Tuesday, March 31, 2009

þegar táknin koma....þegar maður síst á von á þeim....birtingarmyndir í lífinu

http://www.youtube.com/watch?v=fn0eiyl1woU&feature=related

Sunday, March 15, 2009

...og þar kom að því!

Jább...ég hef verið að melta þetta svona með mér í dálítið langan tíma...og komin með ákvörðun...ætla sem sagt að taka mér pásu um stundarsakir...í blogginu allt svo...var á tímabili að hugsa um að hætta en er ekki komin svo langt í hausnum varðandi þá ákvörðun....en margt spilar inn í ....þessa ákvörðun hins vegar rökstyð ég með vaxandi álagi í skóla en einnig með þeirri staðreynd að ég hreinlega hef ekki haft neina löngun lengi í að blogga og sést það berlega á stopulum skrifum mínum sem eru hreinlega hálf leim....ef svo má að orði komast...ég vil ekki skrifa allt hérna inn því sumir eru svo lúnknir í að misskilja og svoleiðis stússi nenni ég ekki að standa í....eins og ég setti í stausinn á fb-inu mínu í gær....ég læt aðra um skítverkin!



Eníveis....það er hreinlega að bresta á með öllu því stressi og álagi í skólanum núna sem fyrir finnst í mínum skilningi....og nú þarf heldur betur að bretta upp ermar og láta verkin tala....wow...ég held sveim mér að ég yrði góður pólitíkus....er þannig máli farin hér eitthvað núna...ó well....annars er ég best undir pressu og á það því til að velta hlutunum fram á undan mér þangað til boltinn er orðinn ansi stór og kemst ekki fyrir lengur í híbýlum mínum....þá þarf að krapa (eins og Júlían mín notar um orðið klór) í boltann og vinna hann niður í litla kúlu.....svo að þessu leiti yrði ég ekki góð í ríkisstjórn t.d.


Ég er að vinna risa verkefni núna sem er búið að taka endalausann tíma en sér loksins fyrir endan á....bara herslan eftir....svo bíða fleiri og fleiri verkefni....skila 1 á fimmtudag og 4 á föstudag....jess....svo ákveða og byrja að undirbúa 2 ritgerðir....þannig að....pása á bloggi er kærkomið og vonandi næ ég að blása lífi í annars fátækleg skrif mín.....svo er aldrei að vita nemað ég vendi mínu kvæði í kross og tali um það sem annars ætti ekki að tala um....eða já...bla....


Ég og stúlkurnar mínar fórum ásamt Siggu Þóru vinkonu Emelíönu í sundhöllina í dag og skemmtum okkur vel.....ég sá áhugaverðan líkama á karlmanni sem ég reyndi að skilja....en ég er ekki læknisfræðilega menntuð svo ég skildi hann bara ekki neitt.....síðan fórum við í bakarí og heim að borða það gúmmelaði ásamt köldum royal búðing....namm.....læra læra læra....hlægja af Júlíu sem hefur greinilega erfti mjög svo twisted húmor minn í bland við húmor föður hennar....hún er alveg búin að fara á kostum í bullinu....bara gaman....og gott að hún er hætt að æla.....svo nú eru börnin farin í bólið....ég ætla að læra þangað til kærastinn minn kemur heim úr vinnunni......



en....ég bið því að heilsa ykkur í bili...sjáumst með vorinu kids...hafið það gott og takk fyrir að lesa þið sem nennið því ....og þið sem ,,nennið" að kommenta.....þið hin þarna laumulesarar....hafið þið það líka gott! ciao...Hi

Friday, March 13, 2009

Æla í morgunmat!!!


Ég veit að fyrirsögnin hljómar ekkert mjög æðislega....en hún er næstum sönn.....
Þessi yndislega og fallega stúlka mín...Júlía Brá....gladdi móður sína með smekklegri ælu beint í andlitið í morgun....jább....dagsatt...
Hún sem sagt var eitthvað hálf ólík sjálfri sér þegar við komum heim af leikskólanum á miðvikudaginn....lagðist í sófann og sofnaði...svo kom það....ælupest....annars mjög hress en við höfðum hana heima í gær til vonar og vara....ældi ekkert í gærdag og meira að segja borðaði smá...svo kom það aftur í byrjun nætur...alltaf jafn gaman að standa í svona á næturnar...rífa utan af rúmum og henda í vél...skola...baða og græja...nú jæja...Stefán og Emelíana fóru svo á fætur í morgun en við Júlía kúrðum saman lengur....þar til ég vaknaði við vel volga ælu sem ég fékk pent yfir allt andlitið....jebbs....ég rétt náði að loka munninum og fnæsa með nefinu svo það læki ekki allt inn í það haha....fór undir sturtu hausinn og náði að skola mest framan úr mér...úr hárinu líka...skellti því í handklæði og fór að bjarga barninu mínu sem sat í ælupolli enn inn í rúmi....eftir að hafa skuttlað henni í bað...skolað rúmföt og sett í vél leit ég í spegill.....þarna voru leyfar af ælu enn í augnkrókunum og víðar framan í mér....hehe ég er með svo stórt andlit ....eða þannig....eníveis....litlan mín er ótrúlega dugleg...sjá lítinn kropp fara og taka fötuna eða rölta inn á bað til að æla er bara ótrúlegt....þau eru svo dugleg þessi börn.....en núna heldur hún engu niðri...og ég búin að bjóða henni ALLT sem mér dettur til hugar....en eina sem hún vill er mjólk....og það er það versta....mjólkurvörur hjálpa ekki.....en....mikið óskaplega er erfitt að horfa á þá sem maður elskar þjást og engjast svona mikið.....pínulítill kroppur sem má ekki við því að missa neitt....æi óskaplega finn ég til með henni.
En það er vonandi að þetta fari nú að ganga yfir....vona svo sannarlega að við hin nælum okkur ekki í þetta....en líkurnar á því eru nú samt yfirgnæfandi....ég meina....ég fékk þetta nú nánast beint í æð!!! hehe....
ó well...lítið farið fyrir lærdómi og það er kreisí að gera hjá mér.....Stefán er í vinnuhelgi og ég kemst því lítið afsíðis til að fá frið við lærdóm....en þetta reddast eins og alltaf....annars er allt ágætt að frétta....stefni á að hafa það bara kósý heima með stelpunum um helgina....spáin er ekkert sérstök svo vegna aðstæðna er líklegt að við förum lítið á flakk....
annars óska ég ykkur góðrar helgar og ,,sé" ykkur síðar....ciao

Monday, March 9, 2009

Myndir frá helginni....plús nokkrar aðeins eldri.





mamman bakaði í gærkvöldi...2 stelpur fljótar að renna á lyktina og komu og smökkuðu ,,smá"





Stelpurnar létu ekki sitt eftir liggja og tóku stubbadans



Innflutningspartý Grjóna og Ásgeirs þar sem þessir 2 tóku The bird is the word dansinn!











Flott borðskreyting hjá strákunum G og Á








Vikivaki dansaður á árshátíðinni






Stefán kom og sló í gegn með því að syngja og spila...partýið var klárlega á okkar borði











Ég með kæstu eggin að útskýra þjóðfræðina á bak við þau!!!









Ég á klóinu hehe...þar sem Stefán hafði verið rétt áður...útskýrir sig sjálft




Þegar ég hitti baldur minn kristjáns listamaður með meiru









Emilía mín ólétta...alltaf falleg og geislandi












Júlían brasar í baði












og svo á hún gsm síma og talar við hina og þessa í hann


















Nýji myndavélasvipurinn hennar









Þegar tengdó voru í heimsókn þá sofnaði tengdapabbi svona skemmtilega í sófanum...alveg tilbúinn með puttann á fjarstýringunni hehe















Inn í bráðum húsbílnum okkar...pabbinn búinn að rífa niður vegg...allt að fara að gerast...Heiða fylgist með Júlíunni sem finnst gaman að brasa í stóra bílnum hans pabba




















Júlían að máta skíðin og klossana...nú þarf bara að drífa sig af stað!
Já þetta eru svona myndir frá helginni og svo nokkrar frá s.l. mánuði/mánuðum......en jamms helgin var góð að minnstakosti var árshátíðin skemmtileg ....ágætis matur og allt bara fínt....ég var með atriði...stand up/eftirhermur....sem sló í gegn....svo sagði ég fólki frá kæstum eggjum og gaf þeim að smakka....það voru þó nokkrir sem höfðu sig í það....aðrir voru fljótir að afþakka...haha...svo unnum við stefán í happdrættinu...á báða miðana...inneignir í Gyllta köttinn...vettlinga og geisladisk....svo vann ég í spurningakeppninni og fékk bók...veiii loksins loksins vinn ég ....ahah...jamms....stefán spilaði svo og söng og var klárlega mesta stemmningin við okkar borð undir lok kvöldsins....ballið byrjaði svo en við ákváðum að fara ekki á það heldur í innflutningsparty til Grjóna og Ásgeirs....það var gaman og góður stemmari....kíktum svo í bæinn og hittum skemmtilegt og gott fólk að norðan.
Jepps....æi ég er eitthvað að elda og blogga um leið...það er ekkert sniðugt...uuuu best að vera fljót...já fór í langþráða klippingu og strípur á föstudag....og ég nálgast sem sagt að verða ljóshærð...obbobb....en er mjög ánægð sko....hummm.....æi já svo bara ætlaði ég að vera rosa duglega að læra í dag en nennti því ekki svo ég tók bara fram saumavélina og saumaði mér einn kjól...stytti gallapils og lagaði skyrtu og leggings.....svo gaman að sauma...þarf að gera meira að því....jú svo handsaumaði ég í nýju leðurskóna hans stefáns....brotnaði smella og ég náði að fixa það með mjög töff hætti....var svo eitthvað að nota tennurnar til að tosa nálina í gegnum leðrið (enda mjög erfitt að sauma í það með nál og tvinna) og auðvitað stakk mig 3 sinnum í varirnar með henni hehe...en stefán kyssti á báttið svo það var allt gott mjög fljótt...virkar sko að láta kyssa á meiddi....þetta er ekkert rugl hjá börnunum.....ó well....best að klára að elda....kem með eitthvað djúsí soon....eða ekki djúsi....bara eitthvað haha..oki ciao

Thursday, March 5, 2009

Fálki og Ugla





































Þetta eru ótrúlega fallegir fuglar...ástæða þess að ég set inn myndir af þeim hér...og er að tala um þá er sú að rétt áðan var ég út á svölum og sá Uglu fljúga framhjá....VÁ!!! svo tignarleg....og s.l. vikur hef ég séð fálka...í fyrsta skiptið flaug hann rétt framhjá svölunum mínum og eg ég hefði teygt út hendina þá hefði ég getað snert hann...hann horfði líka beint framan í mig um leið og hann þaut hjá....ótrúlegt móment! Næsta skipti sá ég hann fljúga framhjá og í 3 skiptið settist hann upp á húsþakið á húsinu hér við hliðiná mér....meiriháttar...elska þegar ég sé uglur eða fálka...sá einmitt snæuglu síðast þegar ég var í Mývantssveit....en þessi í kvöld var brandugla.
Ég á líka stórkostlega teikningu hér upp á vegg hjá mér af uglu sem Sara vinkona mín teiknaði handa mér....innrömmuð og æðisleg....síðan hitti ég Baldur minn Kristjáns um s.l. helgi og við ræddum saman....við erum góðir vinir en langt síðan við höfum átt spjall.....hann teiknaði m.a. handa mér táknmálsfrétta merkið á sínum tíma...enda bað ég hann um það....núna spurði ég hann hvort hann teiknaði fugla...og hann fór að hlægja....sagði mér svo að það væri fyndið að ég skildi spurja því hann væri einmitt búinn að vera að teikna þá.....svo ég lagði inn pönntun fyrir krumma/Hrafn....sem er minn fugl algjörlega...uppáhaldið mitt! svo lögðum við á ráðin um fleira en það er eiginlega leyndó...hann ætlar að teikna tattoo fyrir mig sem verður leyndóið....kemur svo bara í ljós hvenær ég læt setja það á mig.....gaman gaman! vei....
jepps annars er nóg að gera í skólanum....verkefnavika í næstu viku sem þýðir engin skóli....bara læra heima....og ætla ég mér að vera rosa dugleg...klára sem mest ég get....en áður en ég geri það ætla ég að njóta helgarinnar með því að fara kannski á konukvöld annað kvöld hér í blokkinni...svo á árshátíð á Hótel sögu á laugardagskvöldið....kíkja kannski í partý í leiðinni....hehe...og í bæinn....erum með góða barnapíu sem leyfir okkur að vera úti lengi hehe....
En ´jamm....ég trítaði mig aðeins í dag...fór til Röggu í lit og vax....fer svo á morgun í klipp og lit til Þóreyjar....næs næs....mátaði kjól í Gyllta kettinum í dag en fílaði hann ekki alveg nógu vel...svo ég keypti hann ekki....ætla að kíkja smá í búðir á morgun og ath hvort ég finn mér ekki eitthvað smart.....annars sjoppaði ég rauðar gallabuxur um daginn...borgar sig greinilega að bíða eftir því sem maður fílar 100% því þessar voru akkúrat þær sem ég hafði í huga.....ekki hinar sem ég hafði séð....pikkí borgar sig...þá verður maður líka sáttari fyrir vikið.
Eníveis....læra læra....búin að setja saman hillueiningar fyrir stelpurnar....auðvitað gerði ég það ein...þarf enga karlmenn til að hjálpa mér....æ æ...enda er stefán enn handlama greyjið....en það er allt að koma held ég....hann er að spila á tónleikum núna....og missti því af svitanum á milli brjóstanna á mér hahaha....fyndið að svitna bara þar....ó well...nóg af bulli....eigið góða helgi og munið að snúa andlitinu að sólinni....hún er að veita svo yndislega og nauðsynlega birtu núna...gott að daginn er að lengja.....alright....ciao

Tuesday, March 3, 2009

humm....

skil nú ekki alveg...en það virðist sem öll bloggin mín séu horfin...þau að minnsta kosti birtast ekki á síðunni....fann þau sam sem áður inn á stjórnborðinu mínu en...ó well....ég ætlaði ekkert að segja núna því ég er bissí...nema hvað að fálkinn minn sat upp á húsþakinu á móti minn blokk í gær...djöfull er hann flottur!
Hi