síðasta klukkutímann.
Borið fram með rifnum osti, sýrðum rjóma, nachosflögum og guacamole (allt sett ofan á súpuna) og brauð með.
(Guacamole: 1 avocado mixað í mixer með 1 tómat og einu rifi af hvítlauk)


Sko ég sleppi alltaf chilipiparnum ferska...súpan er nógu sterk fyrir utan hann. Svo bý ég til kjúklinga og kjötsoð með því að nota bara vatn og mylja kjötkraft og kjúklingakraft út í...blanda saman og þá ertu komin með soðið. Svo nenni ég yfirleitt ekkert að léttsteikja bringurnar heldur sker þær bara í hæfilega bita og set út í súpuna....heilann kjúkling spái ég ekkert í....of tímafrekt...en kannski örlítið ódýrara að nota en bringur. Í heildina á súpan að sjóða í 2-3 tíma svo ég set bara kjuklingabitana út í c.a. þegar súpan hefur soðið í 2 tíma....en það getur auðvitað hver gert þetta eftir sínu höfði. Þetta er svo ótrúlega auðvelt...og hrikalega gott....og má alls ekki klikka á því að mylja svo ofan í súpudiskinn sinn flögunum....smá sýrðum rjóma ef þér finnst hún of sterk...og svo rifin ost....það er algjört möst....þetta fær mann alveg til að slefa....uppskriftin er líka stór og því upplagt fyrir stóra fjölskyldu...matarboð eða svo bara frysta restina og hita upp síðar....try it babys....jæja...ætla að fara að gera hluti...heyrumst síðar...já þið megið alveg láta mig vita ef þið prufið uppskriftina....bara svona forvitni í mér....eníveis...ciao

Friday, January 16, 2009

Föstudagskvöld

Jamm....það er föstudagskvöld og so far er sjónvarpsdagskráin leiðinleg punktur....

og þar sem ég er óhemju löt í dag þá nenni ég ekki að gera það sem þyrfti annars að gera...s.s. skúra...lesa ....og gera magaæfingar....er með feituna í dag sko...

Eníveis...átti svo snilldar góðan dag í gær...skólinn byrjaði og ég kynntist 2 af 3 kúrsum vorannar....fyrst þjóðfræði samtímans sem er ógó spennó...og EKKERT lokapróf...jey.....svo kom ég heim...las á meðan Stefán fór í smá leyniferð niðrí bæ...hann kom svo heim og ,,analæsuðum" við leyndóið.....fór svo í skólann og kynntist kúrsi nr. 2 sem er sviðslistafræði....ótrúlega áhugavert....eins og ALLT sem ég læri í þessari þjóðfræði....besta nám í heimi! Nú Heiða litla mín kom svo og við skelltum okkur í vesturbæjarlaugina....kósýuðumst í pottinum og kjöftuðum heilmikið....fórum svo heim og elduðum saman taco og tortillur...ummm namm namm....góð stund enda Heiða einstaklega skemmtilegur félagsskapur.

Jæja...í dag fór ég svo í kúrs nr. 3 sem er söfnun þjóðfræða....mjög mikilvægur kúrs við undirbúning alls þess sem mín bíður þegar ég legg heimin að þjóðfræðifótum mínum.....og aftur...EKKERT lokapróf...já og reyndar fer ég ekki bara ekki í neitt lokapróf í maí því kúrs nr. 2 inniheldur bara eitt lítið munnlegtpróf í lok aprí...hlakka til að fara í það....þannig að ég er bara búin þegar kennslu líkur...halelúja fyrir það....jey

Vitiði....þetta nám er svo akkúrat fyrir mig...ég elska það....er alltaf að sjá það betur og enn betur þegar á líður....því ég hef alltaf verið frekar þjóðfræði-þenkjandi....og eins og ég kom inná hér einhverntímann þá er ég nánast alltaf að horfa á fólk og hluti og umhverfið allt með pælingum....spái í laufblöð muniði...hehe....já og hvernig fólk aktar....í sviðslistafræðinni verður farið inn á það að miklu leiti.....

Ég hef lúmskt gaman að því að sjá hvernig fólk bregst við...hvernig það svara eða ekki svarar upplifunum eða áreiti eða bara hverju sem er.....og það þessu gefnu verð ég að segja smá sögu....en þannig er með mig að ég er mjög hreinskilin....ef ég reiðist fólki þá vil ég láta það vita af því...tala um hlutina og reyna að gera þá sem besta....laga.....Var einmitt að tala við eina vinkonu mína um daginn sem sagði mér að hún hefði frétt að vinkona hennar væri í fýlu við sig en hún vissi ekki afhverju....nú við ræddum þetta og vorum sammála um að auðvitað ætti þessi svokallaða vinkona hennar að tala við hana og segja afhverju hún væri fúl.....vinkona mín á ekki að þurfa að leita eftir svörum eða giska á það.....en já...svona getur fólk nú verið óþroskað....eða er þetta kannski hræðsla að einhverju leiti? ég held það....ég held að ef þú veist upp á þig skömmina þá þorir þú ekki að feisa manneskjuna með það....því finnst fínt að fela sig á bakvið eitthvað ...eða þá einhvern. Þessu lenti ég í fyrir ekki svo löngu síðan....ég reiddist manneskju og ákvað svo að tala um það við hana....því það er minn stíll að tala út um mál...bara í góðu...en manneskjan þorði ekki að feisa mig....allt endaði þetta svo illa og þá aðallega vegna þess að samskiptin fóru fram á netinu...sem er b.t.w. engin vettvangur fyrir tilfinningar....ég reiddist enn meir og sagði orð sem hefðu ekki átt að vera sögð á þessum stað....eníveis...eins og ég sagði þá fór þetta í lokin ekki vel....sem skildi eftir sig 2 reiðar manneskjur.

Mér finnst ekki gott að hafa hlutina neikvæða.....enda er ég vog...og réttlætisskálarnar mínar þurfa að vera jafnar....en þær ná því ekkert alltaf...allavegna....þar sem ég hef ákveðin einkunarorð að leiðarljósi í mínu lífi og hef haft síðan ég var lítil....en það eru orð sem móðir mín kenndi mér....sá vægir sem vitið hefur meira.....þá ákvað ég...þrátt fyrir að endilega finnast að ég ætti að taka af skarið og biðjast afsökunar....en þá ákvað ég að gera það...fyrir það sem ég sagði...þó svo að eins og ég segi...að mér hafi fundist ég þurfa þess....mér fannst ég nefninlega alls ekki vera sú sem ætti sökina....en....það á hins vegar ekki að snúast um það...fólk á að vera nógu þroskað til að geta beðist afsökunar og reyna að hafa lífið þannig að manni líði vel og öðrum í kringum mann....Ég var hins vegar alveg ákveðin í því að hafa þessa manneskju ekki í kringum mig meir því ég þarf ekki á fólki að halda sem sýnir mér ekki virðingu....virðingu fyrir því sem ég hef gert í þeirra þágu! Jæja....ég sendi afsökunarbeiðini sem var hunsuðu....það fannst mér ómerkilegt.....en lýsti kannski manneskjunni best sem fékk hana....afsökunarbeiðni mín fannst mér lýsa mér.....þannig að þegar upp var staðið eftir þetta atferli stóð ég uppi sem meiri manneskja...eða það finnst mér....og reyndar fleirum.....en já svo leið tíminn og ég ákvað að senda annan póst...honum var svarað en innihald svarsins var það mesta krap sem ég hef lesið...fyrir utan ógeðis ruglhótunarbréfið frá mínum fyrrverandi geðsjúklingi....eníveis....því líkur tvískinnungur sem þetta svar var....og ég skal viðurkenna að í hálfan dag var ég reið yfir því....en ég reyni nú að láta hlutina ekki fara í taugarnar á mér lengur en það og hugsaði með mér að svona mannvera ætti ekki skilið að ég eyddi hálfum degi í að hugsa um hve ómerkileg hún væri....svo nú var hugurinn komin á beinu brautina og þar af leiðandi þessi manneskja út í eyðimörk fyrir mér og ég er ekkert á leiðinni þangað neitt.....jæja...þrátt fyrir að hún hafi í svari sínu sagt að hún væri búin að fyrirgefa mér....þá baðst hún ekki afsökunar á því sem hún sagði við mig....og margt af því var mjög særandi fyrir móður...sem eg er.....já og meira að segja segist hlakka bara til að hitta mig næst þegar við myndum rekast á ...hvar svo sem það yrði....jæja...2 dögum síðar eða svo fer þessi sama manneskja og eyðir tíma í það að bakatala mig og ljúga upp á mig.....HALLÓ....er þetta nú ekki bara æpandi geðveiki?? ég skil ekki svona....og það eins sem ég var búin að vera að reyna var að gera hlutina bærilega þannig að fólk gæti verið sátt og ánægt....í þægilegu umhverfi.....NEI....þarna fauk heldur betur í mína....óréttlæti er eitthvað sem ég HATA....þetta var punkturinn yfir iið.....nú var svo komið að mig langaði mest til að ....ég veit það ekki....eitthvað....eitt vissi ég....að afsökunarbeiðnin stóð ekki lengur...hana dró ég tilbaka....sendi reyndar engan póst því það var ekki hægt lengur....já menn eru klókir...eða hvað...hræddir kannski? sumt fólk...ótrúlegt....en ég veit að þessi manneskja tók statusinn minn á facebook greinilega til sín....mér finnst það bara SNILLD......ég er sjaldan bitch og eiginlega aldrei....en þarna fór ég fínt í það....það er nefninlega þannig að fólk sem veit upp á sig skömmina...það tekur til sín það sem það á....og það veit hvenær einhverju er beint að því....þannig að þessi manneskja er alveg búin að sanna sig fyrir mér....og sanna allt sem ég hafði verið vöruð við....en eins og ég sagði áður hér að neðan....þá vill maður ekki láta segja sér hlutina...a.m.k. ekki ég...þarf að komast að þeim sjálf...og dæma sjálf af minni eigin reynslu.....nú er ég búin að því....og engin sagði I told you so við mig....þó ég hefði ekki látið það fara í taugarnar á mér....það fólk er allt búið að brenna sig á ljótum lygum og óheiðarleika þessarar manneskju....svo það hefur varann á sér....

Merkilegt hvað sumir virðast aldrei læra....þroskast.....en það er ekki allt fullkomið í þessum heimi....mér finnst bara svo ótrúlega óþolandi að þurfa að standa í að díla við svona aðstæður...hálfgert gelgjudæmi....og þetta virðist bara vera á meðal stelpna...strákar láta aldrei svona.....og ætli allt verði ekki brjálað núna? en mér er alveg sama....það verður það þá bara.....ég ætla ekki að taka þátt í þessum skrípaleik lengur.....ég stimpla mig út frá þessari vinnu....takk!

Svona í lokin ætla ég að tala um eitthvað skemmtilegt....svo þessi færsla verði ekki bara eitt reiði-púst...hehe....en já...Stefán minn átti afmæli á miðvikudaginn.....auðvitað lögðum við stelpurnar hans okkur fram við að gera daginn sem bestann.....ég gaf honum spes leynigjöf rétt eftir miðnætti...sem engin nema hann fær að sjá sko....híhí....nú svo bakaði ég æðislega appelsínusúkkulaðiköku...skreytti hana með frosnum bláberjum frá Húsavík hehe....og jarðarberjum....við gáfum honum svo geggjaða skó....hvíttgaddaólabelti og æði ilmvatn....rosa ánægður audda.....hann hafði svo boðið fólki í mat svo ég eldaði kjúklingasúpu og auðvitað kakan og ís með í eftirrétt....ótrúlega næs dagur....!!! gaman gaman.....jæja...ætla að lesa smá....helgin verður með ágætasta móti....þrátt fyrir að Stefán sé að vinna....ég ætla út að hlaupa í fyrramálið...Emelíana á æfingu...svo kemur Elín vinkona í heimsókn....Þórhallan mín er búin að boða komu sína....Við ætlum svo að elda kjúkling þegar ég verð búin að skúra pleisið.....svo er von á Kollu og Alla´um kvöldið í spil....það verður gaman...jæja....fínt að vera búin að létta aðeins af sér....þá er það frá....the rest is history....góða helgi...Hi

Tuesday, January 13, 2009

afmælisstrákur og almenn gleði

Á morgun verður þessi sæti og frábæri strákur 29 ára!

Það sem mér finnst svo magnað við hann er það að hann er alltaf í svo góðu og jákvæðu skapi....til í allt og ótrúlega duglegur og fylgin sér. Hann er góður pabbi...góður kærasti og mér finnst ég endalaust heppin að hafa kynnst honum og náð í hann! Hann er duglegur og klár....syngur best og semur falleg lög. Ég gæti skrifað langa ritgerð um kosti hans....en þá væri ég nú sennilega farin að sánda montin hehe....og það ætla ég ekki að fara útí hér.

Eníveis...ég lofaði Guðrúnu mágkonu að stríða bróður hennar vel og duglega á því að þetta væri nú síðasta ár hans sem tuttugu og eitthvað....nú væri alvarleikinn framundan og ellin...hehe....og aðsjálfsögðu mun ég standa við gefið loforð! Annars finnst mér svo fyndið að Stefáni finnst ég alltaf vera 3 árum yngri en hann....ég ætla bara að leyfa honum að finnast það eins lengi og hann vill....þó ég sé bara 23 ára...djók...það er frábært að ná þrítugsaldri skal ég segja ykkur....þið sem eruð ekki enn orðin það eigið eftir að upplifa stórkostlega hugarfarsbreytingu....það gerast nefninlega hlutir við það að ná þessum aldri....þá fer lífið loks að byrja!!!

Jæja...nóg að rugli í mér um þetta....en samt...aðeins um þroska....ég hélt að þegar fólk gengi í gegnum ákveðin skeið....ákveðna hluti...að þá mundi að þroska það til hins betra...þannig að það gerði ekki sömu mistök að áður....Ein vinkona mín sagði við mig um daginn að hún hefði þurft að labba fast á vegg til að átta sig á stöðu mála....hún vissi alveg hvað var í gangi og ég náttúrulega búin að segja henni það 100 sinnum....en alltaf hélt hún áfram að gera sömu vitleysuna....þangað til að hún labbaði á vegginn...fast eins og hún orðaði það.

Kannski er það málið...að sumt fólk heldur áfram að segja og gera sömu vitleysuna bara vegna þess að það labbaði ekki nógu FAST á vegginn....? ég veit ekki...sumir eru náttúrulega bara siðblindir og satt best að segja virðast vera illa upp aldir....ég að minnsta kosti er farin að segja það um ýmsa sem mér finnst haga sér illa....það sé bara fólk sem er illa upp alið eða jafnvel er búið að gleyma því sem mamma/pabbi kenndu þeim um mannlega framkomu....nú svo eru alltaf til foreldrar sem hreinlega kenna börnum sínum enga mannasiði....

Allavegna....þá finnst mér með ólíkindum þegar fólk hagar sér illa....segir hluti um aðra bara...að því virðist...til að sverta það...nú eða reyna að upphefja sjálft sig....svoleiðis fólki hrapast illilega....og það endar alltaf þannig að það fær það í bakið með einu eða öðrum hætti.

Annars er ég að reyna að halda því sem ég sagði hér neðar einhverntímann....læt þetta fólk bara sem vind um eyru þjóta....þó ég sé viðkvæm í eyrunum...sérstaklega fyrir vindi...þá set ég bara upp húfu...hún er góð og varnar alltaf einhverju!

Ég veit að ég hef oft sagst vera hálfgerð norn....og að vissuleit er ég það því ég veit alltaf hvenær er verið að ljúga að mér....eða hvenær eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera....Það getur því verið lúmskt gaman að ,,stríða" fólki....æi kannski ekki beint stríða en já...svona horfa framan í fólk sem hefur talað illa um mann og jafnvel logið upp á mann...horfa framan í það...horfa á líkamstjáningu þess og sjá hvernig það hálfpartinn engist um vegna þess að það veit upp á sig skömmina....og að koma vel fram við svona fólk...sem á það samt ekki skilið....er nákvæmlega það sem ég geri....í flestum tilfellum...kannski 1-2 undantekningar....eníveis....ég er ekki vitlaus og þó ég láti eins og allt sé ok þá veit ég sannleikann.....ég leggst bara ekki á sama low plan og sumir.

ég hef í gegnum tíðina oftast fengið eitthvað á tilfinninguna þegar ég er í nýjum aðstæðum...t.d. þegar ég er að kynnast nýjum einstaklingum.....ég finn mjög fljótt hvort mér líkar vel eða illa við manneskjuna....hvort það sé einhver vafi í mér eða ekki....ég veit ég get verið oft á tíðum mjög dómhörð varðandi hluti og málefni...en ég reyni að gera það ekki með fólk....því flestir eiga skilið að sýna sig...og oftar en ekki sýnir fólk ekki alveg sitt rétta andlit strax....það er ekki fyrren maður kynnist þeim betur að þessi litlu smáatrið sem gera hvern einstakling að því sem hann er fer að skína í gegn.

Ég lennti í þessu....kynntist mannesku og fékk strax einhvern illan bifur á tilfinninguna....og því miður þá hlustaði ég ekki á sjálfa mig...eins og ég annars oftast geri....nei ég vildi held ég sanna eitthvað....endaði nú illa á hausnum við það...hefði betur átt að fylgja mínu innsæi....og þá kannski hlusta líka betur á allt í kringum mig sem sagði NEI.....skondið hvernig fólk/vinir í kringum mann getur látið sig varða um eitthvað svona...gott mál og þeim gengur flestum vel til....og núna...eftir á að hyggja er ég ótrúlega þakklát og glöð að sjá og heyra að þetta fólk ...sem vildi mér bara vel....hafði 100% rétt fyrir sér....fólk sem hefur alltaf staðið sig og er fyrir löngu búið að sína hver það er og maður getur verið svo fullviss um að ganga að þeim vísum.....það eitt lætur mér líða vel....og það er einmitt fólkið sem ég sé....heyri og finn....allt það sem ég sagði hér neðar....að horfa á það sem er í kringum mig....og það er besta fólkið....vinir mínir og fjölskyldan!

En jæja...áfram með jákvætt....ég er orðin þvílíkt spennt fyrir skólanum...byrja á fimmtudaginn...vona samt að stundataflan breytist aðeins...er ekki alveg sátt við að vera í tímum kl 15....kannski fáum kennarana til að flýta tímunum um klukkutíma...það væri betra...æi...þetta er bara svo að ég geti skuttlað í fimleika og svona...eníveis...er í spennandi fögum: sviðslistafræði, þjóðfræði samtímans og söfnun þjóðfræða....allt áhugavert og spennandi.

Jamms...svo er framundan afmælisveisla....hittingur...og auðvitað ferð norður á þorrablót í Mývó...yeah...stuð stuð stuð...hlakka mega mikið til...ekki verra að vita hvaða hljómsveit verður...en það er Von...þeir eru fínir á böllum og auðvitað sæti frændi minn á trommunum....svo nú verður tekið á því...og tjúttað fram á rauða nótt!!! get ekki beðið....

En jæja...best að gera eitthvað skemmtilegt...nota síðustu dagana í fríinu og dunda mér....hafið það gott og góðar stundir fallega og góða fólk...

Monday, January 5, 2009

Take out your brain and jump on it!

ok....ég ætlaði að finna einhvern texta....finna texta sem gæti lýst því hvernig mér líður...það er stundum auðveldara að setja bara texta og sleppa því að skrifa sjálf.....en ég fann engan....engan sem kemst nálægt því að vera eins flókinn og snúinn eins og hugsanir mínar eru núna....Hugsaði svo....set bara einn alveg kexruglaðann eftir Tori mína Amos...sem engin skilur nema Vala frænka....en ég ákvað að sleppa því....svo hér er ég....með hjarta mitt og heila fyrir framan mig á stofuborðinu....hjartað slær enn...heilinn hoppar um eins og hann sé ekki sáttur....

Janúar er alltaf erfiður mánuður finnst mér....jan og feb....mér hefur lengi fundist þeir leiðinlegir og þeir eru svona mánuðir sem maður man aldrei eftir þegar horft er til baka....svo langt í burtu alltaf....en meðan þeir eru þá er eiginlega bara alltaf allt leiðinlegt...jólin nýbúin...allt að byrja aftur og já....einhvern veginn glatað....Fyrstu dagar Janúar eru alltaf HELL fyrir mig...þá hellist yfir mig heimþrá...leiði...eirðarleysi...þrá eftir einhverju sem ég samt veit ekki hvað nákvæmlega er...bara eitthvað annað en það sem er.....

Svo jafnar þetta sig svona um miðjan mánuðinn...þegar allt er komið í rútínu og ég farin að sjá að það er margt að hlakka til.....Eftir að ég byrjaði með Stefáni þá hefur þetta að miklu leiti lagast...svo á hann nú afmæli 14 jan svo þá hef ég nú tilgang....kaupa afmælisgjöf og undirbúa einhvern góðan mat.....æh í guðanna bænum ekki taka því eins og ég sé alveg bara sombie sko...er ekkert undirlögð af þunglyndi sko....bara einhver depurð.

Hormónar eða hvað....veit ekki....en í gær bara var ég svo grátgjörn að ég gat varla á mér heilli tekið....Mig vantaði Emelíönu ....saknaði mömmu og pabba.....barði sjálfa mig niður fyrir að vera ekki nógu sterk alltaf....fannst ég vitlaus og ömurleg.....Já þetta var ekki góður dagur....ekki bara svona dagur þegar maður fær ,,ljótuna" ....nei þetta var bara dagur til að gráta út af engu og öllu.

Núna er ég að spá hvort að ég sé að opinbera of mikið....en vitiði...mér er alveg sama....ég hef alltaf verið hreinskilin og hún hefur komið mér þangað sem ég er.....Ég bara verð að tjá mig....bara verð!

Og ég analæsa....það er veikleiki held ég....Stefán skammar mig stundum fyrir það að ég þurfi að analæsa alla hluti....allt....og auðvitað er það rétt hjá honum....ég þarf ekkert að gera það....en ég veit afhverju ég geri það....og þá ástæðu ætla ég ekki að fara út í hér....alltof mikið.

En ég komst að því í gær....eftir allan grátinn....eftir að hafa ausið út úr mér fullt af orðum sem aumingjas Stefán skildi örugglega ekki....nema kannski smá....því þessi orð komu öll í belg og biðu....þá....þá fattaði ég að sennilega var ég í spennufalli.....já....ég lá upp í rúmi heillengi og hugsaði hálft ár tilbaka.....

Á þessu hálfa ári hef ég verið undir miklu andlegu álagi....einhver hluti af því eru auka-kannski óþarfa áhyggjur....en hitt er alvöru...þar sem reyndi á mig sem dóttur...vinkonu....kærustu...móðir....og allar þær hliðar sem minn persónuleiki hefur ......

Ég ber sumar þessar áhyggjur enn...og mun þar til .....ja þar til þær enda....en já....vil ekki tala um það.....en það er stundum þannig að fólk leggur á mann....svo mikið að maður virðist vera að brotna undan því....Ég var orðin ansi bogin....en ég brotnaði ekki....Ég tek hluti stundum of mikið inn á mig.....en ég bara kann ekki að skilja að....setja upp net sem skilur að það sem er ekki mitt.

Auðvitað kemur svo að því að eitthvað undan lætur....ég er bara mannleg....ég þarf líka að deila...finna að fólk vilji taka við mínu....en að ætlast til þess er kannski of mikið....kannski ekki...You give what you get? uuu....nei ekki alltaf....en það er líka allt í lagi....það eiga ekki að vera neinar reglur um það.

Ég spurði líka sjálfa mig í gær....hvort ég væri trú sjálfri mér.....og var mjög fljót að finna svarið...já! og ég var svo ánægð með það....því þó svo að ég hafi sagt eða gert hluti sem eru ósanngjarnir/eða einhver við mig.....þá reyni ég að laga það....þó svo að manneskjan á móti sé ekki viljug eða tilbúin til sömu hluta þá geri ég það samt....þá er það bara fyrir mig....því auðvitað ræður hver hvernig hann vill hafa hlutina....eníveis....

Sá vægir sem vitið hefur meira....sagði mamma alltaf við mig þegar ég var lítil.....orð sem ég hef alltaf í mínu lífi haft til hliðsjónar....Mér er eiginlega alveg sama þó ég taki á mig sök sem er ekki mín....ég vil bara að vogarskálarnar mínar séu í jafnvægi....og ég geri allt til þess að svo sé....annars fúnkera ég ekki.

Góð kona sem lést nýverið sagði alltaf....að maður ætti að láta fólk eiga sig sem ekki getur komið heiðarlega og hreint fram......Ég ætla að tileinka mér þetta from now on.....

Ég hef alltaf getað fyrirgefið fólki....litið framhjá hlutum og horft fram á veginn.....nú ætla ég að einbeita mér að því sem er fyrir framan mig.....taka heilann og setja hann á sinn stað....hjartað líka....og sjá og heyra allt sem í kringum mig er....nákvæmlega þetta....það sem í kringum mig er....hitt....sem er það ekki....ætla ég að láta eiga sig.

Hi

Friday, January 2, 2009

Milli jóla og nýárs...áramótin ....komin aftur í Rvk




Stefán á leið í partý...smart! Fyndin svipur á Júlíu...með popp á leið í sveitina


Spúkí augu í Skugga hans Óla








Stuð í matarboði í gömlu Vogum

Brynja Hilduskott









uuu kreisí systkini





Andrea með eitthvert töfranuddtæki....allir í slökun










Línan okkar sem við hittum því miður alltof lítið...fallegust!


Við LENGST upp í fjalli á brettum hehe







ok kannski ekki alveg...en allavegna í Hlíðinni
Hæ....æi við tökum fáar myndir...verðum bara að fá að stela hjá Guðrúnu mágkonu eða tengdamömmu....tókum samt slatta á videovélina....en...jamms.....þetta er bara smá brot hérna að ofan.
Annars erum við komin aftur suður og normal-líf við það að hefjast....Stefán á leið í vinnu en við Júlía dúllumst....skólinn minn byrjar ekki fyrren 15 jan svo ég á enn gott frí eftir....Emelíana kemur á sunnudaginn og fer svo beint í skólann daginn eftir...og Júlían þá á leikskóla....eníveis....rosa gott að komast norður ...vildi bara að við hefðum getað verið lengur....en það er stutt í næstu ferð...þá komum við á þorrablótið....má engin missa af því sko.
En jamms....ég ákvað að skrifa ekkert blogg fyrir norðan því lyklaborðið hjá tengdó er það stífasta í heimi og ég bara nennti ekki að hamast á því......ég er búin að fá aðra einkun sem var 8...en ég bíð enn eftir síðustu og mest spennó einkun...veit ekki hvort ég eigi að vera kvíðin eða hvað....æh...hún hlýtur að fara að koma.....
En já við sem sagt fórum beint upp í sveit (Mývó) á annan í jólum og beint í dinner...yndælis purusteik og með því....daginn eftir var svo hangikjötsveisla í Vogum 3 hjá Óla....það var líka dásamlegt....nú svo var auðvitað barnaballið....Júlían dansaði upp á sviði og svo voru þær frænkur hún og Tinnan rosa duglegar að labba í kringum jólatréið og syngja og gera allar hreyfingar.....litla Brynjuskottið var mikil Hildustelpa....eðlilega...ég er náttúrulega svo mikið æði hehe.....já og svo þurfti ég að kyssa einn jólasvein á ballinu....hann var nú bara sætur!
Við fórum svo til Húsavíkur 29 des og borðuðum hjá mömmu minni og pabba....mamma gerði auðvitað einn af mínum uppáhalds réttum....namm namm...ég hitti svo Sillu vinkonu í smá spjall á kaffihúsi....og svo kíktum við hjúin í heimsókn til Daggar og Gunna Illuga...alltaf frábært að hitta þau...mikið spjallað enda vorum við að skríða heim að ganga 3 um nóttina...well....svo brölluðum við ýmislegt og enduðum svo á að fara í sveitina mína Halldórsstaði....ég tók skurk í tiltekt á endalausa dótinu mínu upp á lofti....og henti og henti...ja eða sko ekki...fyllti 2 fulla ruslapoka af fötum sem ég ætla að gefa í Rauða krossinn.....hreinsandi að laga svona til hjá sér....í leiðinni fann ég svoooo fyndin bréf...gaf mér reyndar ekki tíma til að lesa þau nema eitt....ok þetta er sko fyrir tíma gsm síma og þar af leiðandi smsa....jesús hvað þetta var fyndið...eníveis....svo fórum við upp í Mývó og héldum áfram að hafa það gott bara....kíktum í Lónið m.a. og svo á bretti upp í Hlíð....Ég var sem sagt á Þórhöllu bretti og var að fara í fyrsta skipti á bretti....ok...ekki bestu aðstæður í Hlíðinni..hjarn og ómögulegt færi....en hey...ég stóð mig vel...stóð alveg 5 metra eða eitthvað hehe....
Well....áramótunum eyddum við svo hjá Guðrúnu mágkonu og co ásamt tengdó....það var æði....borðuðum hreindýralæri sem var bara gott sko....horfðum á þetta helsta í tv og fórum svo upp í svokallaðan Fjallaskála til að horfa á skaupið og skjóta upp.....Ég var auðvitað með upptökutækið á fullu þar sem ég er að aðstoða kennara minn við rannsókn....Mér fannst skaupið SNILLD...vel leikið og skemmtilegt.....frábært´líka að vera í Fjallaskálanum....skemmtilegt fólk...góður staður til að horfa yfir bæinn og sjá þar af leiðandi flugeldana vel...eiginlega best....Við komum svo börnum í hátt og kíktum í bæinn aðeins...allt svo ég og Stefán...tókum Sigurgeir og Arnór vini stefáns með...dönsuðum einn dans á Café Amour...hittum fólk og fórum svo að lulla....svo eyddum við gærdeginum í að keyra suður....allt gekk vel og er bara ágætt.....jamm svo nú veit ég ekki hvað ég á að skrifa meir....gott veður svo ég er að hugsa um að labba út með skottuna mína...heyri í ykkur...bæ