
langafi minn Jón Aðalsteinn og faðir afa Fikka

Flottur gamli!
Frumleg fyrirsögn!
Fann þessar gömlu myndir hjá frænda mínum á facebook.....ótrúlega gaman. Ég kynntist því miður aldrei þessum langaafa mínum en held að hann hafi verið frábær maður....a.m.k. fara skemmtilegar sögur af honum....sem mamma hefur sagt mér.
Jæja....kannski ekki nema von að ég sé í fortíðinni því ég hef verið að vinna verkefni sem felst í því að finna heimildir um Þuríði Magnúsdóttur sem var fædd 1801....hún skildi eftir sig nokkrar sagnir í Þjóðsagnasafni Jóns Árnasonar....skráðar af sigmundi Long....af Long-ættinni þið fattið hehe....þetta eru allt austfirðingar svo ég er búin að vera með puttann á púlsinum þar...á kafi ofan í gömlum kirkjubókum o.fl.....ótrúlega fróð um eldgamla austfirðinga.....það er nú bara gaman.
Svo var ég að enda við að gera fyrirlestur um ástir huldufólks....ég fer nú að teljast sérfróð um það allt saman enda búin að gera fjölda ritgerða um það efni og stefnir í eina enn......sem sagt ég er búin að vera í verkefnatörn sem skilast á morgunn.....djöfull verð ég fegin þegar sá dagur er búinn....þá eru bara 4 ritgerðir eftir og svo próf!
Annars er Emelíana í vetrarfríi fyrir norðan núna....Stefán í vinnuhelgi svo við Júlía höfum bara dundað okkur 2 saman....Stefán reyndar skrapp austur á Egilsstaði og spilaði á einu balli þar í gær....það var víst eitthvað glatað allt saman, léleg mæting og svona.....en svona er bransinn bara....eða eitthvað.
Mikið óskaplega hlakkar mig hinsvegar til næstu helgar en þá ætlum við norður...og ég með í þetta skiptið YES!......er alveg búin að ákveða hvað ég ætla að gera....æh jú læra smá auðvitað...fara svo í Lónið á hverju kvöldi....heimsækja mömmu og pabba í sveitina og kannski grúska á háaloftinu í barnadótinu sem ég geymi þar.....fara til Húsavíkur og reyna að hitta eitthvað af vinkonum mínum þar....Sædís er efst á lista og litli prinsinn hennar! borða góðan mat og slappa af í sveitasælunni......fara í gjánna...hitta Þórhöllu vonandi og margt fleira......þarf alveg á því að halda að hlaða batteríin.
Jasso....ég held ég láti þetta nægja í bili....er hálf steikt í hausnum plús það að það fer að koma háttatími fyrir mig....ég ólétta konan er orðin svo kvöldsvæf að það hálfa væri nóg....það er af sem áður var þegar ég var að skríða inn í rúm milli 1 og 2 á nóttunni....nei nú er það bara 10-11 sem gildir....jesú minn!
Góða nótt ljúfu mín.....Hi